Með 126 milljóna króna hálsfesti

Selena Gomez með hálsfesti frá Bulgari.
Selena Gomez með hálsfesti frá Bulgari. AFP

Tónlistarkonan Selena Gomez tryggði að allra augu beindust að henni á Screen Actors Guild verðlaunahátíðinni í gær þegar hún var með hálsfesti sem kostar 126 milljónir króna. 

Hálsfestin er frá skartgripahúsinu Bulgari sem hefur undanfarna mánuði verið duglegt við að lána ungum upprennandi stjörnum skart fyrir stóra viðburði. Leikkonan Zendaya var eftirminnilega með hálsfesti frá skartgripahúsinu á frumsýningu Dune í september á síðasta ári. 

Útlit Selenu Gomez minnti óneitanlega á Audrey Hepburn í Breakfast …
Útlit Selenu Gomez minnti óneitanlega á Audrey Hepburn í Breakfast at Tiffany's. AFP

Gomez geislaði á rauða dreglinum í gærkvöldi í kjól frá Oscar de la Renta. Minnti hún óneitanlega á leikkonuna Audrey Hepburn úr kvikmyndinni Breakfast at Tiffany's. Förðunarmeistari Gomez, Hung Vanngo, sýndi frá undirbúningnum fyrir hátíðina á Instagram og má þar sjá hvernig hann gjörbreytti henni á stuttum tíma. 

Stílisti hennar var Kate Young og Marissa Marino greiddi henni. 

View this post on Instagram

A post shared by Hung Vanngo (@hungvanngo)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál