Klæddi sig upp sem Lil Wayne fyrir óléttumyndatöku

Ciara og Lil Wayne.
Ciara og Lil Wayne. Samsett mynd

Bandaríska R&B söngkonan Ciara var með heldur sérstakt þema í nýafstaðinni óléttumyndatöku, en söngkonan á von á sínu fjórða barni hvað úr hverju. Hún birti myndir og myndskeið úr tökunni á Instagram-reikningi sínum nýverið og vakti þemað mikla athygli. 

Ciara klæddi sig upp sem rapparinn Lil Wayne (e. Weezy) fyrir myndatökuna og var meðal annars með hinn víðfræga tattú-kross sem rapparinn hefur fyrir miðju enni sér. Söngkonan stældi rapparann í klæðaburði og klæddist meðal annars hermannabuxum og hvítum hlýrabol sem hefur lengi verið hans kennimerki. Það sem vakti þó mesta athygli var hárið en Ciara stældi ljósu „dreadlokka“ Lil Wayne. 

„Young Mula Baby,“ skrifaði Ciara við myndirnar, en það er vísun í lag rapparans. 

Ciara á von á sínu þriðja barni með eig­in­manni sín­um, NFL-leik­mann­in­um Rus­sell Wil­son. Söng­kon­an og NFL-leikmaður­inn giftu sig árið 2016 eft­ir tæp­lega eins árs sam­band og eiga þau tvö börn, Siennu, sex ára, og Win, þriggja ára. Ciara á fyr­ir níu ára son, Fut­ure, með fyrr­ver­andi unn­usta sín­um, tón­list­ar­mann­in­um Fut­ure.

View this post on Instagram

A post shared by Ciara (@ciara)

View this post on Instagram

A post shared by Ciara (@ciara)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert