Kryddpían Mel B átti í fimm ára sambandi við konu

Mel B.
Mel B. FRAZER HARRISON

Kryddpían Melanie Brown, jafnan kölluð Mel B, ræddi samband sitt við bandaríska kvikmyndaframleiðandann Christine Crokos í viðtali við tímaritið Attitude á dögunum.

Brown, sem er núna trúlofuð hárgreiðslumanninum Rory McPhee, átti í langtímasambandi við Crokos en því lauk árið 2006. Brown tók saman við Eddie Murphy stuttu eftir sambandsslitin. Samband þeirra entist stutt.

„Ég var og hef ávallt verið mjög opin. Ég varð ástfangin af konu og var með henni í fimm ár. Við tölumst enn við,“ útskýrði Brown. Hún sagðist einnig ekki hafa áhuga á að skilgreina sig sem sam- eða tvíkynhneigða, en hún viðurkenndi að hafa alltaf hrifist af konum. 

Brown greindi frá því árið 2019 að hún hefði stundað kynlíf með Geri Halliwell, eða Ginger Spice. Þau orð hefur hún síðan dregið til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg