Þrír liðsmenn rússnesku rokkhljómsveitarinnar Korrozia Metalla voru handteknir á tónleikum sínum í gær og ákærðir fyrir að sýna nasistamerki.
Liðsmennirnir eru 19, 42 og 57 ára gamlir og eru sakaðir um „áróður eða sýningu á munum og táknum nasista“, að sögn lögreglu í borginni Nijni-Novgorod.
Lögreglumenn handtóku liðsmennina á næturklúbbi í borginni sem er í vesturhluta Rússlands. Stuttermabolir og bækur með merkjum nasista voru gerð upptæk.
Liðsmennirnir eiga von á sekt eða stuttri fangelsisvist.
Maria Rounova, liðskona í hljómsveitinni, tjáði ríkisfjölmiðlinum TASS að táknin sem um ræðir væru „gömul slavnesk merki“.
Á myndum sem deilt var á samfélagsmiðla sjást lögreglumenn ryðjast inn á næturklúbbinn og neyða gesti til þess að leggjast á gólfið.