Lífið

Unnur Birna er ekki búin að leggja fyrirsætuskóna á hilluna

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Unnur Birna er stórglæsileg í nýrri auglýsingaherferð frá Ísey.
Unnur Birna er stórglæsileg í nýrri auglýsingaherferð frá Ísey. Ísey
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir fyrrum Ungfrú Heimur situr fyrir í nýrri auglýsingaherferð fyrir Ísey skyr. Unnur Birna birti myndir frá herferðinni á samfélagsmiðlum í gær og grínaðist með að héraðsdómslögmaðurinn væri ekki búinn að leggja fyrirsætuskóna á hilluna.

„Það eru komin upp skilti einhverstaðar hérna með þessum myndum en þær á mest að nota erlendis,“ segir Unnur Birna í samtali við Vísi.

Unnur Birna er hér fyrir miðju í auglýsingu frá ÍseyÍsey
Unnur Birna var valin Ungfrú Ísland árið 2005 og var svo krýnd Ungfrú Heimur seinna sama ár. Hún hefur ekki tekið að sér mikið af fyrirsætustörfum fyrir utan verkefni fyrir Icelandic Glacial vatn árið 2007 og samstarf við Bláa Lónið árið 2010. Unnur Birna er starfandi héraðsdómslögmaður á Íslensku lögfræðistofunni og hefur verið þar undanfarin ár.


Tengdar fréttir

Þessu tímabili í lífi mínu er lokið

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir skaust hratt fram á sjónarsviðið líkt og flestum er kunnugt. Hún kvaddi sviðsljósið hins vegar jafn hratt og hefur ekki séð eftir því eitt augnablik, enda þykir henni frægðin ekki heillandi fyrirbæri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×