Hvernig á að hirða um lifandi jólatré?

Mörgum finnst ómissandi að finna greniilm­inn sem um­lyk­ur stof­una þegar jólatréð í stofunni stendur um hátíðarnar og vilja bara vera með lifandi tré meðan aðrir eru með gervijólatré. Ef þú ætlar að vera með lifandi tré um jólin er vert að halda því sem lifandi og fersku sem lengst og forðast að það þorni. Hér eru góð ráð hvernig góð umhirða lifandi jólatrjáa er sem best.

Til að forðast það að jóla­tréð þorni of fljótt og fari að missa barrið, þá eru nokk­ur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga. Það má aldrei láta vatnfótinn tæmast, þá er hætta á að tréð drepist.

  • Þegar búið er að kaupa jólatré og farið er með það heim er mikilvægt að geyma það utandyra eða á köldum stað þar til degi áður en það á að setja það upp.
  • Það má ekki fara með jóla­tréð beint inn í stofu og setja upp eft­ir að hafa flutt það heim.
  • Þetta bæði við þegar þú hef­ur fellt tréð sjálf/​ur og þegar það er keypt á jólatrjásölum.
  • Lifandi jóla­tré þurfa smá aðlög­un­ar­tíma, rétt eins og svo margt annað sem þarf að venj­ast nýju um­hverfi og svo þarf að hlúa að því.
  • Jóla­tré missa barrið þegar þau þorna. Þess vegna er afar mik­il­vægt að láta tréð standa á svöl­um og rök­um stað, áður en því er stillt upp í stofu.
  • Gott er að láta tréð standa í vatns­fötu með sjóðandi vatni, en fyrst þarf að skera 1-2 sentimetra neðan af því til að það nái að draga í sig vatnið. Sjáið til þess að það sé nóg af vatni í föt­unni allan tímann.
  • Sagið um 5 sentimetra sneið neðan af stofninum svo tréð geti dregið til sín vatn. Vert er að tálga börkinn tálgaður af stofninum 10 sentimetra frá stúfnum.
  • Stingið þessum 10 sm stofnsins niður í sjóðandi vatn í u.þ.b. 10 mínútur og setjið tréð í vatnsfót strax að lokinni suðu. Þessi suðuaðferð á vill öll lifandi jólatré eins og rauðgreni, norðmannsþin og furu.
  • Vatnsfóturinn má aldrei tæmast. Tréð dregur mikið af vatni til sín fyrstu sólarhringana og ef vatnið í fætinum gengur til þurrðar geta loftbólur komist í vökvaæðar stofnsins og tréð getur drepist.

Gleðilega hátíð.

M&H Lifandi jólatré