Kampavínsveggurinn slær í gegn í íslenskum görðum

Kampavínsveggurinn er góður í garðinn.
Kampavínsveggurinn er góður í garðinn.

Það ættu allir að vera með kampavínsvegg í garðinum að mati Björns Jóhannssonar, landslagsarkitekts og garðahönnuðar hjá Urban Beat. Hann mælir einnig með gufubaði, sturtuklefa, geymslu og laufskála í garðinn. Kaldir og heitir pottar eru einnig vinsælir sem og útispa. 

Björn Jóhannsson hefur aðstoðað Íslendinga við að hanna garða sína í fjölda ára.UrbanBeat býður upp á heildræna þjónustu í garðhönnun, allt frá einfaldri ráðgjöf sem unnin er með fyrirtækjum á borð viðBM Vallá ogByko upp í heildarhönnun garða þar sem garðurinn er skoðaður í sýndarveruleika. Öll verkefnin eru útfærð í þrívíðum teikningum og er notast við sýndarveruleika með sömu tækni og notuð er við gerð tölvuleikja.

„Á þessum árstíma er allur kraftur settur í að vinna verkefnin sem hlaðast inn á biðlistana. Ég hef aðeins verið að fjölga fólkinu í kringum mig en grafíski hönnuðurinn minn hún Guðbjörg Björnsdóttir hefur verið hægri höndin mín í að gera verkefnin falleg og spennandi í mörg ár. Ég held að við höfum unnið fyrst saman í kringum árið 1997. Nýjasti meðlimurinn í teyminu er hann Albert Guðmundsson, en hann er tækniteiknari með gríðarlega reynslu sem garðverktaki. Hann var um árabil aðalteiknarinn hjá Steypustöðinni og tók þátt í þróun á vörulínunni þeirra. Svo hafa synir okkar Alberts, þeir Arnór og Gunnar Már, komið sterkir inn sem þrívíddarteiknarar. Það eru því allar árar fyrir borð og róið á fullu.“

Það hefur aldrei verið jafnmikið að gera og núna hjá Birni og eru biðlistar frá tveimur upp í sex mánuði. Það fer eftir umfangi verkefnanna.

„Vonandi verður það til þess að fólk sjái tækifæri til þess að nýta veturinn í hönnunarvinnu og í að semja við verktaka. Þannig má jafnvel koma framkvæmd af stað í byrjun árs og sitja úti í nýjum fallegum garði þegar fyrstu sólargeislar vorsins gægjast inn í hann.“

Garður með öllu. Fallegu útsýni, gufu og góðum palli.
Garður með öllu. Fallegu útsýni, gufu og góðum palli.

Útieldhús vinsæl

Hvað er vinsælt núna að gera þegar kemur að garðinum?

„Skemmtilegasta nýjungin okkar er kampavíns-veggurinn. Sú hugmynd kom upp þegar ég var að vinna í hönnun þakgarðs í Stokkhólmi og við vorum að finna leiðir til að brjóta upp svæðið með veggjum. Þá fór umræðan í hvernig ætti að stilla af hæð og breidd þessara veggja. Niðurstaðan var sú að hæðin sé stillt af þannig að það sé gott að leggja frá sér kampavínsglas og breiddin þannig að platti með snittum komist vel fyrir. Svo höfum við verið að þróa smáhýsi fyrir garðinn en nú er leyfileg stærð þeirra orðin 15 fermetrar. Þau eru ýmist nýtt sem laufskálar, geymslur, gufuböð eða sturtuklefar.

Það er líka algengara að byggja þök yfir bæði útieldhús og verandir. Útispa með heitum potti, köldum potti, sturtu og gufubaði er líka draumur margra. Það sem okkur finnst þó mest spennandi fyrir næstu misseri er kryddjurtabarinn.“

Ertu sjálfur hrifinn af hráu útliti?

„Það hefur alltaf verið stefna hjá mér að vinna með fyrirliggjandi arkitektúr og umhverfi á sem skemmtilegastan hátt. Hrátt útlit passar vel við fúnkisstefnu síðustu tveggja áratuga en ef við erum að vinna með rómantíkina sem spratt fram á níunda áratug síðustu aldar þá viljum við líka svolítið af rómantík í garðinn.“

Björn Jóhannsson hefur gert garða í áratugi.
Björn Jóhannsson hefur gert garða í áratugi.

Að ganga um garðinn áður en hann verður til

Hvað getur þú sagt mér um verkefnin sem þú setur upp í tölvuleikjaforritið?

„Það er alltaf að aukast eftirspurnin eftir nýjustu tækni en allt frá því ég kom úr námi þá hefur það verið stefnan hjá mér að vera leiðandi í grafískum útfærslum á teikningum. Við tókum því upp liti í tölvuteikningum um leið og það var hægt. Þegar þrívíddin var orðin aðgengileg tókum við hana inn og síðustu árin höfum við unnið allt í þrívídd. Til þess að vera áfram leiðandi á þessu sviði, erum við að vinna verkefni í tölvuleikjagæðum. Við tökum gjarnan stærri verkefnin okkar og vinnum þau þannig að hægt sé að ferðast um þau í sýndarveruleika með hjálp þar til gerðra gleraugna. Fyrir viðskiptavininn er það ómetanlegt að geta mátað garðinn þannig og ferðast um hann. Þannig fæst tilfinning fyrir rýmunum og flæði á milli svæða auk þess sem hlutverk gróðursins sem byggingarefnis verður skýrara. Í þessum útfærslum er einnig hægt að stilla sól og skugga miðað við árstíð og tíma dags ásamt því að slökkva og kveikja ljós.“

Gufubað með dásamlegu sjávaraútsýni.
Gufubað með dásamlegu sjávaraútsýni.

Garðar órjúfanlegur hluti hússins

Hvað er það nýjasta þegar kemur að garðinum?

„Ég er ekki viss um að ég vilji segja frá því en það sem við erum að þróa á teikniborðinu núna gæti verið það sem verður heitast eftir nokkur ár. Garðarnir eru að þróast meira og meira í þá átt að verða órjúfanlegur hluti hússins. Þannig eru þök yfir hluta svæða með geislahiturum og þá sérstaklega yfir þeim svæðum þar sem verið er að grilla og snæða. Stór gróðurhús eru að koma sterk inn og þá meira sem stofur heldur en ræktunarsvæði. Rafmagnstenglum og ljósum í görðum hefur fjölgað sem gefur tækifæri til að fara með eldhústækin út og reiða fram alls konar góðgæti. Það sem við erum á fullu að þróa núna er kryddjurtabarinn, en eins og ég sagði þá þurfum við að eiga eitthvað inni fyrir næsta ár að tala um.“

Hvað er klassískt og alltaf vinsælt?

„Það er grágrýti. Ég held að tilhöggið grágrýti sé það efni sem tengir okkur mest við jörðina og einkenni lands og menningar. Flestir þekkja grágrýtið sem steinana sem Alþingishúsið er byggt úr. Það er unnið úr baslatberginu sem liggur undir stórum hluta höfuðborgarsvæðisins. Þetta berg hefur litatóna sem aldrei er hægt að ná fram með tilbúnu efni. Það má nota það í veggi, tröppur, kanta, bekki og jafnvel í að hlaða lítil hús eða skýli.“

Hvernig er þinn eigin garður?

„Minn eigin garður er íslenska hálendið. Þar eyði ég, fótgangandi eða á reiðhjóli, eins miklum tíma og ég mögulega get. Þar er viðhald sem ég þarf að sinna í algjöru lágmarki. Sumrin eru einfaldlega þannig að ég vinn eins og brjálæðingur milli þess sem ég sæki með fjölskyldunni minni í íslenska náttúru til að endurnýja bæði kraft og hugmyndir.“

Það er huggulegt að sitja við opið eldstæði og horfa …
Það er huggulegt að sitja við opið eldstæði og horfa út á hafið.

Hressa garðfólkið vill opinn eld

Er fólk að láta gera eldunarstæði úti í garði fyrir sig?

„Það er ekkert skemmtilegra en að vera með smá lifandi eld í garðinum. Við gerum gjarnan ráð fyrir þeim möguleika á kvöldsvæðunum og reynum að hafa stéttir sem undirlag frekar en timbur. Það er eins aldrei nóg af geymslum þannig að við höfum hannað ýmsar mögulegar og ómögulegar geymslur. Svo hefur tíðkast alveg frá sjöunda ártugnum að vera með fastar innréttingar í görðum. Þar leikur bekkurinn stórt hlutverk. Við höfum verið að þróa þessa bekki lengi og erum nú búin að stilla af bekk sem er í fullkominni hæð með þægilegan halla á baki.“

Hvað gerir það að hafa eldstæði úti að þínu mati?

„Ef maður ætlar að eiga nokkurn möguleika á því að fá Jón Jónsson eða annan góðan trúbador í heimsókn þá verður að vera eldstæði. Þegar sólin er að setjast og loftið kólnar þá er algjör snilld að geta kveikt aðeins upp, dregið fram gítarinn og haldið áfram með fjörið.“

Björn er hrifinn af berjarunnum, kirsuberja- og eplatrjám.

„Svo vil ég benda fólki á að finna góðan stað fyrir eik, beyki, álm og önnur gæðatré sem verða mörg hundruð ára gömul. Það má alveg hugsa líka um næstu kynslóðir.“

Heitur pottur í huggulegu umhverfi.
Heitur pottur í huggulegu umhverfi.

Mikilvægt að byrja snemma

Ertu að lifa drauminn?

„Þegar ég fór og lærði landslagsarkitektúr þá var draumurinn alltaf sá að stofna fyrirtæki sem byði bæði upp á hönnun og framkvæmd í görðum. Þannig gæti ég fylgt verkefnum eftir þar til framkvæmdum væri lokið. Þetta varð aldrei að veruleika en nú hefur Urban Beat tekið höndum saman við Garðaþjónustu Reykjavíkur til að bjóða upp á svona heildarþjónustu. Framkvæmdastjórinn hjá Garðaþjónustunni heitir Eiríkur Garðar Einarsson og vísa ég gjarnan framkvæmdum til hans þannig að hann geti boðið í verkefnið. Ef hann fær svo verkefnið þá er eftirfylgni mín innifalin í tilboðinu hans. Ég mæti þá á vikulega verkfundi og hitti þar iðnaðarmennina, verkstjóra og eigendur til að svara spurningum sem upp koma og til að hnykkja á útfærslum. Stundum þarf að breyta teikningum aðeins og þá er það innifalið í þeirri ráðgjöf. Þannig hef ég tækifæri til að fylgja verkefnum frá hugmynd að veruleika.“

Áttu gott garðaráð?

„Já að gefa sér góðan tíma í að undirbúa garðframkvæmdir. Hið fullkomna ferli er að nota sumarið í rannsóknarvinnu, bóka hönnuðinn um haustið og vera tilbúinn í framkvæmdir um leið og frost fer úr jörðu. Haustið er líka góður tími fyrir framkvæmdir en þá þarf teikning helst að liggja fyrir veturinn áður.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál