20.02.2013 Views

Garðurinn

Garðurinn

Garðurinn

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Garðagöngur

Garðyrkjufélags

Íslands

sumarið

2009

Garðagöngur sumarsins verða farnar dagana;

27. maí, 10. júní, 24. júní, 22. júlí og

26. Ágúst Gengið er á miðvikudagskvöldum

eins og hefð er komin á og byrja allar göngurnar

kl. 20:00.

Hveragarði 27. maí

Fyrsta ganga sumarsins verður í Hveragerði.

Gengið verður um bæinn, gamlar perlur skoðaðar,

svo sem friðuð tré, gamlir og nýir garðar

og komið við á garðplöntustöðvum. Leiðsögumaður:

Elfa Dögg Þórðardóttir umhverfisfulltrúi.

Mæting við Garðyrkjustöð Ingibjargar,

Heiðmörk 38.

Flóruganga 10. júní

Gengið verður um óbyggða náttúru í landi

Garðabæjar. Leiðsögumaður: Guðríður Helga-

GAR‹YRKJUFÉLAG ÍSLANDS - Maí 2009

dóttir. Mæting við klukkuturninn á Garðatorgi

í Garðabæ.

Þingholtin 24. júní

Gengið um sögufrægar slóðir í Þingholtunum á

Jónsmessu. Á þessu svæði er margt gamalla

garða frá frumdögum íslenskrar garðamenningar

- og ekki síst nokkur gömul tré sem eiga

sér yfirleitt dálitla sögu sem gaman er að rifja

upp. Leiðsögumenn: Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur

og Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.

Mæting í Mæðragarði í Lækjargötu.

Trjásafnið í Meltungu 22. júlí

Gengið verðum um leyndardómsfulla, spennandi

og vel falda trjásafnið í Meltungu í Fossvogsdal.

Leiðsögumenn: Friðrik Baldursson

garðyrkjustjóri Kópavogs og Guðmundar Vern-

www.gardurinn.is

harðsson garðyrkjufræðingur. Mæting í Gróðrarstöðinni

Mörk við Stjörnugróf.

Höfðaskógur 26. ágúst

Trjásafnið í Höfðaskógi var formlega opnað á

50 ára afmæli Skógræktarfélags Hafnarfjarðar

árið 1996. Í safninu eru nú á þriðja hundrað

tegundir trjáa og runna. Rósagarðurinn, sem er

samstarfsverkefni Rósaklúbbs GÍ og Skógræktarfélags

Hafnarfjarðar, var formlega vígður árið

2005. Þar eru nú á annað hundrað yrki af

harðgerðum rósum. Leiðsögumaður: Steinar

Björgvinsson. Mæting í bækistöðvar Skógræktarfélags

Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðvarinnar

Þallar við Kaldárselsveg í Hafnarfirði.

Aftur skal ítrekað að allar garðagöngur sumarsins

hefjast kl 20:00.

Pantaðu Sælureitinn heim þér að kostnaðarlausu

á www.husa.is eða í síma 525 3000.

Einnig er Sælureiturinn fáanlegur í næstu Húsasmiðjuverslun.

2 | GAR‹URINN 2009

Að gleðjast með Garðyrkjufélagi Íslands

Ein afleiðing efnahagshrunsins er

að fólk leitar nú meira í faðm fjölskyldunnar

og þau gömlu og ævarandi

gildi að hlúa að sínum nánustu

og rækta eigin garð. Félagið var á

sínum tíma stofnað í tengslum við

endurreisn Íslands á síðari hluta 19.

aldar og verður 125 ára á næsta ári,

næst elst allra frjálsra, íslenskra félagasamtaka.

Félagið endurnýjaði

stefnu sína fyrir ári og skilgreindi

þau gildi sem það vill byggja starf

sitt á í framtíðinni. Þau sömu gildi

geta einmitt verið þáttur í endurnýjun

sjálfsmyndar Íslendinga eftir

það áfall sem riðið hefur yfir. Félagið

leggur í starfi sínu áherslu á

sköpunargleði, umhyggju, þrautseigju

og forvitni sem aðalsmerki

ræktunarfólks. Þessi gildi koma

Garðagöngur

Garðyrkjufélag

Íslands

sumarið

2009

Garðagöngur sumarsins verða farnar dagana;

27. maí, 10. júní, 24. júní, 22. júlí og 26.

Ágúst Gengið er á miðvikudagskvöldum

eins og hefð er komin á og byrja allar göngurnar

kl. 20:00.

Hveragarði 27. maí

Fyrsta ganga sumarsins verður í Hveragerði.

Gengið verður um bæinn, gamlar perlur skoðaðar,

svo sem friðuð tré, gamlir og nýir garðar

og komið við á garðplöntustöðvum. Leiðsögumaður:

Elfa Dögg Þórðardóttir umhverfisfulltrúi.

Mæting við Garðyrkjustöð Ingibjargar,

Heiðmörk 38.

Flóruganga 10. júní

Gengið verður um óbyggða náttúru í landi

Garðabæjar. Leiðsögumaður: Guðríður Helga-

GAR‹YRKJUFÉLAG ÍSLANDS - Maí 2009

dóttir. Mæting við klukkuturninn á Garðatorgi

í Garðabæ.

Þingholtin 24. júní

Gengið um sögufrægar slóðir í Þingholtunum á

Jónsmessu. Á þessu svæði er margt gamalla

garða frá frumdögum íslenskrar garðamenningar

- og ekki síst nokkur gömul tré sem eiga

sér yfirleitt dálitla sögu sem gaman er að rifja

upp. Leiðsögumenn: Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur

og Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.

Mæting í Mæðragarði í Lækjargötu.

Trjásafnið í Meltungu 22. júlí

Gengið verðum um leyndardómsfulla, spennandi

og vel falda trjásafnið í Meltungu í Fossvogsdal.

Leiðsögumenn: Friðrik Baldursson

garðyrkjustjóri Kópavogs og Guðmundar

www.gardurinn.is

Vernharðsson garðyrkjufræðingur. Mæting í

Gróðrarstöðinni Mörk við Stjörnugróf.

Höfðaskógur 26. ágúst

Trjásafnið í Höfðaskógi var formlega opnað á

50 ára afmæli Skógræktarfélags Hafnarfjarðar

árið 1996. Í safninu eru nú á þriðja hundrað

tegundir trjáa og runna. Rósagarðurinn, sem er

samstarfsverkefni Rósaklúbbs GÍ og Skógræktarfélags

Hafnarfjarðar, var formlega vígður árið

2005. Þar eru nú á annað hundrað yrki af

harðgerðum rósum. Leiðsögumaður: Steinar

Björgvinsson. Mæting í bækistöðvar Skógræktarfélags

Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðvarinnar

Þallar við Kaldárselsveg í Hafnarfirði.

Aftur skal ítrekað að allar garðagöngur sumarsins

hefjast kl 20:00.

Pantaðu Sælureitinn heim þér að kostnaðarlausu

á www.husa.is eða í síma 525 3000.

Einnig er Sælureiturinn fáanlegur í næstu Húsasmiðjuverslun.

Útgefandi: Athygli ehf. í samvinnu vi›

Gar›yrkjufélag Íslands.

Ritstjóri: Valborg Einarsdóttir (ábm).

Umsjón og umbrot: Athygli ehf.

Augl‡singar: Augljós miðlun ehf.

Prent un og dreif ing: Landsprent ehf.

Forsíðumynd: Úr einkagarði félagsmanns.

Ljósm: Árni Kjartansson.

Dreift me› Morg un bla› inu

miðvikudaginn 20. maí 2008.

hvarvetna fram í starfi félagsins.

Um þessar mundir leggur félagið

áherslu á að byggja upp samband

milli ræktunarfólks um land

allt og sameina það um að hlúa að

fegrun í hinu byggða umhverfi og

fjölbreyttu gróðurfari í landinu.

Miklar breytingar eru að verða á

gróðurskilyrðum í landinu með

hlýnandi veðurfari og skjóli af aukinni

skógrækt. Nýir möguleikar

skapast til að rækta tegundir og

yrki sem áður var talið ólíklegt ef

ekki óhugsandi að gætu vaxið hér.

Brautryðjendastarf áhugafólks sem

prófar sig áfram vísar veginn að

betri árangri í ræktuninni. Garðyrkjufélagið

skapar ramma fyrir

samvinnu þessara einstaklinga og

heldur uppi öflugu fræðslustarfi

með fyrirlestrum og starfrækir fjölbreytta

heimsíðu, www.gardurinn.

is til að miðla fróðleik og upplýsingum

milli félagsmanna og til almennings.

Með aðild að Garðyrkjufélagi

Íslands opnast brunnur

þekkingar og reynslu sem orðið

getur uppspretta margra ánægjustunda,

hvort sem er með fjölskyldu

í frístundum eða í hljóðlátri

einveru og íhugun ræktandans sem

hyggur að fjölbreytileika lífsins og

samhljómi sínum við það.

Á vegum félagsins eru starfræktir

fjórir klúbbar; matjurtaklúbbur,

rósaklúbbur, sumarhúsaklúbbur og

blómaskreytingaklúbbur. Þeir

halda uppi margvíslegu sérhæfðu

félags- og fræðslustarfi, hver á sínu

sviði. Matjurtaklúbburinn hefur

orðið afar vinsæll að undanförnu

og í gangi er átak á vegum Garðyrkjufélagsins

til eflingar matjurtarækt

í landinu. Tilraunaverkefni

um svonefnda ,,grenndargarða“ í

nánd við íbúðarhverfi innan borgarlandsins

er komið af stað í samvinnu

við Reykjavíkurborg. Á vegum

rósaklúbbsins er starfræktur

tilraunagarður í landi Skógræktarfélags

Hafnarfjarðar við Hvaleyrarvatn

og í undirbúningi er útgáfa

leiðbeininga um rósir sem eru

Vilhjálmur Lúðvíksson skrifar

Gestir í garði Steinunnar Ólafsdóttur.

Sírenur kunna vel við sig á Íslandi. Íslenskur garður með suðrænum blæ.

harðgerðar við íslenskar aðstæður.

Rósaklúbburinn tekur virkan þátt í

samstarfi norrænna rósafélaga og er

meðlimur í alþjóðasamtökum rósafélaga.

Hann skipuleggur ferðir fyrir

félaga sína á norrænu rósahelgarnar

sem haldnar eru annað hvert

ár, næst í Svíþjóð sumarið 2010.

Vaxandi sumarhúsaeign landsmanna

og stækkandi sumarlönd í

eigu þéttbýlisbúa gefa tilefni til

nýrra viðfangsefna og aukinnar

Moldarblandan Gæðamold ehf,

sem í daglegu tali er nefnt Gæðamold,

var stofnað árið 1991 af

Ingimar Kjartanssyni og Guðmundi

Gíslasyni. Starfsstaður hefur verið

fjölbreytni í ræktun á stærri skala

en áður var. Sumarhúsaklúbburinn

er vettvangur öflugs félagsstarfs

þeirra sem áhuga hafa á ræktun

sumarlanda og skipulagi ræktunar

umhverfis sumarbústaði. Fátt er

skemmtilegra en prófa sig áfram og

láta reyna á hvað vaxið getur ef rétt

er að verki staðið og markvisst

reynt að byggja upp þekkingu og

reynslu.

Hægt er að skrá sig í Garðyrkju-

frá upphafi í Gufunesi. Núverandi

eigendur fyrirtækisins eru Halldór

K. Ingólfsson og Stefán Már Jónsson.

„Við seljum annars vegar grjót-

félagið á heimasíðu félagsins www.

gardurinn.is hvenær sem er. Árgjald

félagsins er einungis 4.800

kr. og með því fylgir ársrit félagsins,

Garðyrkjuritið, fréttabréf og afsláttarkjör

(10%) og ýmis tímabundin

sérkjör í mörgum helstu

garðyrkjuverslunum landsins. Aðildarkjör

eru því afar hagstæð og

gjaldið borgar sig fljótt, beint sem

óbeint.

Gæðamold hf. í Gufunesi:

Hreinsað og harpað

Moldarmenn. Frá vinstri talið, Ingibjörn Halldórsson, Halldór K. Ingólfsson, Guðmundur

H. Stefánsson og Stefán Már Jónsson.

hreinsaða og harpaða mold og hins

vegar svokallaða gæðamold. Uppskrift

hennar er 70% mold og svo

skeljasandur, sandur og húsdýraáburður

– 10% hvert efni um sig.

Við notum mold sem búin er að

brjóta sig í tvö til þrjú ár og sömuleiðis

er húsdýraáburðurinn ámóta

gamall. Þessu er blandað saman og

að því búnu er blandan hörpuð,“

segir Stefán Már.

Helstu viðskiptavinir Gæðamoldar,

utan einstaklinga, eru

sveitarfélög, golfklúbbar og verktakar.

Starfsemin er árstíðabundin.

Opið er maí, júní og júlí frá kl.

8:00 – 19:00 og laugardaga frá kl.

9:00 – 16:00. Síðsumarsopnun er

auglýst síðar.

„Fólk getur komið með kerrur

og mokum við í þær og sömuleiðs

er boðið uppá heimkeyrslu,“ segir

Stefán.

www.mold.is

Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 - www.gardheimar.is

GAR‹URINN 2009 | 3

Allt í garðinn á einum stað!

4 | GAR‹URINN 2009

Kryddjurtir eru mál málanna um

þessar mundir. Sumarið á næsta

leiti og búið að pússa upp öll útigrill

sem fyrirfinnast á heimilum.

Og þeir sem ekki áttu útigrill hafa

margir ráðið bragarbót á því. Sumir

hafa jafnvel yngt upp og endurbætt

hjá sér með nýjum, ryðfríum útigrillum

sem nú eru óðum að leggja

undir sig íslenska markaðinn. Eiginlega

er útigrillið að mestu leyti í

umsjá karlanna á heimilunum.

Matseld á útigrilli er „macho“ og

allt að því heilög karlmennskuathöfn

fyrir suma. En til að undirstrika

karlmennskuna eru kryddjurtirnar

vel til fallnar og eiginlega

nauðsynlegar til að tryggja að athyglin

beinist að því hversu grillarinn

er mikill meistarkokkur, því að

lokahnykkurinn felst í því að gera

sjálfur kryddsmjörið með krásunum.

Og þá er komið að kryddjurtunum.

Þær gera útslagið.

Eiginlega er fátt auðveldara en

að annast nokkrar kryddjurtir utandyra

yfir hásumarið. Hér verður

ekkert tíundað um sáningu og

uppeldi þeirra. Við erum nefnilega

orðin svo heppin að nú fást tilbúnar

kryddjurtir í pottum svo að segja

árið um kring. Og þó svo að eitthvað

af þeim misfarist eða klárist,

er alltaf hægt að bæta í skörðin.

Það eina sem kryddjurtirnar þurfa

er dálítil mold í keri eða pottum og

jafnvel í hvaða dollu sem er - það

má líka nota gömlu vinnuklossana

eða íþróttaskóna undir þær. Bara

þarf að hafa plönturnar á sólríkum

stað og muna eftir að vökva þær

reglulega þegar þurrt er í veðri.

Fallegt og fjölskrúðugt kryddjurtasafn

er róandi og lystaukandi.

Átta ágætar og ein til viðbótar

Á myndina af kryddjurtakerinu

mínu eru settar inn tölur frá 1 til 8

til að benda á helstu kryddjurtirnar

sem þurfa að vera nálægt útigrillinu.

Og reyndar er ein þar til við-

Kryddjurtir í útiker

bótar sem lítið ber enn á innan um

allar hinar, en það er rósmarín sem

einkum er notuð með kálfa- og

lambakjöti. Sömuleiðis í fyllingar í

heilsteikta fiska og fugla. Allar

þessar tegundir henta vel í kryddsmjör

fyrir grillrétti. Ýmist hver

fyrir sig eða tvær til þrjár saman.

Númer 1 er íslenskt blóðberg.

Afar gott sem fylling í vatnafisk og

með ljósu kjöti, lambakjöt þar

meðtalið. Blóðbergste hressir hugann

og hreinsar öndunarfærin.

Númer 2 er grísk kjarrmynta

(órigan). Hún hentar í alla rétti þar

sem ólífur, hvítlaukur og sólþurrkaðir

tómatar koma við sögu. Pasta

og pizzur.

Númer 3 er hjartafró (sítrónumelissa)

sem passar vel með öllum

fiski, einkanlega feitum eins og

lúðu og steinbít. Dálítið hrjúf í

góm, en fínsöxuð gerir hún sitt fyrir

grænmetissalatið. Te af hjartafró

er gamalreyndur kvefbani og þar

að auki mjög ljúffengt.

Piparmynta er svo númer 4.

Frískandi ein og sér. Söxuð (nokkrir

hnefar af laufum) í matvinnsluvél

með einu eða tveim eplum og

„smakkað til“ með fáeinum dropum

af eplaediki og einum desilítra

af vatni og hlynsírópi til helminga,

gerir sósu sem borin er fram með

lambakjöti. Verður jákvæð lífsreynsla

fyrir alla sem reyna fá og

enginn gleymir að skrásetja í æviminningar

sínar! Það má jafnvel

gera enn betur undir haustið og

bæta nokkrum reyniberjum við og

bera þá fram með hreindýrakjöti.

Og ef um steikingarvökva af kjötinu

er að ræða, má gera úr þessu

heita sósu með því að píska hann

samanvið og hita snöggt í potti.

Sítrónutimían hefur töluna 5.

Það styrkir alla kjúklinga- og fiskrétti

sem framreiddir eru að hætti

mannfólksins við Miðjarðarhaf.

Keimurinn af því breytir dumbungsdögum

í dýrðardaga með sól-

Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı www.reykjavik.is/fer

Texti og mynd: Hafsteinn Hafliðason

Fallegt og fjölskrúðugt kryddjurtasafn er róandi og lystaukandi.

blik í hverjum daggardropa.

Sléttblaða steinselja hlaut númer

6 í þessari rásröð. Hún gefur þunga

í létta rétti. Styður við og styrkir

bragð af nautakjöti. Skapar jafnvægi

í grænmetissalatið. Hefur

Tökum vel

á móti sumrinu

Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í borginni eftir veturinn

og taka á móti vorinu með bros á vör. Reykjavíkurborg mun í ár ekki fjarlægja garðúrgang og

greinaafklippur sem skilin eru eftir við lóðamörk. Kallað er eftir auknu frumkvæði og ábyrgð borgarbúa

og vakin athygli á því að endurvinnslustöðvar Sorpu taka við 2 rúmetrum í hverri ferð af garðaúrgangi

og greinaafklippum frá íbúum að kostnaðarlausu.

Hvetjum til dáða með eigin frumkvæði.

Með því að hreinsa rusl, snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til hendinni.

Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan girðingar, við næsta göngustíg eða á nálægu útivistarsvæði.

Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega samveru. Notum hugmyndaflugið

og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.

Nánari upplýsingar á reykjavik.is/fer og í síma 411 1111.

sætara bragð en hrokkin steinselja.

Saxið steinseljuna smátt.

Garðablóðberg (timían) er númer

7. Það setur punktinn yfir i-ið í

öllum kjötréttum, hvítum sem

rauðum. Fiskisúpa án garðablóðbergs

er eins og bók án kjalar. Ekki

er það heldur síðra að sáldra

nokkrum timíanlaufum ofan á hóflega

þykkar sneiðar af sólþroskuðum

bufftómötum. Garðablóðbergið

hleypir galsa í grænmetissalötin.

Það er hitandi og örvar blóðrás.

Hrokkin steinselja rekur hér

lestina með tölunni 8. Bragð hennar

er ögn beiskara en á sléttblöðkunni.

Hún er líka dökkgrænni. Að

öðru leyti eru þær notaðar og meðhöndlaðar

á sama hátt. Það er gömul

viska að steinselja dregur úr

andremmu og linar timburmenn.

Kryddsmjör og aðferðir

Hér er reiknað með að kryddjurtirnar

séu notaðar ferskar. Meðhöndlunin

felst í því að nota bara

blöðin, enga stöngla. Saxa smátt og

sáldra yfir réttina eða í grænmetissalötin.

Þær eiga aldrei að sjóða.

Einnig er heimsins minnsti vandi

að búa til kryddsmjör úr fínsöxuðum

kryddjurtum og smjöri. Þessu

er blandað saman. Smjörið við

stofuhita, sparið ekki kyddjurtirnar.

Rúllið blöndunni í hæfilega

sverar og langar rúllur og kælið í

nokkrar klukkustundir. Þá er auðvelt

að skera þær niður mátulega

þykka klatta sem svo eru bornir

fram til veislunnar. Gjarna í skál

með klakahröngli.

Veistu?

Hæsta tré jarðar er talið vera douglasgreni (Pseudotsuga menziesii) en

það mælist 123 m á hæð. Næst hæsta tréð er talið vera rauðviður

(Sequoia sempervirens) sem hefur mælst um 112 metrar.

Elsta tré í heimi var talið vera í Sequola eða Sequoia þjóðgarðinum í

Kaliforníu. Tréð, sem er Wellingtonia , er talið 3000 ára gamalt og vegur

um 2000 tonn. Tréð er rúmir 90 metrar á hæð og ummálið 27 metrar.

Síðan fannst annað tré sem talið er vera 4600 ára gamalt sem er

broddfura (Pinus longavea). Þetta tré er í Hvítufjöllum í Kaliforníu.

Elsta rósin er talin vera Hildesheim rósin í Þýskalandi, sem er í

kirkjugarðinum við dómkirkjuna í Hildesheim. Sagan segir að Karl

mikli (Karlamagnús) hafi gróðursett rósina fyrir meira en 1000 árum

síðan, en rannsóknir benda til þess að rósin sé um 400 ára.

Þyngsta skráða grasker í heimi vóg rúm 220 kg. R.A. Butcher frá

Hampshire í Bretlandi ræktaði graskerið árið 1984. Lengsta gulrót

sem mælst hefur var rúmir 42 cm.

Fyrsti skrúðgarður sem sögur fara af er frá árinu 1545 í Padua á

Ítalíu.

Elsti frælisti sem vitað er um var „Blóm í 12 mánuði“ sem var útgefinn

árið 1730 af Garðyrkjustöð Roberts Fuber í Bretlandi.

EXPO · www.expo.is

Vnr. 0058325

Pallaefni

Fura alheflað 27x120 mm

A-gagnvarið.

299kr./lm

Ódýrt

Vnr. 0058504

Pallaefni

Fura alheflað 45x95 mm

A-gagnvarið.

315kr./lm

Sláttuvélarnar

komnar

Allt fyrir

Vnr. 0058506

Pallaefni

Fura alheflað 45x145 mm

A-gagnvarið.

479kr./lm

eKKerT VerKeFni

viðhaldið

er OF sTórT

32.900

eðA lÍTið!

Vnr. 53323164

Sláttuvél

Pallaefni

á betra verði

Ódýrt

Bensínsláttuvélar verð frá:

Warrior sláttuvél með fjórgengis

loftkældum mótor. Vélin er 3,75 hestöfl,

stillanleg sláttuhæð 15-70 mm,

sláttubreidd 45 cm.

Vnr. 0291509

Gróðurbraggi

Gróðurbraggi, 80x120.

Íslensk framleiðsla, selt

samsett. Fæst í BYKO Breidd,

Kauptúni og Granda.

11.990

Vnr. 55095007/107-8

Blákorn

Blákorn 5, 10 eða 40 kg.

Vnr. 55090005

Kalk

GAR‹URINN 2009 | 5

Turbokalk, 12,5 kg.

1.290 1.990

Verð

frá

197kr./

lm.

Ódýrt

Vnr. 0058254

Girðingaefni

19.990

Fura alheflað 22x95 mm

A-gagnvarið.

Ódýrt

Vnr. 0291499

Vinnuborð

óli vinnuborð

í garðinn

120x150x60 cm.

Íslensk framleiðsla,

selt samsett. Fæst

í BYKO Breidd,

Kauptúni og

Granda.

Vnr. 55095001

Graskorn

Graskorn, 5 kg.

1.290

6 | GAR‹URINN 2009

Grjóthleðslur

á Íslandi

Guðjón Stefán Kristinsson

skrúðgarðyrkjumaður skrifar

Grjóthleðslur á Íslandi eru býsna

margbreytilegar ef vel er að gáð.

Hér verður drepið á helstu gerðum

hleðslna og reynt að sýna blæbrigðamun

eftir landshlutum.

Við Ísafjarðardjúp bera þær svip

af hlöðnum mannvirkjum í Skotlandi,

Írlandi og skosku eyjunum.

Við sjávarsíðuna sjást hvarvetna

tóftir af verbúðum, hlöðnum úr

sæbörðu grjóti og hellum í bland.

Þessar hleðslur eru einkennandi

fyrir Ísafjarðardjúp. Eru þær margar

hverjar staðarprýði og augnayndi

þeim er á horfa.

Undir Eyjafjöllunum brúkuðu

bændur móbergið til húsbygginga

og hjuggu það til af miklu listfengi.

Sunnlendingar og Reyknesingar

notuðu hraunstrendinga og hellur

til húsbygginga, í garðveggi o.fl.

Krefst það reynslu og útsjónarsemi

að hlaða úr sæbörðu grjóti svo vel

út líti.

Hraungrjót hefur þann kost að

bíta sig vel saman og er álagsþolið í

jarðhræringum.

Grjót og strengur (snidda einnig)

er þægilegt til vegghleðslu þar

sem ekki er hægt að velja grjót að

vild. Grjót-og strengveggir verða

harla sterkir þegar grasrót hefur

náð að festa sig vel í sessi, auk þess

að vera rammíslensk hleðsla.

Mannvirki draga oft dám af umhverfi

sínu. Litlibær í Skötufirði er

glöggt dæmi um það. Veggir eru

hlaðnir úr hellugrjóti, en í Skötufirði

er vart að finna annað en

hellugrjót.

Grjótið er endalaus uppspetta

hugmynda og hægt er að smíða

nánast hvað sem er úr því. Rómverjar

til forna byggðu brýr og

Kirkjugarðsveggur og tröppur í Búrfelli í Grímsnesi, hlaðinn úr hraunstrendingum.

Skjólveggur með bekk við Elliðaárbæinn, hlaðinn úr grjóti og

streng.

Steinbogabrú í Áslandi í Hafnarfirði.

vatnsveitur úr tilhöggnu grjóti.

Vantar þá töluvert á að steinbogabrýrnar

í Hafnafirði jafnist á við

þau mannvirki að stærð og miki-

„Allt sem gefur ávöxt er vinsælt

meðal garðyrkjufólks þetta árið.

Minn stóri og góði hópur viðskiptavina

spyr þetta vorið mikið

um epla- og kirsuberjatré sem eru

auðveldari í ræktun en margur ætlar.

Sömuleiðis eru margir að fikra

sig áfram við ræktun runnategunda

sem gefa til dæmis sól-, rifs- og

stikilsber. Tískan í garðræktinni er

ólík frá einu ári til annars en rauði

þráðurinn nú virðist vera sá að fólk

vill búa að sínu og stunda heimaræktun,“

segir Ingibjörg Sigmundsdóttir,

garðyrkjubóndi í Hveragerði.

Um þessar mundir eru liðin 28

ár síðan Ingibjörg og Hreinn Kristófersson,

eiginmaður hennar, hófu

rekstur gróðrastöðvar í Hveragerði.

Þá tóku þau við keflinu af foreldrum

Ingibjargar, þeim Sigmundi

Guðmunssyni og Kristínu Jónsdóttur

sem rekið höfðu stöðina frá

1954. Sagan nær því langt aftur.

fengleik, en notast er við samskonar

verklag.

Af íslenskum bergtegundum er

hraun og grágrýti, ásamt móbergi,

Áhuginn í arf

„Hér birtast sömu andlitin á hverju

vori; fólk sem ég tel til ágætra vina

minna. Í dag er þetta raunar oft

þannig að ömnur og afar koma

hingað með barnabörnunum sem

þá hafa tekið áhuga á garðrækt í

arf. Þetta sannar með áþreifanlegum

hætti að lífið heldur alltaf

áfram. Ein birtingarmynd þeirra

þrenginga sem þjóðin gengur nú í

gegnum er að áhugi almennings á

garðyrkju- og ræktunarstörfum

virðist sjaldan meiri. Margir virðast

til dæmis ætla sé að vera heima í

sumar og dytta að sínu – hvort sem

það er í sumarbústaðnum, á svölunum

heima eða annarsstaðar. Og

þetta fólk veit að hjá okkur fæst allt

sem þarf í garðinn svo sem tré,

runnar, rósir ogfjölær blóm auk

sumarblóma og matjurta,“ segir

Ingibjörg.

Hleðsla úr grjóti og hellum í Ósvör í Bolungarvík.

Litlibær í Skötufirði. Ljósm.Oddur Jónsson.

auðveldast að vinna við og móta.

Hægt er að leika sér á ýmsa vegu

með þetta efni.

„Fólk vill búa að sínu og stunda heimaræktun,“ segir Ingibjörg Sigmundsdóttir, garðyrkjubóndi í Hveragerði.

Garðyrkjustöð Ingibjargar í Hveragerði:

Allt sem ávöxt gefur

Átthyrndur skáli

Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

er að Heiðmörk 38 í

Hveragerði og er garðplöntusalan í

skálabyggingunni átthyrndu sem

margir þekkja. „Í fyrrahaust ákvað

ég að leggja talsverða áherslu á

framleiðslu matjurtategunda fyrir

þetta sumar; til dæmis kál-, salatog

jarðarberjaplantna. Fólk vill í

vaxandi mæli frekar eiga sinn eigin

garð en fá forrækaðar plöntur. Svo

er ég líka með sumarblóm, mikinn

fjölda tegunda í öllum regnbogans

litlum. Raunar hefur fjölbreytnin í

íslenskri garðblómaframleiðslu

aukist mikið í seinni tíð – og þá

flóru ætlum við garðplöntuframleiðendur

að kynna á sýningunni

Blóm í bæ sem haldin verður hér í

Hveragerði í næsta mánuði.“

www.ingibjorg.is

TBWA\REYKJAVÍK \ SÍA

TILEFNI TIL AÐ FLAGGA

Forsteyptur sökkull fylgir

Glæsilegt tilboð!

Formenta-fánastöng,

íslenski fáninn og sökkull

· Fislétt, fellanleg glertrefjastöng (ekkert viðhald)

· 6 metra stöng vegur aðeins 23 kg

· Gylltur húnn setur svip á stöngina

· Snúningsfótur svo fáninn snúist síður utan um stöngina

· Stönginni fylgir fáni, fánalína, línufesting, stangarkúla (húnn),

forsteyptur sökkull og festingar

GAR‹URINN 2009 | 7

www.ellingsen.is

6 m stöng 74.900 kr. 7 m stöng 79.900 kr. 8 m stöng 84.900 kr.

REYKJAVÍK

Fiskislóð 1 • Sími 580 8500

Opið mánud.–föstud. 10–18, laugard. 10–16

AKUREYRI

Tryggvabraut 1–3 • Sími 460 3630

Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16

8 | GAR‹URINN 2009

Vatnskristallar auðvelda ræktun í pottum

Ræktun sumarblóma, fjölæringa,

runna og jafnvel matjurta í blómakerjum

gerir innganginn heim að

húsinu hlýlegri og notalegra er að

dvelja á pallinum þar sem gróður í

kerjum prýðir umhverfið. Ræktun í

pottum og kerjum hefur vafist fyrir

mörgum. Algengt er að of litlir

pottar séu valdir, en mun hærra og

jafnara rakastig helst í stórum pottum.

Vindþurrkun er mun meiri en

við gerum ráð fyrir, það rignir

minna ofan í pottana en við höldum

og þannig er ekki óalgengt að

dýru plönturnar, sem keyptar voru

í pottana, drepist allar á meðan eigendurnir

fara í sumarfrí. Leyndarmálið

við ræktun í pottum og kerjum

er að nota almennt mun stærri

ker og potta og að nota vatnskristalla

í moldina, en með því móti er

hægt að vökva meira í einu og mun

sjaldnar.

Hvað eru vatnskristallar?

Vatnskristallar eru náttúrulegt

vatnsbindiefni. Þegar þeir eru þurrir

minna þeir eilítið á gróft matarsalt

við fyrstu sýn, en þegar þeir

mettast af vatni, margfalda þeir

stærð sína og bólgna út. Plönturnar

nýta síðan vatnsforða kristallanna,

þannig að þeir rýrna aftur. Þannig

hafa plönturnar stöðugan aðgang

að vatni, en vatn er ein helsta næring

allra plantna. Hægt er að nota

vatnskristallana þurra og strá þeim

í moldina undir rót plöntunnar,

hvort sem er í pottinn eða í holuna

í garðinum áður en gróðursett er.

Séu vatnskristallarnir notaðir þurrir,

þarf að fylgja þeim eftir með

reglulegri vökvun fyrsta hálfa mánuðinn

á eftir eða á meðan kristallarnir

eru að þenjast út.

Besta virknin næst hins vegar

með því að metta kristallana af

vatni áður en þeir eru notaðir, þ.e.

setja u.þ.b. 1 tsk. af kristöllum út í

1 lítra af vatni og þá draga þeir í sig

vatnið. Miðað við uppgefna

skammtastærð á umbúðum er þetta

magn ætlað í u.þ.b. 30 cm víðan

blómapott. Reynslan hefur kennt

mér að nota vel fullan tappa af

kristöllum í fulla skúringarfötu af

heitu vatni. Þegar vatnið er orðið

kalt, er fatan orðin full af mettuðum

kristöllum sem eru tilbúnir til

notkunar. Ástæðurnar fyrir því að

betra er að nota kristallana mettaða

eru helst tvær. Í fyrsta lagi koma

þeir strax að fullum notum og í

öðru lagi er mun meiri hætta á ofnotkun

á þurrum kristöllum,

þannig að þegar þeir mettast og

bólgna út þá flæðir allt upp úr

pottunum þar sem ekki var gert

ráð fyrir rúmmálsaukningunni í

upphafi.

Vatnsþörf plantna er ærið misjöfn

eftir tegundum, staðsetningu

og aðstæðum. Það hefur reynst mér

ágætlega að nota kristallana á

Nokkuð á annað hundrað aðilar

taka þátt í garðyrkju- og blómasýningunni

Blóm í bæ sem haldin

verður í Hveragerði 26. til 28. júní

sumar. Undirbúningur sýningarinnar

hefur staðið yfir allt frá liðnu

hausti og er mikið lagt undir. Stórsýning

af þessu tagi hefur raunar

aldrei verið haldin áður hér á landi.

Á sýningunni í Hveragerði verður

fjöldi áhugaverðra viðburða þar

sem garðyrkja og umhverfismál eru

í deiglunni. „Okkar metnaður hefur

staðið til þess að gefa sem allra

flestum kost á að vera með enda er

þátttökugjaldi stillt í hóf. Þannig

verður garðyrkju- og blómabændur

með sölu- og sýningabása hjá okkur

en einnig handverksfólk og fleiri.

Áhuginn er mikill,“ segir Elfa Dögg

Þórðardóttir, mannvirkja- og umhverfisfulltrúi

Hveragerðisbæjar.

Skrúðgarður og Skólamörk

Garðyrkju- og blómasýningar eru

velþekktar erlendis. Hvergerðingar

reikna með minnst 30 þúsund

gestum á sýninguna í júní. Bendir

Elfa Dögg þar á, að ekki sé nema

hálfrar stundar akstur úr Reykjavík

austur fyrir fjall, í blómabæinn sem

svo er gjarnan nefndur. Aðgangur

að sýningunni verður ókeypis

Valborg Einarsdóttir skrifar

Uppleystir kristallarnir margfalda stærð sína þegar þeir mettast af vatni. Aðeins þarf 1 tsk. í 1 lítir af vatni.

drykkfelldustu stofublómin og þeir

eru ómissandi á öll sumarblóm og í

til ræktunar í kerum og pottum.

Kristöllunum er blandað saman við

Sýningarsvæðið í Hveragerði

verður þrískipt. Fyrst skal tiltaka

um 10.000 fermetra útisvæði í

skrúðgarði bæjarins á Varmárbökkum

sem hentar vel þeim sem sýna

stærri hluti líkt og gróðurhús og

minni garðyrkjuvélar. Við Skólamörk

er markaðssvæði þar sem

verða garðyrkju-, handverks-, umhverfis-

og matvælatjöld. Í þriðja

og síðasta lagi skal svo nefna innisvæði

í íþróttahúsi Hvergerðinga.

Því verður skipt upp í bása og

hentar vel þeim sem sýna og selja

viðkvæmari hluti. Blómaskreytar

bjóða fram þjónustu sína við uppröðun

og skreytingar á básum.

Fyrir alla fjölskylduna

Dagskrá sýningarinnar er sérstaklega

metnaðarfull og markar ráðstefnan

Íslensk garðlist, sem haldin

verður föstudaginn 26. júní, upphaf

hennar. Af öðrum dagskrárliðum

má nefna að til stendur að setja

heimsmet í gerð lengstu blóma-

moldina við rætur plöntunnar og

ágætt er að blanda þörungaáburði í

fljótandi formi saman við kristallana.

Þannig er hægt að nota þá við

Stórsýningin Blóm í bæ í Hveragerði í næsta mánuði:

skreytingar heims. Eins verður

keppt í því að útbúa sérstaklega

frumlegar skreytingar og sýningarbása

og þannig mætti áfram telja.

Þá verður keppt í hönnun smágarða,

samsetningu blóma í kerum

og fleira. Á sýningunni sjálfri má

svo kynna sér sögu íslenskrar garðyrkju,

sjá afskorin blóm, pottaplöntur

og fleira.

„Við leggjum mikið upp úr því

að dagskráin höfði til allrar fjölskyldunnar.

Verðum þess vegna

hér með sérstaka dagskrá fyrir

yngstu kynslóðina og einnig eru

hér ágæt tjaldsvæði fyrir fólk sem

vill dveljast í Hveragerði meðan á

þessum skemmtilega viðburði

stendur,“ segir Elfa Dögg.

Rækta eigin garð

Hveragerðisbær stendur að sýningunni

en er þar í samstarfi við fjölmarga

aðila svo sem Samband

garðyrkjubænda, Landbúnaðarháskóla

Íslands að Reykjum í Ölfusi,

gróðursetningu í einkagarða, sumarhúsalóðir

og jafnvel hafa þeir

reynst vel undir túnþökurnar.

Vatnskristallar eru einnig frábær

og auðveld lausn til að nota í

blómaskreytingar við ýmis tækifæri

þegar mikið stendur til. Eftir að

þeir eru mettaðir má setja lit út í þá

til að undirstrika þemað í veislunni.

Þannig njóta afskorin blóm

sín mjög vel í glervösum með

vatnskristöllum. Hins vegar ber að

taka vara fyrir því að þess háttar

skreytingar standa skemur og eru

meira ætlaðar fyrir einstakan atburð.

Afskorin blóm ná ekki að

taka upp allt það vatn sem þau

þurfa við þessar aðstæður því loftbólur

myndast í stönglum blómana

sem styttir vasalíf þeirra.

Rétt notkun á kristöllum við

ýmsar aðstæður léttir garðyrkjumanninum

lífið á meðan hann

skreppur í frí og gleður drykkfelldu

plönturnar á heitum sumardögum.

Blómaskreyting heimsins

„Dagskráin höfði til allrar fjölskyldunnar,“ segir Elfa Dögg Þórðardóttir, mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar.

Félag íslenskra landslagsarkitekta,

Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Félag

blómaskreyta, Steypustöðina,

Landsvirkjun og Garðyrkjufélag Íslands

sem og undirdeildir þess.

„Ég skynja stóraukinn áhuga almennings

á garðyrkju. Efnahagshrunið

síðasta haust hefur víða haft

áhrif, fólk vill rækta sinn eigin garð

í bestu merkingu þeirra orða. Við

hjá Hveragerðisbæ bjóðum fólki til

dæmis upp á leigja sér matjurtagarða

og áhuginn er mikill. Hér í

bæ eru sömuleiðis margar gróðrastöðvar.

Hér eru til dæmis allmargir

aðilar sem eru umsvifamiklir í

garðplönturæktun. Þá eru Dvalarheimilið

Ás, Heilsustofnun Náttúrulækningafélags

Íslands og Landbúnaðarháskólinn

með mikla ræktunarstarfsemi

og raunar tel ég

Hveragerði aftur að ná fyrri sess

sem sannkallaður garðyrkju- og

blómabær.

www.hveragerdi.is

GAR‹URINN 2009 | 9

10 | GAR‹URINN 2009

Haustlaukarnir gleðja

augað að vori

Íslendinga bíður mikið og

skemmtilegt viðfangsefni að láta

reyna á hvaða tegundir og yrki

haustlauka geta vaxið hér á landi.

Haustlaukar eru nefndir svo vegna

þess að þeir eru settir niður að

hausti, þá skjóta þeir rótum í rökum

og svölum jarðveginum áður

en vetur gengur í garð. Um leið og

klaka leysir úr jörðu að vori skjóta

þeir upp kollinum og blómstra

jafnan fyrstir blómjurta. Stór hluti

slíkra lauka er svo harðger að þeir

lifa af íslenska vetur og þola rysjótt

veðurfar á vorin með ágætum. Þeir

eru gjarnan ættaðir úr háfjöllum

meginlanda Asíu og Evrópu og gera

Vilhjálmur Lúðvíksson skrifar

jafnan litlar kröfur til jarðvegs annarra

en að vatn liggi ekki langdvölum

á þeim og að jörð sé vel framræst.

Þeir þola flestir vorfrost,

þurrk og kuldatíð en kunna að

meta vörn gegn hörðum vindum. Á

sólardögum breiða þeir svo blómin

út í óviðjafnanlegum skærum litum

þegar allur annar gróður er enn í

hjúpi vetrargrámans. Sendinn jarðvegur

er æskilegur og má auðveldlega

veita laukunum þá ósk við

gróðursetningu. Þannig geta þeir

enst í áratugi á sama stað, endurnýjað

sig og breiðst út þar sem

skilyrði eru góð.

Fátt er skemmtilegra í fyrstu

Norrænir gestir dást að rósinni ‘Fönn’ sem blómstar fram í september.

ferðum í sumarbústaðinn snemma

vors en að hitta glaðbeitta krókusa

á hlaðinu og páskaliljur af öllum

hugsanlegum gerðum og litum hér

og þar í vorskóginum um það leyti

sem hann er farinn að laufgast.

Smáliljur af ýmsum gerðum og litum

hafa reynst frábærlega vel hér á

landi og blómstra þær ár eftir ár.

Mikið úrval tegunda og yrkja er til

og hafa stóru garðvöruverslanirnar

jafnan haft mikið úrval á haustin.

Auk þess reynir Garðyrkjufélagið

að útvega það nýjasta hverju sinni

og miðlar jafnfram reynslu af því

sem vel tekst til. Meðlimir fá að

fylgjast með og hafa áhrif á úrvalið.

Hellur frá Steypustöðinni hafa nú

fengið CE vottun en hún tryggir að

varan er framleidd samkvæmt

hæstu gæðastöðlum. Vottun af

þessu tagi hefur ekki áður verið

samþykkt fyrir íslenska hellufram-

Skógarþristur á góðum degi.

Hvítur vorkrókus.

Páskliljur í vorskóginum. Blár vorkrókus.

Hellusteypa Steypustöðvarinnar:

Níðsterkar gæðahellur

leiðslu. „Þetta er afar mikilvægt

fyrir okkur og ekki síður fyrir neytendur.

Við höfum alltaf vitað að

framleiðslan okkar er mjög góð.

Nú geta okkar viðskiptavinir treyst

því að þeir eru að kaupa 100%

gæðavöru,“ segir Kai Westphal,

gæðastjóri hjá Steypustöðinni.

Segja má að hellur Steypustöðvarinnar

séu sérhannaðar fyrir íslenskt

umhverfi. Mikið veðrunarálag

og grófgerð nagladekk bifreiða

hefur leitt til þeirrar hönnunar sem

nú hefur hlotið CE vottunina. Efsta

lag hellunnar er úr graníti og tryggir

endingu sem er meiri en íslenski

markaðurinn hefur átt að venjast.

Hellur Steypustöðvarinnar halda lit

sínum betur og dökkna síður með

árunum. Yfirborðslag hellunnar er

einnig firnasterkt og tryggir lengri

endingu.

Hannes Sigurgeirsson er forstjóri

Steypustöðvarinnar. Hann

segir CE vottunina af ánægjulega

og mikilvæga. „Við höfum alltaf

verið stoltir af okkar framleiðslu en

með CE vottuninni er grunnurinn

lagður og hann er sambærilegur

við það sem gerist best í heiminum.

Með granítinu tryggjum við líka

ótrúlega góða endingu enda leggur

fólk ekki hellur til nokkurra ára.

Fjárfesting í hellum er langtímafjárfesting,“

segir Hannes.

Viðskiptavinum Steyðustöðvarinnar

stendur til boða að fá ráðleggingar

og sérfræðiálit frá landslagshönnuðum.

Greitt er fyrir þessa

ráðgjöf, en ef viðskiptavinur kaupir

hellur af Steypustöðinni er ráðgjöfin

endurgreidd.

www.steypustodin.is

Hellur Steypustöðvarinnar eru sérhannaðar fyrir íslenskt umhverfi.

GAR‹URINN 2009 | 11

12 | GAR‹URINN 2009

Hugleiðingar um skipulag í matjurtagarði

Það er svo skrítið hvað kartöflurnar

úr matjurtagarðinum heima bragðast

miklu betur en kartöflur sem

keyptar eru hjá kaupmanninum á

horninu. Það er yndislegt að sýsla í

sínum eigin matjurtagarði og enn

betra ef garðurinn er vel skipulagður.

Margir halda að matjurtagarðurinn

eigi heima í norðurskotinu í

garðinum þar sem engrar eða lítillar

sólar nýtur, afgangspláss sem

hægt er að nýta til að pota niður

kartöfluútsæði og nokkrum kálplöntum.

Það væri gaman að vita

hver uppskeran er í þess konar

görðum! Matjurtir þurfa jafn mikla

sól og aðrar plöntur, ekki er einungis

um skugga af húsum að ræða

heldur einnig skuggi af trjám sem

einnig „stela“ vatni og næringarefnum

frá matjurtunum. Ég hef það

einhvern veginn á tilfinningunni að

með því að velja matjurtagarðinum

stað þar sem hann ekki sést út um

stofugluggann þá séu garðeigendur

að „fela“ þessar plöntur en leggja

þess meiri áherslu á skrautrunna

og sumarblóm. Í mínum huga eru

matjurtir oft skrautlegri og

skemmtilegri plöntur og ekki verra

að þær eru ætar og ég skil ekki af

hverju þeim er ekki gert hærra

undir höfði. Velhirtan matjurtagarð

þarf ekki að fela og þegar tegundum

fjölgar sem hægt er að rækta

hérlendis og fólk prófar sig meira

og meira áfram verður fjölbreytileikinn

í blaðlögun, lit og áferð

meiri og fegurðin eykst, sannkallað

augnayndi og hverjum garði mikil

prýði. Á hverju vori þegar ég á leið

um gróðrarstöðvar tek ég eftir því

að úrvalið í matjurtadeildinni er

fjölbreyttara en árið áður, því er

einnig að þakka hinum góða sýningareit

Grasagarðsins í Laugardal

sem sýnir að það er hægt að rækta

meira en kartöflur, blómkál og rófur

á Íslandi. Sól og skjól eru aðalverkfærin

og svo spilar þolinmæði

ræktandans stórt hlutverk.

Algengasta tegundin af matjurtagörðum

eru beð með

gangrennum á milli, ræktunarbeðin

eru um 90-120 sm á breidd.

Hugsa verður til þess að rýmið í

gangrennunum sé nægjanlegt til að

geta athafnað sig, best er að

gangrennurnar séu lagðar hellum,

grús eða jafnvel trjákurli. Það er

snyrtilegra og gerir alla viðhaldsvinnu

í beðunum auðveldari. Ekki

er gott að hafa ræktunarbeðin of

ÍSLENSKA SIA.IS SFG 42040 04.2008

breið, betra er að hafa beðin mjó

enda auðveldar það aðkomu að

plöntunum. Margir kjósa að útbúa

ramma í kringum beðin og hækka

þau eilítið upp sem er af því góða

því jarðvegurinn hlýnar fyrr. Matjurtagarðurinn

verður þrifalegri

þegar búið er að ramma inn beðin

og setja grús eða hellur í gangrennurnar,

auk þess sem það er auðveldara

að koma fyrir bogum í

karmana til að setja plast/trefjadúk

yfir.

En það er ekki nauðsynlegt að

útbúa heilan matjurtagarð til að

koma niður karöfluútsæði eða

blómkálshausum. Þegar ég var að

vinna í garðyrkjunni fyrir nokkrum

árum þá var ég eitt sinn stödd við

hjúkrunarheimili hér í borg þar

sem við vorum að setja niður sumarblóm

í beð. Eldri maður sem

þarna bjó, kom til okkar og bað

okkur vinsamlegast að setja ekki

niður blóm í beð við íbúð hans,

hann fór með okkur og með stafnum

sínum merkti hann í beðið

„bannsvæðið“. Við urðum nokkuð

hissa og spurðum hvers vegna

hann vildi ekki fá blómin, jú

ástæðan var sú að hann var nýbúin

að setja niður nokkrar kartöflur!

Það fer vel á því að blanda saman

matjurtum inn á milli skrautrunna

og sumarblóma, hafa verður þó í

huga að skrautrunnar skyggi ekki á

matjurtirnar og þær gera einnig

meiri kröfur til jarðvegs, áburðargjafar

og vökvunar. Hægt er að

Ásta Camilla Gylfadóttir skrifar

Matjurtagarður sem grunnskólanemendur hönnuðu, sýningarreitur á Hampton Court sýningunni.

Hér er að líta sérstaka útfærslu á „ræktunarkeri“, búið að stafla upp dekkjum,

sýningarreitur á Hampton Court sýningunni.

skipuleggja beðin í garðinum á

þann hátt að það er vitað fyrirfram

að í ákveðin svæði í blómabeðinu

eiga að koma matjurtir og með því

móti er hægt að undirbúa jarðveginn

sérstaklega þar. Enn og aftur

má minnast á að margar tegundir

matjurta eru mjög fallegar á að líta

og geta verið mjög til prýðis í

Hunang er mikið notað til matargerðar

og fátt er notalegra á köldum

vetrarkvöldum en gott te með

hunangi. Ralf Trylla umhverfisfulltrúi

Ísafjarðarbæjar sendi okkur

þessa skemmtilegu uppskrift af

hunangi sem búið er til úr blómum

túnfífla.

Fíflahunang

500 gr af fíflablómum

1 kg sykur (hrásykur er hollari og

gefur dekkri lit)

½ sítiróna

• Skolið fíflana og setjið þá í 1

lítra af köldu vatni og látið

standa í 2 klst.

• Sjóðið síðan vatnið með fíflablómunum

og kælið hægt niður.

• Hafið lokið á pottinum og látið

standa yfir nótt, u.þ.b. 12 tíma.

• Síið vökvann frá blómunum í

gegnum grisju eða viskastykki.

• Setjið 1 kíló af sykri og ½ síti-

blóma- og runnabeðum.

Það hefur einnig færst í vöxt

undanfarin ár að rækta matjurtir í

kerum og pottum, þetta hentar

mjög vel þeim sem eru með litla

garða eða svalir. Það fer eftir ræktandanum

hversu stór potturinn eða

kerið er en maður verður að hafa í

huga að stærð á potti og plöntu

rónu með safa og aldinkjöti út í

vatnið.

• Sjóðið í stutta stund og látið síðan

malla á vægum hita þar til

sírópið fer að þykkna, en það

gæti tekið nokkurn tíma.

fylgist að. Maður hefur séð þá útfærslu

hjá fólki að vera með stór

plastker þar sem í komast nokkur

stykki af matjurtum af ýmsum tegundum.

Nauðsynlegt er að hugsa

til þess að setja ekki saman stórar

og litlar plöntur í sama pott þar

sem þær stóru geta skyggt á þær

minni, einnig þarf að muna að

snúa pottunum reglulega ef þeir

standa við vegg þannig að sólin nái

til allra plantnanna í pottinum. Að

lokum má benda á að potturinn

má ekki vera það stór að þegar búið

er að fylla hann ræktunarmold,

plöntur komnar í hann og vökvun

hefur átt sér stað, að það sé hægt

að flytja hann til án þess að ræktandinn

endi í rúminu með tognun

í baki!

Ég hef mikinn áhuga á aðgengi

fyrir alla og vil gjarnan minnast á

þann þátt í matjurtaræktun. Hægt

er að skipuleggja matjurtagarðinn

þannig að beðin séu útbúin á þann

hátt að einstaklingar, sem háðir eru

hjólastól, geti notið þess að stunda

sína ræktun. Beðin eru upphækkuð

og gangar á milli eru með föstu yfirborðsefni

og nægjanlega breiðir

þannig að auðvelt er að fara á milli

beða. Þessi útfærsla hentar einnig

þeim sem eru sjónskertir og eldri

borgurum sem vilja síður þurfa að

bogra á hnjánum í beðunum. Þegar

ræktunarbeð eru byggð upp í þessa

hæð er nauðsynlegt að muna eftir

því að leggja í botninn grófar trjágreinar

til að stuðla að betra frárennsli

og að vera með gat á karminum

á endum til að auka loftun í

beðinu. Annars bendi ég á mér

fróðari garðyrkjumenn sem luma á

bestu uppskrift á jarðvegssamsetningu

í slík uppbyggð beð.

Ég er á því að allir eigi að geta

stundað matjurtaræktun – og að

það eru til ýmsar útfærslur á matjurtagörðum.

Það er hins vegar

hugmyndaflugið hjá ræktandanum

sem er besta verkfærið og að þora

að prófa eitthvað nýtt. Það eru til

allskonar lausnir, til dæmis er hægt

að rækta beint í moldarpoka! Maður

verður bara að muna að maður

lærir best af mistökum og engin

verður meistari í ræktun á einu

sumri.

Góðar óskir um skemmtilegar

stundir í matjurtaræktunni.

Það er ekkert fíflalegt við túnfífla!

Það er algjört góðverk að nýta blóm túnfíflana til hunangsgerðar. Ljósm.: Hafsteinn Hafliðason.

• Til að reyna á rétt seigjustig, er

smávegis sett í teskeið og síðan

látið kólna.

• Að lokum er hunangið sett í

hreinar krukkur. Geymist í allt

að átta mánuði.

SUMAROPNUN

OPIÐ ALLA DAGA TIL

21:00

Í SKÚTUVOGI

GAR‹URINN 2009 | 13

VERUM SAMAN Í SUMAR

HUGAÐU AÐ ÞÍNUM SÆLUREIT

14 | GAR‹URINN 2009

Hver þekkir ekki það vandamál í

einkagarðinum sínum að vera

endalaust að færa til plöntur,

klippa niður tré og runna eða velta

fyrir sér að færa matjurtagarðinn.

Besta leiðin til að komast út úr því

ástandi er að vera með framtíðarsýn

fyrir garðinn; vita hvert stefnir

og staðsetja hluti á endanlegan

stað. Gott er að fá í lið með sér fagmann

til þessa að hanna einkagarðinn

frá grunni, en landslagsarkitektar

hafa sinnt þessum verkefnum

á Íslandi frá árinu 1953 þegar

fyrsti landslagsarkitektinn kom úr

námi. Að hanna einkagarðinn er

samstarf og best er að velja ráðgjafann

af góðri afspurn.

Það er mikilvægt að gera sér

strax grein fyrir því hvernig maður

vill nota garðinn sinn. Oft er gott

að skoða bækur og lesa sér til. Bók

sem fjallar um einkagarð letingjans

er fróðleg lesning og fjallar um það

hvernig hægt er að útfæra garðinn

sinn til að auðvelda viðhald eða til

að skapa notalegan sælureit. Fæstir

hafa það sem ástríðu að njóta þessa

að vinna í garðinum og hugsa um

hann, en það eru nokkur atriði sem

er mikilvægt að ákveða strax frá

upphafi til að garðurinn henti

hverjum og einum. Garðurinn getur

verið mikilvægur til að slaka á

og endurnærast, njóta eða upplifa.

Upplifunarþátturinn getur verið

mismunandi og fyrir ólíka hópa.

Það er mikilvægt að garðurinn sé

ekki uppspretta að endalausu viðhaldi,

heldur þarf að vera hægt að

njóta þess að vera í garðinum og

upplifa þar ólíka hluti, eins og

áferð eða ilm af plöntum, vatnsnið

eða fuglasöng úr trjánum. Það er

einnig mikilvægt að gera sér grein

fyrir hringrás garðsins þannig að

árstíðirnar, notagildið, upplifunin

og rómantíkin fái notið sín.

Aðstæður eru oft mjög breytilegar

og óskir garðeigandans mjög

ólíkar. Það er lykilatriði að skoða

aðstæður og forsendur þegar lagt er

af stað. Ef garðurinn er gamall og

gróinn, er mikilvægt að kortleggja

núverandi aðstæður í garðinum,

átta sig á því sem mikilvægt er að

varðveita og hvað er hægt að fjarlægja.

Ef um nýjan garð er að ræða

er allar forsendur einfaldari, en

jafnframt mikilvægara að skoða

möguleika á að skapa skjólríkt og

aðlaðandi umhverfi. Í gömlum og

grónum görðum eru fólgin mikil

gæði þar sem ekki þarf að búa til

skjól. Það er mikilvægt að grisja

trjágróður til að fá meiri sól inn í

garðinn, til að geta notið hans betur.

Endurbætur á grónum garði

eru oft tímafrekari og fleiri þættir

sem þarf að vega og meta en í nýjum

garði.

En hvað hefur einkennt íslenska

Gott er að fá í lið með sér fagmann til þess að hanna einkagarðinn frá grunni.

Einkagarðurinn

einkagarðinn á síðustu árum? Hann

er fullur af timburpöllum og skjólveggjum,

steyptum stoðveggjum,

húsgögnum, gashiturum og sólhlífum.

En er þetta það sem við erum

Hermann Georg Gunnlaugsson, landslagsarkitekt skrifar

Fallegur garður er róandi og endurnærandi fyrir líkama og sál.

að leita að í dag? Er ekki mikilvægara

að hafa garðinn aðeins einfaldari

í sniðum, en þó með ólíkum og

fjölbreytilegri svæðum. Það sem er

kannski það mikilvægasta er að að-

Öllum er hollt að rækta

garðinn sinn og bæinn sinn

Njótum útivistarsvæðanna og göngum vel um

Garðyrkjustjóri

Kópavogs

gengið að garðinum sé gott og það

séu mismunandi leiðir út í garðinn,

þ.e. úr stofunni til að nota veröndina,

úr eldhúsinu til að klippa

krydd, sækja uppskeru úr matjurtagarðinum

og fara með eitthvað

í safnhauginn. Einnig er gott að

hafa möguleika á að komast út frá

baðherberginu eða svefnherberginu

til að viðra sig eða til að komast í

heita pottinn. Núna eru eflaust

margir að velta fyrir sér eigin ræktun

og þá verður að staðsetja hana á

sólríkum stað til að ná hámarks árangri.

Það er til dæmis hentugt að

hækka jarðveginn með timburkössum,

þannig má auðvelda alla vinnu

Aðgengi að garðinum þarf að vera gott.

í garðinum og bæta vaxtarskilyrðin.

En hver er framtíðarsýnin fyrir

einkagarðinn? Hvaða stefnu mun

einkagarðurinn taka á næstu árum?

Það fer ört vaxandi víða erlendis að

vinna með náttúru og heilsu, læknandi

umhverfi og sálarró. Það verður

örugglega lögð meiri áhersla á

að rækta garðinn sinn á þann hátt.

Einkagarðurinn er hluti af ákveðinni

hringrás og við munum án efa

leita aftur í gamla klausturgarðinn,

þar sem hægt er að stunda andlega

íhugun, komast frá amstri dagsins,

rækta matjurtir og endurhlaða lífsorkuna.

Harðgerð

og örugg

Texti og mynd: Hafsteinn Hafliðason

Vinsælustu sumarblóm hér á landi

hafa lengst af verið þau sem spjara

sig í öllum sumarveðrum og láta

lítið á sjá þótt mikið rigni og gusti

um, þegar sá gállinn er á „sumarblíðunni“

okkar. Fyrstar og fremstar

fara þar stjúpurnar með alla sína

liti og takmarkalausu þolinmæði á

dyntótta rysjutíð. Áratug eftir áratug

hafa þær staðið sína plikt og

eru í hugum margra helsta sumartáknið.

Skrautnálin er líka sterk og

ómótstæðileg sem brydding á beðum

og fylling í blómaker. Blómin

eru hvítir, bláleitir eða rauðleitir

smákrossar sem þekja plönturnar

og ilma sætlega á kvöldin. Önnur

ilmjurt er sjálfur ilmskúfurinn sem

fyllir loftið höfgri angan sinni og

ber hvít, rauðblá eða bleik blóm,

oftast fagurlega fyllt. Eins og smárósir

raða þau sér upp í þétta „bolluvendi“.

Mjög virðingarverð og vingjarnleg.

Meðal harðgerðu sumarblómanna

eru líka margar tegundir

af körfublómaættinni. Þar eru mjög

áberandi „brár“ af ýmsum toga og

með ýmiskonar blómalitum. Kornblómið

heiðbláa er líka í þeim hópi

og síðast en ekki síst okkar yndislega

morgunfrú.

EINN, TVEIR OG ÞRÍR 21.519

Morgunfrúin - matróna með

mikla sögu

Morgunfrúin hefur verið í ræktun

frá alda öðli. Framan af fyrst og

fremst sem matjurt og lækningajurt.

Uppruni hennar er við norðanvert

Miðjarðarhaf og hið latneska

heiti hennar Calendula er ævafornt

og mun merkja að hana megi sjá

þar í blóma árið um kring. Viðurnefnið

officinalis bendir svo til þess

að hún hafi verið - og er reyndar

enn - í lyfjaskápum apótekanna.

Græðimátur plöntunnar er rómaður

og í hillum náttúrulækningabúðanna

mjá sjá ótal preparöt sem

byggð eru á morgunfrúm í öllum

formum. Rómverjar hinir fornu

kölluðu morgunfrúna herba purificatoria,

þ.e. jurt hreinsunarinnar.

Hún þótti allra meina bót við meltingartruflunum

og uppákomum

innvortis. Líklega hafa þeir líka

iðulega átt við slíkt ástand að stríða

eins og matarvenjum þeirra var

háttað, einkum meðal heldra fólks.

En morgunfrú má nota í hrásalat,

bæði blöð og blóm. Bragðið er milt

og mýkjandi. Seyði af morgunfrú

dregur úr sviða og flýtir fyrir því að

smáskeinur á hörundi grói. Blóm

Morgunfrú má nota í hrásalat, bæði blöð og blóm.

morgunfrúar eru ætíð á gula og

gullinrauða sviðinu, eins og sólin

sjálf. Ýmist eru þau alfyllt eða einkrýnd.

Til eru bæði lágvaxnar og

hávaxnar sortir. Ýmsar sagnir og

átrúnaður tengist blómum morgunfrúa.

Það var til dæmis alveg

óbrigðult ráð að láta dapurt fólk

horfa á morgunfrúarblóm til að það

fengi gleði sína á ný. Og þeir sem

voru sjónlitlir áttu líka að stara á

morgunfrúr um nokkra hríð til að

styrkja sjónina. En svo voru það

þeir sem vildu læra að skilja fuglamál.

Til þess þurftu þeir bara að

ganga á morgunfrúarblómum heilan

dag frá sólarupprás til sólarlags.

Ekki mátti út af stíga á annað kusk,

ekki drekka og ekki nærast. Svo

varð að hugsa allt fallegt og ekki

mátti mæla á nokkurn mann. Ef

ekki tókst til eins og skyldi, var það

af því að viðkomandi voru ekki

hreinar meyjar. Það gilti um bæði

kyn!

Stutt og laggott um sumarblóm

Sumarblóm njóta sín best á áberandi

stöðum þar sem flestir geta

glaðst við að horfa á þau. Það

skemmir ekki fyrir að staðurinn sér

sólríkur og skjólgóður. Moldin þarf

samt alltaf að vera úrvalsgóð garðmold,

og það er ekki gott að rækta

sömu tegundir á sama stað í sömu

mold ár eftir ár. Skiptið um reglulega,

annað hvort um jarðveg eða

plöntutegundir. Við langvarandi

ræktun einnar tegundar á einum

stað myndast s.k. jarðvegsþreyta,

Tvær grænar leiðir

Gámaþjónustan hf býður nú þjónustu við garðeigendur á

höfuðborgarsvæðinu á söfnun garðaúrgangs með

tveimur mismunandi leiðum, Garðapoka og Garðatunnu.

Gardatunnan.is

Garðaúrgangur

að sama marki!

Garðapokinn er veglegur og traustur plastpoki fyrir garðaúrgang. Þeir eru seldir

5 stk. í pakka og er hirðing pokanna ásamt innihaldi innifalið í verði. Þú pantar

Garðapokann á www.gardapokinn.is, færð staðfestingu á pöntun og við

sendum þér síðan pokana heim.

Þegar þú pantar hirðingu á pokunum ferðu inn á www.gardapokinn.is

og fyllir út beiðni. Einnig er hægt að hringja í síma 535 2520 og

panta hirðingu. Í báðum tilfellum verða pokarnir sóttir samkvæmt

áætlun sem hægt er að sjá á heimasíðunni.

Garðatunnan er 240 lítra tunna sem íbúar gerast áskrifendur að.

Þú pantar Garðatunnuna á www.gardatunnan.is, fyllir út

beiðni og tunnan verður send til þín. Hún er losuð á

tveggja vikna fresti yfir sumarmánuðina og er hægt að

sjá losunardaga á www.gardatunnan.is.

Garðapokinn.is

Þjónusta fyrir græna fingur

Í pokann má eingöngu

fara garðaúrgangur!

Fyllið út beiðni á www.gardapokinn.is

eða hringið í síma 535 2520

og pokinn verður sóttur.

Þjónustan gildir á höfuðborgarsvæðinu.

Gardatunnan.is Gardapokinn.is

Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími: 535 2520 • gamar@gamar.is • www.gamar.is

GAR‹URINN 2009 | 15

sem stafar að því að margvíslegar

örverur, kvillar og smákvikindi,

sem hverri tegund tengjast, safnast

upp og geta magnað árásir á hana.

Þess vegna er gott að rjúfa hringinn.

Helst með því að láta enga

hringrás myndast og hafa alltaf þrjú

ár á milli ræktunartímabila hverrar

tegundar á hverjum stað. Plantið

hóflega þétt í beðin. Góð regla er

að hafa bilið á milli plantnanna um

það bil helming af uppgefinni hæð

þeirra. Gefið áburð fyrir útplöntun,

u.þ.b. 30 grömm af alhliða garðáburði

á hvern fermetra. Eftir því

sem því verður við komið er gott

að klippa burt öll „útblómguð“

blóm. Það tefur tilhneiginguna til

fræmyndunar og örvar blómgunina.

16 | GAR‹URINN 2009

Vistvæn nálgun við skipulag frístundalóða

Marga dreymir um að eiga frístundahús

þar sem unnt er að hvílast

fjarri daglegum störfum og öðlast

innra jafnvægi, en færri gera sér

grein fyrir þeirri vinnu sem liggur

að baki vel skipulagðrar frístundalóðar.

Frístundabyggð er skipulagsskyld,

bæði hverfi og stakir bústaðir.

Á deiliskipulagsuppdrætti og í

greinargerð, sem honum á að

fylgja, kemur ekki aðeins fram lega,

stærð og mörk lóðar, heldur líka

aðkoma, byggingarreitur, lagnir og

náttúru- og menningarminjar. Eins

sérstakar kvaðir ef einhverjar eru.

Gott skipulag og fyrirhyggja í umhverfismálum

eykur að flestra mati

lífsgæði og vellíðan manna. Einstaklingsþarfir

geta verið töluvert

ólíkar og því er gott að byrja á að

setja saman gátlista yfir þarfir og

óskir þeirra sem nota munu lóðina.

Skemmtilegt verkefni fyrir fjölskyldu

sem fengið hefur frístundalóð

er að byrja á því að skrá og

skilgreina einkenni og anda staðarins

og með því skilja og skynja betur

hvað hann hefur upp á að

bjóða.

Síðan hefst vinna við sjálft

skipulag lóðarinnar Eftirfarandi er

listi yfir 15 atriði sem hafa má til

hliðsjónar:

Aðkoma að frístundalóð skiptir

miklu máli og svæði sem liggja

meðfram aðkomuvegi þurfa að vera

aðlaðandi. Reyna þarf að takmarka

notkun hverskonar girðinga. Sé

ekki um vörn gegn sauðfé að ræða

eru þær almennt óþarfar. Eignarmörk

er hægt að sýna á annan og

meira aðlaðandi hátt t.d. með

gróðri, stakstæðum trjám eða runnum,

hleðslubrotum eða björgum.

Hægt að leggja heimtraðir á

marga vegu en tvær aðferðir eru algengastar:

a) trjágöng eftir beinni

eða lítillega sveigðri línu og b)

veglagning sem fylgir legu landsins.

Þegar seinni aðferðinni er beitt er

vegurinn gjarnan þræddur í gegnum

mismunandi gróðursvæði og

bústaðurinn oft látinn sjást í fjarska

frá hliði en síðan haldið „leyndum“

uns komið er að honum. Efnisval

og form hliða og heimtraða þarf að

undirstrika anda staðarins og gefa

til kynna í stærðarhlutföllum, lögun

og efnisvali að hér sé um einkaveg

að ræða.

Kristín Þorleifsdóttir Ph.D., landslagsarkitekt FÍLA

Vorkoman í sumarbústaðnum. Ljósm.: Vilhjálmur Lúðvíksson.

Svæðið framan við bústað ásamt

verönd og aðalinngangi er faðmur

staðarins þar sem tekið er á móti

vinum og þeir kvaddir. Þar á bíllinn

ekki að vera í aðalhlutverki.

Gott er að geta keyrt upp að bústaðnum

með aðföng en bílastæði

ættu að vera fjær, helst í hvarfi frá

bústaðnum.

Sól- og skjólríkar verandir næst

bústaðnum eru mest notuðu staðirnir

á lóðinni og því er mikilvægt

að vanda vel til þeirra. Samspil

inni- og útirýma er afar mikilvægt

og bæði bústað og lóð þarf að

hanna með það í huga. Mikilvægt

er að gefa sér góðan tíma við val á

stað fyrir baðaðstöðu s.s. heitum

potti huga að þáttum eins og útsýni,

sýnileika frá bústað, skjólmyndun

o.fl. Eins þarf að fylgja

vandlega öryggisatriðum byggingarreglugerðar.

Oftast er baðaðstaða

höfð við sólverönd en pottur staðsettur

lengra frá bústað í fallegum

gróðurreit getur einnig haft mikið

aðdráttarafl.

Leiksvæði barna er allt það sem

er í göngufæri frá bústaðnum! Börn

fá nóg af skipulögðu starfi og stöðluðum

leiktækjum í daglegu lífi og

því þarf frístundalóðin að vera ævintýrastaður

fyrir frjálsan og skapandi

leik og sjálfsuppgötvun.

Ákjósanlegast er að slík svæði bjóði

upp á óformleg og náttúruleg „leiktæki“,

staði til að grafa skurði,

byggja tréhús, leynistaði, virki, bú

og svo mætti áfram telja. Slegnar

grasflatir hvetja til boltaleikja og

hópleikja en þar er einnig hægt að

slá upp garðveislu eða tjaldbúðum!

Börn sækja einnig mikið í opin óslegin

svæði. Á hörðum yfirborðsflötum

t.d. plani eða veröndum

geta krakkar brallað margt t.d.

sippað, farið í snú-snú, parís og

boltaleiki. Öll börn sækja í vatn og

geta dundað sér tímunum saman

við lækjarsprænu eða tjörn. Á veturna

eru eru sleðabrekkur og sléttar

flatir til að búa til snjóhús og

snjókarla einnig mikilvægar.

Vandasamt er að skipuleggja

gróðursetningu því byggja þarf á

niðurstöðum landslagsgreiningar.

Skipulagsmistök koma yfirleitt ekki

í ljós fyrr en mörgum árum seinna.

Fjölbreyttur gróður á sólríkum stað. Ljósm.: Vilhjálmur Lúðvíksson.

Vetrarstemning í frístundalandi. Ljósm.: Vilhjálmur Lúðvíksson.

Draumstaðurinn áður en hafist er handa.

Hugsa þarf um lóðina bæði sem

eina heild og hluta af stærra vistkerfi.

Hver einasta planta gegnir

ákveðnu hlutverki í heildinni t.d.

að fegra, afmarka, mynda skjól,

skerma fyrir útsýni, laða að fugla o.

s.frv. Við gróðursetningu þarf að

velja tegundir sem henta jarðveginum.

Leitast skal við að halda jafnvægi

í umhverfinu með því að virða

náttúruleg einkenni svæðisins. Rétt

er að huga að stæðilegum skógarlundum

framtíðar í hæfilegri fjarlægð

frá bústaðnum. Ekki er skynsamlegt

að gróðursetja tré sem eiga

eftir að verða hávaxin og umfangsmikil

of nálægt bústaðnum eða

gegnt suðri við svæði þar sem njóta

á sólskinsstunda í framtíðinni.

Gott er að huga að rýmismyndun

svæða, opnunum, lokunum,

skuggamyndunum, árstíðabrigðum,

mismunandi áferð, mismunandi

litum, litablöndun og lögun.

Á skipulagsteikningu þarf að teikna

trjágróður inn miðað við meðalstærð

fullvaxinnar trjákrónu. Þannig

er hægt að gera sér betur grein fyrir

umfangi einstakra trjáa, þéttleika

gróðursvæða, fjölda plantna og

grisjun.

Vernda þarf og stuðla að líffræðilegri

fjölbreytni eins og frekast

er unnt og forðast að skerða frekar

votlendi og birkiskóga. Ólík gróðursvæði

laða að mismunandi fuglategundir.

Opin svæði með lágvöxnum

gróðri henta mófuglum t.d.

hrossagauk, stelki, þúfutittlingi og

heiðlóu. Sígræn tré laða að smáfugla

t.d. þresti, auðnutittlinga og

glókolla sem leita sér þar skjóls,

fæðu og hreiðurstaða. Birki og

reyniviður skapa einnig góð skilyrði

fyrir smáfugla. Auk þess sækja

margar fuglategundir í berjarunna.

Skjólmyndun er mikilvæg fyrir

ræktun þar sem meðalhiti getur

verið um tveimur gráðum hærri í

skjóli en á berangri. Einnig safnast

meiri snjór í skjóli en hann veitir

gróðri vernd í vetrarhörkum. Auk

hefðbundinna skjólbelta má nýta

landslag sem fyrir er eða móta

skjólgefandi hæðir og ýmis mannvirki

t.d. hús, skjólgrindur eða

veggi. Skjólbelti eru ræktuð þvert á

vindátt, um 1 m frá skurðbakka,

1,5 m frá girðingu og ekki of nálægt

byggingum og vegum. Þau á

að staðsetja áveðursmegin við

byggingar en í góðri fjarlægð frá

þeim þar sem snjósöfnunar gætir

hlésmegin. Almennt er mælt með

2-3 laga skjólbeltum og allar vindþolnar,

hraðvaxta og harðgerðar

Andi staðar er mikilvægur. Ljósm.: Vilhjálmur Lúðvíksson.

plöntur henta til skjólbeltagerðar.

Gott er að blanda saman mismunandi

gerðum og misháum en verja

þarf sígrænan gróður fyrir vindum,

skafrenningi og sól fyrstu árin.

Matjurtagarða þarf að staðsetja á

sólríkum og skjólgóðum stöðum.

Minni garðar til daglegrar notkunar

þurfa að vera nálægt bústaðnum,

það hvetur til notkunar og auðveldar

umhirðu og vökvun. Stærri

garðar t.d. kál- og kartöflugarðar

geta verið fjær og er þá gjarnan gert

ráð fyrir jarðhýsi í námunda við

garðana. Safnhaugar eða kassar til

jarðvegsgerðar þurfa að vera við

matjurtagarða og garðskúrar fyrir

verkfæri. Gróðurhús þarf að staðsetja

á sólríkum stöðum, fjarlægð

frá bústað fer eftir ætlaðri notkun.

Útsýni yfir athyglisvert landslag

nær og fjær skiptir flesta miklu.

Þegar hugað er að sjónlínum er

ágætt að „ramma“ útsýnið inn t.d.

útsýni yfir garð úr svefnherbergi,

gosbrunn fyrir enda heimtraðar eða

landslag í fjarska. Sjónvíddin getur

ýmist verið þröng eða víð og sjónsviðið

nær eða fjær. Hugsanlega

getur einnig þurft að gera breytingar

til þess að opna fyrir áhugaverðar

sjónlínur. Útsýnisstaðir eru

mönnum og dýrum mikilvægir og

tengist það eflaust eðlislægri tilfinningu

fyrir yfirráðasvæði. Einnig

þarf að tryggja að ekki verði gróðursett

tré sem byrgja munu fyrir

mikilvægt útsýni frá vistarverum.

Stundum þarf að skerma fyrir truflandi

landslagsþætti eða auka friðhelgi

einkalífsins með því að setja

upp hindranir.

Gott skipulag stíga og flæðis um

lóð er lykilatriði í velheppnaðri frístundalóð.

Stígar geta verið mismunandi

að gerð og veita aðgengi

að stöðum innan sem utan lóðar.

Það virðist vera í eðli mannsins að

vilja frekar ganga í hringi en fram

og til baka. Ef leiðin um landið á

að vera ánægjuleg þarf að vanda vel

til við hönnun stíga. Huga þarf að

rýmismyndun, yfirborðsefnum,

uppgötvunum, sjónlínum út frá

stígum og áhugaverðum stökum.

Stígar vísa veginn og þar sem fólk

fer sjaldnast út af stíg gagnast þeir

vel þar sem vernda þarf viðkvæman

gróður eða jarðmyndanir.

Í verandir, göngustíga,

heimtraðir og skilrúm er æskilegt

að nota endurnýtt eða endurnýtanleg

efni, endingargóð og viðhaldslítil

efni, efni án eiturefna, efni sem

stinga ekki í stúf við umhverfið og

efni sem endurkasta ekki ljósi.

Nota þarf staðbundin byggingarefni

eins og frekast er unnt og varðveita

skemmtilegar íslenskar hefðir t.d.

með notkun hlaðinna garða og

torfveggja. Gott er að hugsa um

lögun efnisins, áferð, liti, mynstur

og samspil þessara þátta þar sem

efni getur haft töluverð áhrif á

vellíðan. Þannig er gróðurgrænn

litur í svefnherbergjum talinn hafa

róandi áhrif en slík áhrif hafa einnig

lækjarniður, snark frá varðeldi á

sumarkvöldi, það að róta í hlýrri

mold eða lykta af angandi rósum.

Leitast skal við að halda lýsingu

í lágmarki þar sem lýsing skerðir

ýmis önnur eftirsóknarverð gæði

s.s. stjörnuskoðun og tunglskin.

Lágstemmd lýsing á stöku stað getur

einnig gefið útivistarverum hlýlegan

blæ og aukið öryggi t.d. þar

sem mismunandi yfirborðsfletir

skarast eða misfellur eru í yfirborði.

Margvísleg stök eru vinsæl á frístundalóðum

og ekki er mögulegt

að fjalla um þau öll. Hugleiða má

notkun flaggstangar, gosbrunna,

lækjarsprænu, útilistaverka, skjólveggja,

bekkja og borða, blómapotta

og standa. Einnig skiptir máli

staðsetning geymsluskúra fyrir

Vorið kallar á þig í Fornalundi

Nú er tími vorverkanna

Fyrstu skrefin að sælureit fjölskyldunnar liggja í Fornalund.

Landslagsarkitekt okkar aðstoðar þig við að breyta garðinum

þínum í sannkallaðan sælureit.

Hringdu í síma 412 5050 og fáðu tíma í ráðgjöf hjá landslagsarkitekt okkar.

Opið hús hjá BM Vallá 23. maí um land allt.

Söludeild :: Breiðhöfða 3 :: Sími: 412 5050

GAR‹URINN 2009 | 17

verkfæri, byggingarefni og vélar,

annarskonar smáhýsi og sorpgeymslu.

Margir hafa einnig gaman

af því að elda utanhúss og er því

ekki úr vegi að gera ráð fyrir útieldhúsi,

grilli, eldstæði eða hlóðum

í hæfilegri fjarlægð frá bústað.

Ljóst er að áhugaverður og aðlaðandi

staðarandi verður ekki

keyptur í verðlistum heldur byggir

fyrst og fremst á þekkingu á og

virðingu fyrir staðháttum, þekkingu

á þörfum þeirra sem koma til

með að nota svæðið og frjórri og

skapandi hugsun.

Greinin er stytt. Hægt er að lesa

alla greinina inn á heimasíðu Garðyrkjufélags

Íslands www.gardurinn.is

undir hnappnum fróðleikur.

bmvalla.is

18 | GAR‹URINN 2009

Garðyrkjufélag Íslands

Garðyrkjufélag Íslands er félag

áhugamanna um garðyrkju og umhverfismál.

Georg Schierbeck landlæknir

var aðal hvatamaður að

stofnun Garðyrkjufélagsins og útgáfu

Garðyrkjuritsins sem hefur

komið úr nær óslitið frá árinu

1895. Frá upphafi hefur markmið

félagsins verið að efla og auka garðyrkju,

ræktun og nýtingu plantna

og svo er enn.

Georg Schierbeck var einn helsti

frumkvöðull trjáræktar í Reykjavík.

Árið 1883 fékk hann Víkurkirkjugarð

til umráða, sem hann breytti í

skrúðgarð. Í garði hans á horni Aðalstrætis

og Kirkjustrætis stendur

enn gamli stóri silfurreynirinn, sem

hann gróðursetti. Hann stofnaði

Hið Íslenska Garðyrkjufélag 26.

maí árið 1885 og er félagið því eitt

af elstu starfandi félögum landsins

og það elsta á sviði umhverfismála.

Það má segja að Schierbeck hafi

borið heilsu þjóðarinnar fyrir

brjósti. Í boðsbréfi vegna stofnunar

félagsins í apríl 1885 segir orðrétt:

„... og skal mark og mið félags

þessa vera að efla og styðja garðyrkju

hér á landi yfir höfuð, en

fyrst um sinn mun félagið einkum

binda sig við það, að styðja ræktun

venjulegra garðávaxta og nokkurra

fóðurjurta sem að mestum notum

geta komið hér á landi svo sem eru:

kálrapi, turnips, kartöflur og fáeinar

aðrar.“ Segja má að bylting hafi

orðið í ræktun landsmanna á þessum

124 árum þó svo að ræktunarmenning

þjóðarinnar sé mjög ung í

samanburði við aðrar þjóðir.

Kostir þess að vera félagsmaður

Garðyrkjufélagið heldur úti öflugri

heimasíðu www.gardurinn.is með

fréttum og fróðleik. Heimasíða félagsins

er einnig vettvangur til

skoðanaskipta meðal félagsmanna,

en þar geta nýir félagar skráð sig í

félagið. Kostir þess að vera félagsmaður

eru margvíslegir.

Árlega gefur félagið út veglegt

rit sem allir félagsmenn fá sent og

Valborg Einarsdóttir skrifar

Fagleg

þjónusta

er innifalið í félagsgjaldinu. Auk

þess er plöntuskiptadagur á vorin,

skipulagðar eru garðagöngur,

garðaskoðun, fræðslufundir og

námskeið. Árlega er í boði frælisti

með um og yfir 1000 tegundum

sem félagar hafa safnað sjálfir. Farið

er í skipulagðar fræðslu- og skoðanaferðir,

bæði innanlands og utan.

Þá hefur félagið gefið árlega út

spennandi vor- og haustlaukalista.

Fyrirtækið SÁ verklausnir var stofnað

fyrir rúmu ári síðan og býður alhliða

þjónustu við lóðafrágang og

skyld verkefni. Vöxtur fyrirtæksins

hefur allt frá fyrstu tíð verið jafn og

öruggur þrátt fyrir erfiðar aðstæður

nú um stundir. „Við erum stórhuga

og getum boðið alla þá þjónustu

við lóðafrágang sem hægt er að

ímynda sér. Ekkert verk er okkur

ofviða,“ segir annar tveggja eigenda,

Ásgeir Örn Hlöðversson.

í yfir 40 ár

Sími 5531099 / 8965373

www.blomabud.is

blomabud@blomabud.is

Árangur ræktunar félaga setur svip á borg og bæ. Ljósm.: Árni Kjartansson.

Innan félagsins eru starfræktir

klúbbar, þeir eru rósaklúbbur,

matjurtaklúbbur, sumarhúsaklúbbur

og blómaskreytingaklúbbur.

Nokkrar deildir félagsins eru einnig

starfandi úti á landi. Félagið á gott

bókasafn sem félagsmenn hafa aðgang

að. Félagsskírteini veitir afslátt

hjá garðplöntusölum og ýmsum

öðrum fyrirtækjum.

Meðal verkefna sem starfsmenn

SÁ Verklausna hafa sinnt að undanförnu

er ýmiskonar lagnavinna,

jarðvegsskipti, þökulagnir og grjóthleðsla

og vinna við hlaðna sem

steypta veggi. Einnig kantsteypa,

stíga- og gosbrunnagerð, girðingavinna,

pallasmíði og svo almenn

lóðahirðing, svo sem sláttur, klipping

og hreinsun.

Að útbúa fallega lóð er á sinn

hátt ákveðin listgrein. Þannig

gengu starfsmenn SÁ verklausna

frá lóðinni að Miðhrauni 2 í Garðabæ

og fengu skv. tillögu umhverfisnefndar

bæjarins viðurkenningu

bæjarstjórnar fyrir smekklega og

vel hirta lóð atvinnuhúsnæðis.

Voru það einu verðlaunin í flokki

atvinnuhúsnæðis sem veitt voru

þar í bæ á síðasta ári.

„Einstaklingar eru enn að láta

taka til í garðinum hjá sér og við

höfum verið að sinna talsvert af

viðhaldi. Einstaklingar eru líka

farnir að forgangsraða meira .

Frá grenndargörðum í Sviss. Matjurtagarðar njóta nú mikilla vinsælda hér á landi.

Garðyrkjuritið

Árgangur 2009 er nýkominn út. Að

venju kennir þar ýmissa grasa, en

að þessu sinni var lögð megin

áhersla á matjurtarækt. Þrjátíu

fróðlegar og áhugaverðar greinar

eru eftir félagsmenn og áhugafólk

um gróður og ræktunarmenningu

þjóðarinnar. Ritið er í hefðbundnu

broti og er 160 bls. að stærð. Það

er mikilvægt fyrir upprennandi

kynslóðir að hafa aðgang að slíku

lesefni sem Garðyrkjuritið er, það

ætti að vera aðgengilegt öllum,

bæði á heimilum sem og í bókasöfnum

landsmanna.

Gengið til góðs

Garðyrkja er áhugamál sem stuðlar

að hollri útiveru og er bæði skap-

Kaupa þjónustu sem þeir geta ekki

framkvæmt sjálfir, svo sem jarðvegsskipti,

grjóthleðslu og þess

háttar sem þarfnast vélarvinnu, en

gera svo eitthvað sjálfir, svo sem að

andi og gefandi. Árangur ræktunar

er farinn að setja svip á borg og bæ.

Aukin trjárækt gefur gott skjól fyrir

alla aðra ræktun sem og mannfólkið.

Stöðugt bætast við nýjar tegundir

runna og fjölærra plantna

sem eiga auðveldara uppdráttar í

meira skjóli. Sumar þeirra koma e.

t.v. til með að henta þjóðinni betur

en aðrar þegar fram í sækir, vegna

hlýnandi veðurfars.

Félagsmenn Garðyrkjufélagsins

fylgjast vel með og margir vinna

frábært brautryðjendastarf í tilraunum

með tegundir og yrki og

aðferðir við ræktun. Yngri félagsmenn

læra af þeim sem eldri og

reyndari eru, þannig miðlast þekkingin

milli kynslóða.

SÁ verklausnir bjóða fjölbreytta þjónustu:

Ekkert verk er okkur ofviða

Stórhuga. Sigurður Ágúst Marelsson, til vinstri, og Ásgeir Örn Hlöðversson eigendur SÁ verklausna.

Til þess skal vanda sem lengi skal standa! Júlíus Hjálmarsson við störf.

gróðursetja og slá. Einstaklingsþjónusta

er vaxandi þáttur í okkar

starfsemi.“

www.save.is

Ljósm.: Jóhann Pálsson.

Matur – saga – menning (MSM):

Kveðja til ræktunarfólks

Félagið Matur – saga - menning

(MSM) hefur frá því það var stofnað

árið 2005 stuðlað að varðveislu

íslenskra matarhefða, kynningu á

þeim og heimildaöflun. Hlutverk

félagsins er að efla þekkingu á íslenskum

mat og vekja áhuga á

þeim menningararfi sem felst í

matarhefðum og matargerð. Félagið

hefur haldið fræðslufundi, staðið

fyrir ferðalögum og haldið sýningar,

skemmst er að minnast sýningarinnar

„Reykvíska eldhúsið“ í

Kvosinni sl. haust. Kynnast má

starfi félagsins á heimasíðunni

www.matarsetur.is

Okkur þykir sérstaklega vænt

Sumarvörur fylla nú verslun Ellingsen

við Fiskislóð í Reykjavík.

Óvíða er meira úrval af til að

mynda útigrillum, útivistarfatnaði,

ferðavörum veiðidóti og fleiru

slíku. Ellingsen á sér enda stóran

hóp dyggra viðskiptavina, er í vitund

margra einstök verslun enda á

hún sér að baki langa sögu og

mikla viðskiptavild.

„Grillvertíðin er komin í fullan

gang. Við getum sagt að alþingiskosningar

og Eurovision hafi markað

ákveðið upphaf. Þetta eru helgar

þar sem fólk gerir sér oft einhvern

dagamun,“ segir Kristján Ág. Baldursson,

þjónustustjóri Ellingsen. Í

verslunum fyrirtækisins bjóðast

gasgrill af fjórum tegundum sem

eru Camping, Coleman og Flames.

Fjórða og síðasta tegundin eru grill

sem eru seld undir merkjum Ellingsen

og eru sérsmíðuð austur í

Kína.

Meiri kröfur

„Fólk gerir klárlega miklu meiri

Hlutverk félagsins er að efla þekkingu á íslenskri matarhefð.

um þann almenna áhuga á matjurtarækt

til heimilisnota sem hefur

vaknað að undanförnu og Garðyrkjufélag

Íslands hefur átt drjúgan

þátt í að styðja. Fyrir fáeinum ára-

tugum var heimilisgarðrækt algeng

um allt land, bæði í þéttbýli og á

landsbyggðinni. Rekja má þá ræktunarhefð

allt til síðari hluta 18.

aldar er kartöflu- og rófnarækt fór

að verða hluti af fæðuöflun þjóðarinnar.

Nokkuð dró úr áhuga á matjurtarækt

almennings á síðustu

áratugum 20. aldar og því er það

ánægjuefni þegar almenningur tekur

sig til og hefur þá góðu iðju til

vegs á ný.

Matjurtaræktun er í dag mun

þróaðri en hún var upp úr miðri

síðustu öld og við hvetjum ræktendur

til að nýta sér aukið úrval

matjurta, bæði nýjar tegundir og

afbrigði þeirra og huga að nýrri

ræktunartækni, t.d. yfirbreiðslum

sem lengja þann tíma sem nýta má

til ræktunar og gefur möguleika á

ræktun viðkvæmari garðávaxta. Þá

Ellingsen við Fiskislóð:

Einstök verslun í vitund margra

kröfur nú en áður þegar velja skal

gasgrill. Fólk er yfirleitt að velja

tveggja til fjögurra brennara grill

með góðum grindum. Sömuleiðis

vill fólk grill úr sterkari efnum en

áður, til dæmis stáli, enda seljast

þau vel,“ segir Kristján.

Sá siður að flagga við hátíðleg

tilefni er bæði góður og skemmtilegur.

Hjá Ellingsen fást flaggstengur

frá sænska framleiðandanum

Formenta, ýmist sex, sjö eða átta

metra langar. Fánarnir eru saumaðir

á Hofsósi en saumastofa, sem

einbeitir sér að slíkum saumaskap,

hefur verið starfrækt þar í áratugi.

Kaupa kerrur

Sem kunnugt er ákvað Rekjavíkurborg

nýlega að hætta að fjarlæga

úrgang sem til fellur í görðum

borgarbúa. Þetta hefur verið þess

valdandi að margir hafa fjárfest í

kerrum hjá Ellingsen sem eru af

gerðinni Daxara og henta bæði

fólksbílum sem jeppum.

„Í þessu eins og öðru, þá skapa

Vöruúrvalið í Ellingsen er ótrúlega fjölbreytt. Kristján Ág. Baldursson er þjónustustjóri.

breytingar alltaf ný tækifæri. Það

er afskaplega þægilegt að eiga

kerru, hvort sem fólk er með garð

eða ekki. Íslendingar standa oft í

framkvæmdum og þá getur verið

þægilegt að grípa til kerrunnar,“

segir Kristján, sem hefur starfað í

Ellingsen í áratugi og þekkir því

flestum betur þróun mála og þarfir

viðskiptavina.

www.ellingsen.is

GAR‹URINN 2009 | 19

Heimilisgarðrækt var algeng hér á

landi fyrir fáeinum áratugum.

er ástæða til að benda þeim á, sem

eiga gróðurhús í garðinum, að þar

geta t.d. vaxið ávaxtatré og berjarunnar

sem geta gefið ríkulega

uppskeru.

Áhugafólk um matarhefðir

framandi þjóða getur með góðum

árangri notað matjurtagarðinn til

að dýpka þekkingu sína og færa

nýja og ferska vinda úr garðinum

inn í eldhúsið með því að reyna

ræktun matjurta úr öðrum heimshlutum.

Á þann hátt er tekist á við

það krefjandi, en um leið spennandi

viðfangsefni að þróa áfram

okkar góðu íslensku matarmenningu

með því besta sem í boði er af

borði náttúrunnar.

Félagið Matur – saga – menning

óskar félagsmönnum GÍ og öllu

ræktunarfólki gleðilegs sumars með

von um ríkulega uppskeru og

ánægjustundir í garðinum á komandi

sumri.

Ingólfur Guðnason varaformaður.

20 | GAR‹URINN 2009

Hringrás náttúrunnar

hjá Vinnuskóla

Reykjavíkur

Flest reykvísk ungmenni feta sín

fyrstu skref á vinnumarkaði hjá

Vinnuskóla Reykjavíkur. Vinnuskólinn

hefur ávallt staðið fyrir

mikilli fræðslu, en í ár verður þó

breytt svolítið til og áherslur sérlega

grænar. Við tókum Rögnu Sigursteinsdóttur

tali en hún er garðyrkjufræðingur

og verkstjóri garðyrkju

og fræðslu hjá Vinnuskólanum

í Reykjavík:

„Í ár ætlum við að beina sjónum

að garðyrkjunni og styrkja fræðslu

á því sviði, enda vinna starfsmenn

Vinnuskólans fyrst og fremst garðyrkjustörf,“

segir Ragna. „Við höfum

ráðið til okkar svokallaða

Græna fræðsluleiðbeinendur, sem

fara munu milli vinnuhópa og

kenna krökkum hvað garðyrkjan

getur verið skemmtileg. Við munum

sýna þeim rétt vinnubrögð og

fræða þau um hvað þau eru að gera

og hvers vegna. Hvers vegna er

maður til dæmis að reita arfa? Hvað

gerir hann, hvað heitir hann og er

hægt að borða hann?“

Garðúrgangur verður næringarrík

mold

Ragna segir það mikinn misskilning

að fleygja verði öllum garðúrgangi

á næstu sorpstöð og því

muni Vinnuskólinn einbeita sér að

umhverfisvænni leiðum. „Megnið

af garðúrgangi verður bara að mold

og af hverju í ósköpunum ættum

við að raka þessu öllu saman og

keyra á haugana og koma svo með

mold í kerru til að bæta jarðveginn?

Þess í stað er betra að grafa

smá holu og henda úrganginum ofaní,

passa sig bara að hafa það ekki

of þykkt. Eða þá að koma efninu

fyrir undir slúttandi runnum eða

hekki. Þetta verður að ilmandi

Velkomin á nýja heimasíðu

www.gardplontur.is

Ragna Sigursteinsdóttir hjá Vinnuskóla

Reykjavíkur: „Við ætlum að vera

grænni og vænni og gera garðana

glaða.“

góðri mold eftir lítinn tíma. Svo er

heilræði að raka saman grasi eftir

slátt og dreifa því yfir beðin. Um

10 sentímetra lag verður að bestu

gróðurmold sem hægt er að fá. Í

ofanálag kæfir grasið arfann sem er

undir, þannig að það er tvöföld

virkni. Við ætlum að sýna krökkkunum

ýmsar lausnir og kenna

þeim að finna bóndann í sjálfum

sér,“ segir Ragna.

Garðhreinsun fyrir eldri borgara

Vinnuskólinn hefur í fjölda ára

boðið eldra fólki upp á garðhreinsun

og verður því haldið áfram í ár.

Vegna sparnaðar verður garðaúrgangurinn

þó ekki hirtur. „Í stað

Hellulagðir garðar

„Maí mánuður hefur verið einstaklega

góður. Nú hefur fólk tíma til

að huga betur að garðinum. Heimilið

er hornsteinn fjölskyldunnar og

garðurinn er stækkun á húsinu, ef

hann er rétt skipulagður. Það skiptir

máli að hafa snyrtilegt í kringum

sig til að líða vel heima,“ segir Dagrún

Guðlaugsdóttir, en hún og eiginmaður

hennar, Sigurður Jónsson

eiga fyrirtækið Steindir, sem framleiðir

gott úrval af hellum og steinum.

„Það er náttúrulega tilvalið að

hanna garðinn eftir þörfum fjölskyldunnar,

til að mynda að hafa

grassvæði fyrir leiki barna og svo

hellulagt svæði þar sem fólk getur

notið lífsins. Það er hægt að lengja

mjög sumarið í garðinum með

markísum, skjólveggjum og öðru.

Svo má ekki gleyma gróðrinum,

hann setur punktinn yfir i-ið. Fólk

þarf kannski bara smá útsjónasemi

og dugnað,“ segir Dagrún, en hún

leggur mikla áherslu á persónulega

þjónustu við viðskiptavinina.

Möl getur skemmt parket

Stéttlögð innkeyrsla og falleg aðkoma

er mikil prýði fyrir húseign

og vistleg aðkoma er oft vísbending

um það sem fyrir innan er. Möl og

drulla við inngang húsa getur einnig

skapað vandamál.

„Það skiptir sköpum varðandi

þrif fyrir innan að það sé hellulagt

að utan, og getur munað mjög

miklu. Til eru dæmi um að parket

hafa hreinlega eyðilagst vegna

sands sem berst inn frá ófrágengnum

innkeyrslum.“ Dagrún segir

það færast sífellt í vöxt að fólk

gangi frá innkeyrslum áður en gólfefnið

er lagt, því það hefur lent í

vandræðum vegna þessa áður.

„Það er því oft betra að klára að

utan áður en lengra er haldið. Svo

má fólk nú njóta þess að hafa fínt í

kringum sig þótt það sé 2009! Nú

Unglingar í Vinnuskóla Reykjavíkur á góðum degi.

þess ætlum við að bjóða fólki upp

á að ganga frá garðaúrganginum á

þennan umhverfisvæna hátt og

viðhalda þar með hringrásinni í

garðinum. Við ætlum að vera

grænni og vænni og gera garðana

glaða,“ segir Ragna og brosir. Kjósi

fólk ekki að koma úrganginum fyrir

á þennan hátt er lítið mál að

koma honum fyrir í pokum, eins

og venjan hefur verið, en fólk verður

þá að koma þeim sjálft út á

hauga.

Umhverfisvitund unglinga

Ragna segir að aukin þekking á

umhverfinu og lífríkinu geri starfið

mun áhugaverðara fyrir ungling-

Dagrún Guðlaugsdóttir: „Við höfum verið með besta verðið á markaðinum en þetta

er lítið fyrirtæki með mjög litla yfirbyggingu.“

er líka góður tími að fá verktaka

eins og okkur að leggja hellur fyrir

sig, en ríkið býður nú upp á fulla

endurgreiðslu á virðisaukaskatti af

vinnunni.“

Samkeppni á fákeppnismarkaði

„Við höfum verið með besta verðið

á markaðinum en þetta er lítið fyrirtæki

með mjög litla yfirbyggingu,“

segir Dagrún og hlær við. Fyrirtækið

leggur sig fram við að komast til

móts við viðskiptavinina á erfiðum

tímum og býður upp á staðgreiðsluafslátt

eða vaxtalaus korta-

ana. „Við viljum líka passa að þau

vinni með réttu verkfærin og beiti

líkamanum rétt.

Þetta er fyrsta vinnan þeirra og

við verðum að passa að þau geri

rétt og kenna þeim að njóta þess að

vinna. Unglingarnir vinna erfiða

vinnu um alla borg og eru að auki

að vaxa og þroskast svo þetta getur

verið mikið álag á líkamann. Við

eigum því ekki að gera lítið úr

starfi krakkanna og ljóst er að

ásýnd borgarinnar væri allt önnur

ef að Vinnuskólinn væri ekki til!“

www.vinnuskoli.is

lán til allt að tólf mánaða. „Það er

því hægt að laga garðinn án þess að

eiga allan peninginn. Með því að

versla við Steindir stuðlar þú einnig

að samkeppni á fákeppnismarkaði,

en það eru bara 3 fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

sem framleiða

hellusteina. Við höfum fundið

mjög jákvæða strauma í okkar

garð, sér í lagi á þessu ári, en fólk

er ánægt þegar það sér minni fyrirtæki

ná að standa af sér efnahagsstorminn.“

www.steindir.is

Brenninetla (Urtica dioica) hefur

verið ræktuð hérlendis síðan á

1900 öld. Plantan er með brennihárum

sem eru stökk og brotna ef

komið er við þau, brotstúfurinn

stingst auðveldlega gegnum húð ef

jurtin er snert, og kemst þá safi

hársins inn undir húðina og svíður

undan vökvanum. Tilgangur

brenniháranna er að vernda plöntuna

gegn snertingu manna og dýra.

Ef plantan brennur þig, þá hefur

þú greinilega fundið réttu plöntuna.

Brenninetlan er frekar sjaldgæf

hérlendis en finnst einna helst í

nánd við garða eða ræktaða garða

þar sem eru eða hafa verið mannabústaðir.

Plantan hefur mikið notagildi,

er talin vera lækningajurt,

hjátrú fylgir plöntunni og hún er

einnig talin henta sérstaklega vel í

lífræna ræktun.

Félagar í Garðyrkjufélaginu, Ralf

Trylla, umhverfisfulltrúi Ísafjarðarbæjar

og Marianne Guckelsberger

hafa sent okkur eftirfarandi fróðleiksmola

um brenninetluna og

kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Brenninetlu saft

Þrisvar sinnum handfylli af ferskri

brenninetlu, notaði allan græna

hlutann af plöntunni. Ein handfylli

af piparmyntu (Mentha x piperita)

eða sítrónu melissa (Melissa officinalis).

Setjið í pott með 1½ lítra af

köldu vatni og geymið yfir nótt.

Næsta dag skal bætt við 600 g af

sykri. Sopið upp á í stutta stund,

bætið við safa úr einni sítrónu og

setjið saftina heita á flösku. Saftin

hefur geymsluþol í allt að ½ ár.

Hárskol

Setjið tvisvar sinnum handfylli

(ekki gleyma hönskum) af brenninetlublöðum

saman við 1 lítra af

eplaediki út í pott, látið suðuna

koma upp. Síið blöðin frá. Berist í

hársvörðinn eftir hárþvott. Hárskolið

þarf að geyma í ísskáp. Gefur

glans í hárið, er gott við flösu,

hárlosi og almennt í feitt hár. Lyktin

af eplaediki hverfur fljótt. Einnig

má sjóða í vatni og sleppa edikinu.

Vorsalat

Tínið ungu blöðin, helst í sól og

eftir hádegi. Notið hanska. (Í

Þýskalandi er sagt að stungurnar

virki vel við gigt.) Mjög gott í salat

ásamt túnfífli, ungum hindberja-,

sólberja- eða rifsblöðum, vallhumal,

hundasúru, birkilaufi, vörtusóleyju

eða öðru hefðbundnara. Virkar

vatnslosandi, hreinsandi. ATH

að barnshafandi konur eiga að

sleppa hindberjalaufum.

Einnig má skera blöðin út í

gríska jógúrt (frá MS, nýkomin á

markaðinn) og hræra smá hörfræolíu

og pínu sjávarsalt út í. Lostæti

oafn á nýbakað brauð.

Í eggjakökur og grænmetisbökur

Tínið ungu blöðin og snöggsjóðið

(dýft í sjóðandi vatn í 1-2 mínútur)

GAR‹URINN 2009 | 21

Fróðleikur um brenninetlu:

Heppileg planta í matjurtagarðinn

Dagskammturhreyfingar

fæst líka

í garðinum!

Lilja Sigrún Jónsdóttir

skrifar

Öll þekkjum við hvatningu til að

auka hreyfingu okkar í kyrrsetusamfélagi

nútímans. Opinberar

ráðleggingar um daglega þörf fyrir

hreyfingu á fullorðinsárum eru

skilgreindar. Til að uppfylla þarfir

fullorðinna fyrir hreyfingu er ráðlagt

að hreyfa sig með hóflegu álagi

(til að auka þrek) í 30 mínútur, 5

daga vikunnar, og tvisvar í viku að

auki, með styrkjandi álagsæfingum.

Mörg okkar kjósa að stunda

reglulegar æfingar á líkamsræktarstöðvum

en þær eiga samt ekki

einkarétt á hreyfingunni. Það gerir

sama gagn að ganga rösklega eða

hjóla og ganga stiga, þegar færi

gefst. Þar að auki telst rösk garðvinna,

með álagi á bæði efri og

neðri hluta líkama, með sem fullgildur

dagsskammtur hreyfingar.

Þannig teljast vorverkin í matjurtagarðinum,

að stinga upp, vinna

mold og raka, uppfylla daglegan

skammt hreyfingar. Ræktunarstörfin

eru gefandi og ef til vill dugar

ánægjan sem vinnulaun. En fyrir

þau, sem sækja líkamsrækt reglulega,

þá má telja vinnustundir í

garðinum með í hreyfibókhaldinu

með bros á vör.

Brenninetlan hefur verið álitin hið versta illgresi hér á landi í kartöflugörðum og

víðar. Evrópubúar kunna greinilega að nýta sér ýmsa eiginleika plöntunnar, sem er

ein leið til að halda plöntunni í skefjum. Ljósm.: Elín Gunnlaugsdóttir.

þá stinga þær ekki lengur eða rúlla

blöðin með kökukefli, þá hverfa

hárin (stungurnar) líka. Notist eins

og spínat t.d. í eggjakökur, súpur

og allskonar rétti.

Í matjurtagarðinn

Brenninetlan er ómissandi í matjurtagarðinum,

sérstaklega í lífrænni

ræktun. Plantan öll er sett í

safnhauginn og eykur hún gæði

moldarinnar. Einnig er gott að setja

hana afskorna í grænmetisbeð milli

plantna og hylja jarðveginn þannig.

Það eykur frjósemina, gleður ánamaðkana

og heldur illgresinu í

skefjum.

Seyði úr brenninetlum, úðað yfir

jarðveginn, styrkir plönturnar

gegn allskyns sjúkdómum. Netluseyði

er búið til þannig að stór

tunna er fyllt að 2/3 með brenninetlum,

gott er að setja þær í grisju,

síðan er tunnan fyllt með vatni.

Láta standa í 2-3 vikur eða þar til

lyktin er horfin. Meðan plantan

rotnar kemur sterk lykt, þess vegna

er sniðugt að setja tunnuna innst

inn í garðinn en ekki við hliðina á

sólpallinn. Síðan er grisjan tekin

upp úr tunnunni og netlurnar fara

á safnhauginn. Nú er seyðið blandað

með vatni 1:20 til 1:50 og úðað

yfir jarðveginn með vökvunarkönnu.

Þetta er gert nokkrum

sinnum yfir vaxtartímann, helst

eftir rigningu, aldrei í sólskini.

Gleðilegt sumar!

22 | GAR‹URINN 2009

Að hugsa um

garðinn sinn

Innlit í Mörk í Fossvogsdal

„Við finnum mikla þörf hjá fólki að

vera í tengslum við náttúruna og að

vilja að rækta eitthvað – hvort sem

það er blóm af fræi eða runni að

springa út,“ segir Sigríður Helga

Sigurðardóttir, en hún rekur

Gróðrastöðina Mörk ásamt manni

sínum, Guðmundi Vernharðssyni.

„Fólk er farið að þrá sumarið,

enda veturinn verið þungur. Það

hugar meira að nærumhverfinu

núna og svo þegar kreppir að þá

fer fólk að hugsa um að vera sjálfbjarga

og rækta matjurtagarða,“

bætir Guðmundur við. „Nánast allt

sem við seljum framleiðum við sjálf

og getum þar af leiðandi miðlað

mikilli þekkingu til fólks.“ Sigríður

tekur undir það og hvetur fólk til

að vera duglegt að spyrja og leita

sér upplýsinga og ekki vera hrætt

við að láta í ljós vankunnáttu sína.

„Garðyrkjufólk býr yfir mikilli

reynslu sem það getur miðlað til

almennings. Mörgum finnst þetta

vera spennandi verkefni, áskorun

sem allir eiga að taka og allir geta

tekist á við.“

Ótrúleg upplifun að tengjast

náttúrunni

Hjónin segja tíma kominn fyrir fólk

að huga að rótunum í breiðum

skilningi. „Það skiptir miklu máli

að horfa á fegurðina í kringum sig,

þar á meðal í nærumhverfinu í

garðinum,“ segir Guðmundur og

segir að góð tengsl við nærumhverfi

sitt, bæði heimili og garð, færi fólki

mikla ánægju. „Ég held að það sé

jákvætt, að færa fókusinn aðeins.

Þeir sem hleypa sér í að fara út í

garð og vinna njóta þess mun

meira en þeir bjuggust við. Þetta er

útivera, þú kemst í nánd við náttúruna,

og færð að vera einn með

sjálfum þér með eigin hugsanir,“

segir Guðmundur.

Ólík tré í ólíka garða

Sigríður leggur áherslu á að fólk

velji sér trjátegundir og plöntur

sem hæfi sínum garði, og sé þá gott

að ráðfæra sig við garðyrkjufólk

um það. „Þú selur ekki sömu

plöntur í gamla garða vestur í bæ

og þú gerir til nýrra hverfa, sem

sum hver eru skjóllaus og 100

metrum yfir sjávarmáli. Á melun-

um í gamla bænum getur þú gróðursett

nánast hvað sem er, en ef þú

ert uppi í hæðum verður að hugsa

dæmið öðruvísi.“

Guðmundur bætir að við að

hverfin verði mun skjólbetri eftir

því sem þau eldast, og í raun sé

einn samfelldur skógur á höfuðborgarsvæðinu.

„Þannig að það er

mikið að breytast hvað er hægt að

rækta á Íslandi, til að mynda ýmsar

plöntur sem voru taldar of viðkvæmar

áður fyrr – og eru enn í

ógrónum hverfum.“

Beint frá bóndanum

Fólk gerir sér sífellt betur grein fyrir

gildi þess að hafa gróður og græn

svæði í kringum sig, en erlendar

rannsóknir sína að fólki líður betur

andlega og líkamlega sé það í einhverjum

tengslum við náttúruna.

Gróðrastöðin Mörk er staðsett í

Fossvogsdalnum, einu stærsta

græna svæði höfuðborgarsvæðisins,

og leggur fyrirtækið áherslu á nálægð

við markaðinn.

„Íslendingar eiga kannski eftir

að kveikja á því hversu gott það er

Bók fyrir alla náttúruunnendur:

Flora Islandica

Árið 1983 kom út bókin Íslensk

flóra með litmyndum eftir Ágúst

H. Bjarnason. Bókin vakti mikla

athygli, ekki síst fyrir fallegar

blómateikningar sem gerðar voru

af Eggerti Péturssyni. Nú hafa

þessar teikningar Eggerts verið

gefnar út í heild sinni í upprunalegri

stærð í einni bók, Flora Islandica.

Kristján B. Jónasson, útgefandi

hjá Crymogea, sagði hugmyndina

að útgáfu bókarinnar hafa kviknað

á vinsælli yfirlitsýningu á verkum

Eggerts Péturssonará Kjarvalsstöðum

haustið 2007. „Þarna gafst almenningi

tækifæri til að sjá þróunarsögu

blómamálverka Eggerts.

Við söknuðum þess þó að sjá ekki

upprunalegu myndirnar úr hinni

vinsælu Íslensku flóru en þær

mörkuðu mikilsverðan áfanga á

listrænum ferli Eggerts.“

Fjársjóður í kassa

Árið 1982 kom Eggert heim úr

námi í Maastricht og hóf vinnu að

Garðyrkjuhjónin í Mörk segja tíma kominn fyrir fólk að huga að rótunum í breiðum skilningi.

myndunum fyrir Íslensku flóruna.

Eftir sleitulausa vinnu í meira en

eitt ár hafði hann teiknað yfir 270

tegundir af íslenskum háplöntum,

sem er stór hluti okkar flóru.

„Teikningarnar voru svo settar

ofan í kassa og ekki sýndar meira

þar til að við bönkuðum uppá hjá

honum og spurðum eftir þeim.

Okkur datt strax í hug að það væri

frábært að gefa þessar myndir út í

bók, sem sýndi þær í sinni upprunalegu

dýrð. Þær höfðu verið

mikið minnkaðar í upprunalegu

útgáfunni og þótt þær þjóni hlutverki

sínu frábærlega þar, kemur

það ekki nógu vel fram hve nánast

yfirþyrmandi glæsilegar þær eru.

Hver háplanta er teiknuð í raunstærð

sinni og hvert blað er í

stærðinni A3.“

Hvergi var sparað til verksins og

má í raun segja að útgáfan sé eins

konar listaverk í sjálfu sér, enda í

takmörkuðu upplagi, 500 tölusettum

eintökum árituðum af Eggerti.

Bókin var prentuð í Kína, því

handbinda þurfti hvert eintak og

fylgdi maður henni þangað til að

fylgjast með að allt færi á réttan

veg. Þá kemur hver bók í efnisklæddum

kassa, sem er handsmíðaður

úr krossviði. „Snæfríð Þorsteins

hönnuður lagði gríðarlega

mikla vinnu í að koma þessu upp,

en hún hlaut nýlega verðlaun FÍT

fyrir besta prentgrip ársins fyrir

þessa bók,“ segir Kristján.

Unnendur lista og blóma

„Ég vissi að fólk yrði þakklátt að fá

þetta safn út gefið. Fáir innlendir

nútímalistamenn njóta jafn mikillar

virðingar og Eggert Pétursson,

en myndir hans höfða til svo

margra. Verk hans seljast venjulega

fyrir háar upphæðir og eru mjög

umsetin svo það er ekki auðvelt

fyrir almenning að eignast þau, en

hér er kominn gripur á viðráðanlegu

verði sem er sannarlega hluti

af listsköpun Eggerts.“ Flora Islandica

er safngripur í takmörkuðu

upplagi og verður ekki endur-

að hafa gróðrarstöð eins og okkur

nálægt stóru svæði í höfuðborginni.

Það er bæði mikill sparnaður sem í

því felst og svo er það að auki umhverfisvænt,

en ekki þarf að keyra

allt efnið inn til borgarinnar. Þetta

er hugmyndafræði sem er farin að

prentuð. „Helmingurinn er seldur

og þegar upplagið klárast er bókin

búin. Ég tel að það sé mjög ólíklegt

að það væri eitthvað eftir af henni í

lok ársins,“ segir Kristján.

„Markhópur okkar var annars

vegar listunnendur, því myndirnar

skipa svo stóran sess í ferli Eggerts.

Hann talar um þær sem stafrófið í

verkum sínum og hefur Flóru Íslands

gjarnan við höndina þegar

hann málar. Hins vegar eru það

náttúruunnendur, fólk sem hefur

áhuga á jurtum og gróðri Íslands.

Eggert er afar nákvæmur, hann

málar ekki bara einhver blóm

heldur aðeins íslenska flóru, og

setti lengst af til að mynda ekki

blóm saman á mynd nema þau

blómguðust á sama tíma. Stærð

jurtanna á verkum hans hafa hingað

til verið rétt sem og öll hlutföll.“

Crymogea verður til

Bókaútgáfan Crymogea var stofnuð

árið 2007 af Kristjáni B. Jónassyni

og Snæbirni Arngrímssyni, en þeir

eiga báðir djúpar rætur í heimi íslenskrar

útgáfu. Markmið útgáfunnar

var frá upphafi að gefa ein-

skipta töluverðu máli erlendis –

uppruni vörunnar og að hún komi

beint frá bóndanum, eins og afurðir

okkar,“ segir Sigríður að lokum.

www.mork.is

Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá Crymogea: „Ég vissi að fólk yrði þakklátt að fá

þetta safn út gefið. Fáir innlendir nútímalistamenn njóta jafn mikillar virðingar og

Eggert Pétursson.“

ungis út sjónrænar bækur um ljósmyndir

og list.

„Við mörkuðum okkur þessa

stefnu, bæði til að fara ekki út um

víðan völl og vegna þess að alþjóðleg

verkefni sem við erum að vinna

í eru öll á þessum nótum,“ segir

Kristján og nefnir sem dæmi ljósmyndabók

eftir Ragnar Axelsson

um áhrif heimshlýnunar á líf inúíta

og ljósmyndabók eftir Pál Stefánsson

um fótbolta í Afríku, sem er

gefin út í tengslum við heimsmeistarakeppnina

í fótbolta sem haldin

verður í Suður-Afríku á næsta ári.

Bækurnar eru báðar unnar í tengslum

við virta, jafnvel heimsþekkta

rithöfunda.

Kristján segir forlagið hugsa til

stærri markaðar en Íslands, bæði

til að auka hagkvæmni og fá slagkraft

við undirbúning og gerð bókanna

og til að geta átt möguleika á

að samnýta prentun til mismunandi

markaðssvæða. „Þetta tekur

allt sinn tíma, en bækurnar okkar

hafa fengið mjög góð viðbrögð og

við erum bjartsýnir.“

www.crymogea.is

Endurnærandi garðrækt

Inga Rut Gylfadóttir, landslagsarkitekt FÍLA skrifar

Í rannsóknum hefur glögglega verið

sýnt fram á að hverskonar garðrækt

og útivist á gróðursælum

stöðum og útivistarperlum eflir

andann og endurnærir sál og líkama.

Að koma inn í hverfi, inngang

að vinnustað eða heimili gefur okkur

sterka hugmynd af viðkomandi

stað. Hönnun umhverfisins ásamt

gróðri er þar mikill áhrifavaldur.

Síðustu ár hefur helsta ósk lóðareigenda

verið sú að fá viðhaldslítinn

garð. Fólk hefur verið hrætt við

að hafa mikinn gróður þar sem því

getur fylgt nokkuð viðhald. Mín

skoðun er þó sú að þrátt fyrir að

garður sé hannaður stílhreinn og

einfaldur, þar sem stór hluti garðsins

er með hellulögn og timburpalli,

þá skipti gróðurinn höfuðmáli

í því að skapa vistlegan og

huggulegan garð.

Hluti gróðurs blómstrar snemma

vors og er yndislegt að hafa eina

slíka plöntu í sjónlínu t.d við inngang

húss og við glugga. Þegar

garður er orðinn vel þroskaður er

einnig um að gera að skipta út

plöntum og breyta til. Bæta við

einum blómstrandi runna á áberandi

stað gefur skemmtilega fjölbreyttni

í garðinn. Hver einstök

planta hefur mikinn fjölbreytileika

„Áherslan er hvarvetna á íslenskt

og eftir því stilltum við kúrsinn í

framleiðslu okkar þetta árið. Leggjum

okkur sérstaklega eftir íslenskum

plöntum og þar nefni ég til

dæmis sumarblómin,“ segir Katrín

Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri

Sólskóga.

Sólskógar eru einn stærsti

plöntuframleiðandi landsins og eru

með starfsemi á Egilsstöðum og í

Kjarnaskógi á Akureyri. Á báðum

stöðum er fyrirtækið með mikla

framleiðsla bæði á blómum, trjáplöntum

og skógarplöntum, meðal

annars fyrir landshlutabundin

skógarverkefni á Vestfjörðum,

Norðurlandi og Austurlandi.

Alltaf vinsælast

„Bændaskógræktin hefur tvímælalaust

orðið til þess að auka áhuga

almennings á öllu ræktunarstarfi,“

segir Katrín. „Sífellt fleiri eru að fást

við ræktun í einhverri mynd, bæði

í þéttbýli og svo úti í sveitum, til

dæmis við sumarhús. Þar er íslenska

birkið alltaf vinsælast, enda

nokkuð auðræktað. En síðan hafa

aðrar tegundir komið sterkar inn,

til dæmis lerki og fleiri barrtegundir.

Einnig gæti ég nefnt ýmsar fjölærar

plöntur og runnategundir;

fjölbreytnin fer sívaxandi.“

Rætur Sólskóga eru á Fljótsdalshéraði.

Fyrir rúmum tveimur árum

var sú breyting síðan gerð að fyrirtækið

tók yfir gróðrastöðina í

Kjarna við Akureyri sem rekin hefur

verið síðan 1947, lengst af

Skógræktarfélagi Eyfirðinga. Í

Kjarna eru alls sjö stór gróðurhús,

samanlagt 3.800 fermetrar að flatarmáli.

Þegar aðstaðan á Egilsstöðum

er svo tekin með í dæmið eru

Sólskógar með undir plasti um

5.000 fermetra sem tryggir mikla

afkastagetu. Slíkt þarf líka, því Sólskógar

framleiða til dæmis öll

sumarblóm fyrir sveitarfélög á

Hönnun, ásamt gróðri, er mikill áhrifavaldur

í fyrstu upplifun að aðkomu

heimilis eða vinnustaðar.

í áferð, laufgun, blómstrun, berjum

og haustlitum og ásýndin breytist á

nokkurra vikna fresti.

Dvalarsvæði skipta alltaf miklu

máli í görðum og þarf að vanda

valið vel, hvar sá staður á að vera.

Hér þarf að finna stað þar sem sólin

skín hvað lengst svo ekki sé

minnst á skjólið. Skjól á Íslandi er

grundvallaratriði til að skapa vel

nýtanlegt dvalarsvæði. Mikill misskilningur

er þó að til að fá gott

dvalarsvæði þurfi skjólgirðingar að

Sólskógar á Akureyri og Egilsstöðum:

vera mjög háar. Girðingar ættu

ekki að vera hærri en svo að maður

sjái yfir þær og að sólin geti skinið

inn á dvalarstaðin óheft þar sem

hún hækkar hitastigið verulega.

Þannig lengist einnig sá tími sem

við getum notið útiveru frá því

snemma á vorin og lengur fram á

haust.

Leiksvæði, matjurtaræktun,

snúrur og heitur pottur er einnig

eitthvað sem gerir garðinn að hagnýtum

og notalegum fjölskyldu- og

Birki, barrtré og blómplöntur

Katrín Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Sólskóga.

Austurlandi og raunar fjölmarga

fleiri. Verkefnin eru margvísleg og

fer fjölgandi.

Hlúir að sínu

„Þegar ræktun og framleiðsla þessa

ár var í undirbúningi tókum við

þann pól í hæðina að áhugi fólks á

allri ræktun myndi aukast; fólk

myndi í ríkari mæli halda sig í

Hluti gróðurs blómstrar snemma vors

og er yndislegt að hafa eina slíka plöntu

í sjónlínu.

heimaranni og hlúa að sínu. Þetta

hefur gengið eftir; föndurvörur

seljast sem aldrei fyrr, fólk er farið

að baka heima og svona gæti ég

áfram haldið. Þetta er viðhorfsbreyting

og hún vinnur með okkur,“

segir Katrín Ásgrímsdóttir í

Sólskógum.

www.solskogar.is

vinastað. Það skiptir í raun ekki

máli hve stór eða lítill garðurinn er,

mikilvægast er að hver fermeter sé

vel nýttur og fái sitt rétta hlutverk,

hvort sem það er svæði til að horfa

á eða nýta á praktískan hátt.

Leiksvæði og dvalarsvæði þurfa

alltaf að vera í góðum tengslum og

í hæfilegri fjarlægð hvort við annað.

Það gengur t.d aldrei að hafa

leiksvæði langt frá dvalarsvæði fullorðinna.

Manneskjan er félagsvera

og börn vilja vera hjá okkur, og

eins vilja foreldrar geta fylgst með

börnunum. Þetta á líka við um

matjurtagarð og önnur vinnusvæði,

þau verða að vera í góðum tengslum

við aðra fleti í garðinum, einfaldlega

svo að við nennum að vera

þar. Hver kannast ekki við að kartöflu-

eða rabarbararæktunin er í

einu horni garðsins, kannski vel

norðarlega í rokinu!! Það er ekki

mjög freistandi að fara þangað að

reita arfa. Ákjósanlegast er að matjurtagarðurinn

sé á skjólgóðum

stað og sólríkum, svo að við njótum

þess að dytta að honum. Það er

mesti misskilningur að matjurtargarðar

séu ljótir eða þurfi að vera

það. Með öllu tegundavalinu sem

hægt er að fá í dag, bæði í matjurtunum

sjálfum og svo efnisnotkun í

Skjól á Íslandi er grundvallaratriði til

að skapa vel nýtanleg dvalarsvæði.

Mikill misskilningur er þó að til að fá

gott dvalarsvæði þurfi skjólgirðingar að

vera mjög háar.

GAR‹URINN 2009 | 23

Í grónum görðum má oft finna eitthvað smart inn á milli gróðurs sem hægt er að

færa til og koma á meira áberandi stað. Hér lá t.d holtagrjótið áður á hliðinni undir

stóru grenitré.

umgjörðina er auðvelt að útbúa aðlaðandi

matjurtakassa sem passar

vel inn í aðra efnisnotkun í garðinum.

Kassarnir geta jafnvel verið

með loki svo hægt sé að loka honum

yfir veturinn þegar lítið er þar

að sjá. Það er um að gera að nota

hugmyndarflugið og matjurtakassinn

er orðin hin mesta prýði. Auk

þess koma margar fjölærar matjurtir

upp snemma á vorin s.s. rabarbari,

graslaukur og fleira og gefa

beðinu líf áður en allt fer að

blómstra í júní.

Einnig hef ég ítrekað að fólk geri

garðinn sinn persónulegan, t.d með

því að setja niður sérvalinn stein,

gamlan ættargrip eins og t.d

skúlptúr, járnaflækjur margskonar

sem hafa fylgt viðkomandi. Í grónum

görðum má oft finna eitthvað

smart, inn á milli gróðurs, sem

hægt er að færa til og koma á meira

áberandi, velvaldan stað ásamt lýsingu

gerir mikið.

Garðurinn er eitthvað sem gerir

umhverfi okkar fallegra og margir

njóta. Annað hvort sem áhorfendur

utan frá eða sem notendur. Að

ganga fram hjá fallega hirtum og

vel skipulögðum garði er jafn endurnærandi

og að eiga einn slíkan.

Ekki er endilega nauðsynlegt að fylla

gróðurbeð af gróðri, hver gróður á sinn

stað í garðinum.

24 | GAR‹URINN 2009

Helenurósin ´Hybrida´

klifrar fagurlega

Norræna rósahelgin var haldin í

boði norska rósafélagsins í Lillehammer

og nágrenni í júlí á síðastliðnu

ári. Nokkrir félagar í íslenska

rósaklúbbnum tóku þátt í viðburðum

helgarinnar. Þar var m.a. farið í

skoðunarferðir í marga einkagarða

þar sem gat að líta margar fagrar

rósir og skemmtilegan umbúnað

um þær. Meðal þeirra voru nokkur

yrki klifurrósa sem sögð voru hafa

reynst vel við erfið skilyrði hátt til

fjalla og á stöðum sem útsettir eru

fyrir veðursveiflur að vori. Það voru

aðallega yrki af Helenurósum (Rosa

helenae) sem sumir vilja kalla hunangsrósir

sem vöktu athygli Íslendinganna

- sérstaklega yrkið ´Hybrida´sem

sagt var hafa reynst vel

við erfið skilyrði. Það er orðið mjög

útbreitt norður um allan Guðbrandsdalinn

og upp til fjalla þar.

Yrkið ´Hybrida´ er mjög fljótvaxið

og blómviljugt og skreytti

víða umgjörðina við inngang húsa í

Guðbrandsdalnum – það var einskonar

einkennisrós á svæðinu.

Þetta yrki er ekki algengt á markaði

og hefur ekki verið til sölu hér á

landi til þessa þótt önnur og lakari

yrki af Helenurós hafi verið á boðstólum.

Fjölgun Helenurósa er

hinsvegar sérstaklega auðveld - það

þekkir höfundur þess pistils af eigin

raun. Best þrífast þær hér á landi

á eigin rót svo ekki ætti gróðrarstöðvum

að verða skotaskuld úr

því að reyna framleiðslu á ´Hybrida´

fyrir innlenda rósaunnendur

þegar næst í móðurplöntur en það

er innan seilingar. Hér fylgja

nokkrar myndir af þessari ágætu

rós og gæti hún sómt sér vel við

inngang að sumarbústöðum eða

umhverfis sólpallinn á móti suðri.

Snúningsdiskur

Ýmsir aukahlutir

K 7.80 M Plus

Þrýstingur

20-160 bör max

Stillanlegur úði

Sápuskammtari

„Matarjurtaræktun er í tísku enda

tökum við hjá BYKO mið af því í

okkar áherslum. Hjá okkur er það

Háþrýstidælur

Þegar gerðar eru hámarkskröfur

K 5.91 M Plus

Þrýstingur:

20-140 bör max

Vatnsmagn:

490 ltr/klst

Lengd slöngu: 7,5 m

Stillanlegur úði

Túrbóstútur + 50%

Sápuskammtari

Vatnsmagn: 600 ltr/klst

Túrbóstútur + 50%

Lengd slöngu: 9 m

Vilhjálmur Lúðvíksson skrifar

K 7.85 M Plus

Þrýstingur:

20-160 bör max

Vatnsmagn:

600 ltr/klst

Stillanlegur úði

Sápuskammtari

Túrbóstútur + 50%

12 m slönguhjól

K 6.91 M Plus

Þrýstingur: 20-150 bör max

Vatnsmagn: 550 ltr/klst

Túrbóstútur + 50%

Lengd slöngu: 9 m

Sápuskammtari

Stillanlegur úði

SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS

Íslenskur garður með suðrænum blæ. ´Hybrida´ við inngang.

´Hybrida´að springa út. Rósagöng með R. helenae ´Hybrida´.

Fjölbreytt vöruúrval af garðvörum hjá BYKO:

Allt fyrir fallegan garð

til dæmis nýmæli þetta árið að nú

bjóðum við upp á mikið úrval frætegunda,

matjurtir og kryddtegundir

ásamt sáðbökkum - og fleira

sem til þarf fyrir þá sem vilja reyna

sig í hverskonar heimaræktun.

Einnig erum við hér með útsæðiskartöflur;

gullauga og íslenskrar

rauðar. Svona gæti ég áfram haldið,“

segir Agnar Kárason, rekstrarstjóri

verslunar BYKO á Fiskislóð í

Reykjavík.

Í verslunum BYKO víða um land

hefur úrval garðyrkjuvara verið

stóraukið. „Meðal almennings virðist

vera rík vitund fyrir hverskonar

sjálfþurftarbúskap og við

bregðumst að sjálfsögðu við kröfum

viðskiptavina í því efni,“ segir

Agnar. Nefnir hann þar m.a. að nú

fáist í verslunum fyrirtækisins túnþökur

og allur algengasti áburður.

Mold í kerruna býðst í timbursölu

Breidd. Einnig er þar að finna mikið

úrval af trjá- og garðplöntum.

Blákorn og Glæðir

Blákorn er áburður sem þykir

henta vel á grasflatir í heimagörðum

og á trjáplöntur. „Við skynjum

á hinn bóginn mjög ríka vitund

fyrir því að nota ekki tilbúinn

áburð í matjurtatgarðinn heldur

nota alfarið náttúruleg efni. Þar

kjósa til dæmis margir að nota íslenskan

lífrænan áburð, til dæmis

Glæðir sem er framleiddur úr þangi

í þörungaverksmiðjunni á Reykhólum,“

segir Agnar.

Til að mæta þessum aukna

ræktunaráhuga landsmanna hefur

BYKO hafið framleiðslu á gróðurbröggum,

vermireitum og vinnu-

Sólargeislar og sjálfsþurftarbúskapur. Agnar Kárason, rekstrarstjóri verslunar

BYKO á Fiskislóð í Reykjavík.

borðum í garðinn sem auðvelda

fólki að skapa nytsaman og fallegan

garð. Hjá BYKO býðst einnig mikið

úrval af hverskonar árstíðarvörum.

Þar má nefna hoppukastala,

trampólín, reiðhjól, garðáhöld og

mikið úrval af sláttuvélum. Einnig

má nefna að nú selst pallaefni sem

aldrei fyrr sem bendir til að margir

ætli eimitt að halda sig á heimaslóðum

þetta árið. Sitja fremur í

sólargeislum undir suðurveggnum

en fara á Spánarstrendur.

Allt fyrir viðhaldið

Að undanförnu hefur BYKO keyrt

auglýsingaherferðina Allt fyrir viðhaldið.

Þannig fæst í verslunum

fyrirtækisins mikið úrval af öllu því

sem þarf fyrir viðhald og endurbætur

á húsnæði en allur virðisaukaskattur

af slíku fæst nú endurgreiddur.

Og þegar hefjast skal

handa um framkvæmdir getur verið

þjóðráð að leita til BYKO þar

sem starfa góðir fagmenn sem gefa

góð ráð og leiðbeiningar. „Ég trúi

að þetta verði gott sumar á Íslandi.

Fólki veitir ekki af,“ segir Agnar

Kárason.

www.byko.is

Blóm vorsins – vorertur

Sigríður Hjartar skrifar

Í rómantískum skáldsögum, sem

ég drakk í mig á sokkabandsárunum,

var stundum fjallað um ungar

stúlkur, sem skiptu svo fallega litum.

Ungar stúlkur skipta sjálfsagt

enn fallega litum en það gerir garðurinn

okkar líka. Fyrstu blómin á

hverju vori í garðinum mínum,

vetrargosinn og snæklukkan, eru

bæði skínandi hvít, þannig að garðurinn

verður hvítur ásýndum. Síðan

koma krókusarnir í fjölmörgum

litum en loks tekur garðurinn á sig

þann lit, sem er litur vorsins í huga

mínum. Þetta er guli liturinn. Vorboðinn,

sem er mjög lágvaxinn,

páskaliljur í ótal útgáfum og stærð-

um, huldulykillinn og margar fleiri

blómplöntur eru fallega gular, hver

með sínu móti. Þess vegna vekja

þær plöntur, sem eru í gagnstæðum

lit við gult, enn meiri athygli í

vorgarðinum.

Vorertur, Lathyrus vernus, eru

sannarlega ekki gular og það er

nánast eins og þær séu athyglisjúkar

í vorgarðinum. Það er ekki

stærðarinnar vegna því vorerturnar

eru aðeins 30-40 sm á hæð. Blaðliturinn

er fallega skærgrænn og

blöðin eru samsett eins og hjá öðrum

blómum úr belgjurtafjölskyldunni.

Blómin sitja nokkur saman á

stöngli, sem lyftir sér dálítið yfir

blaðskrúðið. Liturinn á blómunum

sker sig stórkostlega frá grænu

laufinu og gulblómstrandi umhverfinu.

Hann er mjög skær,

fjólublár eða blárauður, en innst í

blóminu er hvítur blettur.

Vorerturnar eru mjög snemma á

ferðinni, eins og nafnið bendir til.

Blómgunartími er auðvitað háður

vaxtarstað og árferði en akkúrat

núna, um miðjan maí, blómstra

þær í garðinum mínum. Þær eru

líka búnar að þroska fræ snemma

sumars og síðan visnar laufið svo

plantan er horfin síðsumars. Vorertum

er auðvelt að fjölga með

fræi, sem oft er að finna á frælista

Garðyrkjufélags Íslands og það er

unnt að skipta þeim eftir blómgun

og fá þannig smáplöntur utan af

hnausnum.Þótt vorerturnar lifi ár-

Nýjungar hjá Gámaþjónustunni:

Garðapokinn og Garðatunnan

Gámaþjónustan er þessa dagana að

hleypa af stokkunum nýrri þjónustu

sem eru Garðapokinn og

Garðatunnan. Sem kunnugt hefur

Reykjavíkurborg hætt að sækja

garðaúrgang sem til fellur í einkagörðum,

eins og gert hefur um

langt árabil. Því munu vafalaust

margir fagna þessari nýjung Gámaþjónustunnar.

Að sögn Jóns Ísakssonar markaðsstjóra

Gámaþjónustunnar og

Magnúsar Ólafssonar sölustjóra er

mikið lagt upp úr því að þessi nýja

þjónusta sé einföld og aðgengileg.

Viðskiptavinir geta pantað Garðapoka

á Netinu en þeir eru seldir

fimm saman í pakka og kostar

pokinn 490 kr. eða alls kr. 2.450.

Innifalið í verði pokanna er að þeir

verða sóttir til viðskiptavinanna

eftir þeirra óskum þegar þeir hafa

verið fylltir garðaúrgangi.

Allt í samræmi. Hér er valinn litur á girðinguna sem tekur mið af lit fjölbýlishússins.

Hugmyndir í þrívídd

Þegar fólk leitar til hönnuða um

útfærslu á hönnun garðsins fær það

einatt í hendur teikningar og riss á

blaði sem sumum finnst erfitt að

lesa og átta sig á. Fyrirtækið Lóðalist

ehf. býður upp á teikningar í

þrívídd sem auðveldar fólki að átta

sig á hvernig útfærslan muni líta

út. Bjarnheiður Erlendsdóttir hjá

Lóðalist ehf. er með áratuga reynslu

af hönnun og framkvæmdum við

garða og palla:

„Þegar ég hanna garða fyrir fólk

mæti ég auðvitað á staðinn og

skoða aðstæður og met hvernig

best sé að hafa hlutina. Það er mismunandi

hvort ég er einungis að

hanna palla og pallakerfi, eða garðinn

í heild sinni. Ég teikna allt upp

Sent til viðskiptavina

Við kaup á tíu pokum eða fleiri

fæst 10% afsláttur. Pokarnir eru

sendir til viðskiptavinanna sem

hafa svo samband við Gámaþjónustuna

annað hvort rafrænt eða í

síma þegar þeir óska eftir að losna

við pokana.

„Fólk getur séð á netinu hvenær

við erum á ferðinni í þeirra hverfi

og lætur þá pokana út við lóðamörk

þar sem við sækjum þá,“ segir

Jón sem bætir við að þjónusta

þessi standi garðeigendum á öllu

höfuðborgarsvæðinu til boða.

Garðatunnan er þjónusta í svipuðum

dúr, nema hvað hún hentar

ef til vill betur því fólki sem kappsamast

er í garðinum og er með

stórar lóðir. Þá er gott að hafa sérstaka

garðatunnu á staðnum og

auðvelt að panta aukalosun ef á

þarf að halda. Garðatunnan kostar

í þrívídd og gerir það teikningarnar

mjög lifandi svo fólk á auðveldara

með að átta sig á hvernig allt muni

líta út á endanum,“ segir Bjarnheiður.

Hún segir að mikilvægt sé að

taka mið af ríkjandi vindáttum,

stöðu húss/palls gagnvart sólu, aðkeyrslu

að húsinu, stærð lóðar og

hæðarmismun. Í pallahönnun

þurfi að sníða skjólveggi miðað við

vindáttir, sól og skugga og m.a.

staðsetja heita potta og einstakar

plöntur út frá slíkum atriðum.

Bjarnheiður annast m.a. garðaráðgjöf

fyrir Byko og þar getur fólk

pantað tíma og fengið hálftíma ráðgjöf

og teiknihugmyndir af pöllum

sem það hyggst koma upp.

Ný þjónusta hjá Gámaþjónustunni. Magnús Ólafsson sölustjóri og Jón Ísaksson

markaðsstjóri.

kr. 1990.- á mánuði og er tæmd á

tveggja vikna fresti frá maí til október.

Alhliða þjónusta

Gámaþjónustan hf. hefur starfað í

25 ár og er leiðandi í alhliða umhverfisþjónustu.

Býður meðal annars

upp á alhliða þjónustu við

söfnun á lífrænum úrgangi til jarð-

Kartöflur eru svo miklu

meira en kartöflur ...

hver hefði trúað því að

saga þeirra væri svona

spennandi!

Vorertur eru mjög snemma á ferðinni eins og nafnið bendir til.

gerðar. Þá býður Gámaþjónustan

margs konar aðra þjónustu svo

sem bílastæðasópun, endurvinnslutunnuna,

útleigu vinnuskúra,

salerna og geymslugáma

auk leigu og losunar almennra

gáma fyrir úrgang og endurvinnsluefni.

www.gamar.is

Bækur fyrir þá

sem vilja rækta

garðinn sinn – og

gera náttúrulega

matreiðslu og

hollustu að lífsstíl.

Garðyrkja, hollusta,

uppskriftir, skemmtisögur,

ráð gegn kvefi – allt þetta og

meira til er að finna í hinum

sívinsæla Ætigarði.

Hildur Hákonardóttir listakona er þekkt

fyrir frumlega frásagnargleði og ritsnilld.

GAR‹URINN 2009 | 25

um saman eru þær ekki mjög algengar

í íslenskum görðum. Við

þekkjum betur frænku þeirra, ilmbaunirnar,

sem lengi hefur verið

vinsælt sumarblóm. Þetta er stórskemmtileg

klifurplanta, sem getur

klifrað upp eftir neti eða þráðum

og festir sig að mestu sjálf, því

fremsta blaðparið er ummyndað í

klifurþræði. Ilmbaunirnar geta orðið

allt að 2 m háar, sem er góð

frammistaða svona á einu sumri.

Blóm ilmbauna eru stór og litskrúðið

mikið en ákaflega fínlegt,

hvítir, fölbleikir og fínlillabláir litir

eru einkennandi fyrir ilmbaunir, en

líka eru til laxableik, rósrauð og

jafnvel fjólublá afbrigði. Ilmbaunir

eru góðar til afskurðar, standa lengi

og ilmurinn er ólýsanlegur.

Svo skemmtilega vill til að tvær

plöntur af ættkvísl vorerta og ilmbauna

vaxa villtar á Íslandi. Báðar

vaxa aðeins á stöku stað, en þó í

öllum landsfjórðungum. Önnur

þeirra er baunagras. Þetta er mjög

lágvaxin planta, skríður með jörðu,

en blómin eru ótrúlega stór og

skarta þremur litbrigðum í fjólubláu.

Fuglaerturnar eru gjörólíkar,

blómin eru einlit, sterkgul og þær

geta klifrað.

Plöntur af belgjurtaættinni eru

óskaplöntur hvers garðeiganda.

Þær eru áburðarverksmiðjur þar

sem á rótum þeirra lifa bakteríur,

sem vinna köfnunarefni. Þetta á við

allar þær plöntur, sem hér hafa

verið nefndar, bæði Íslendingana

baunagras og fuglaertur og garðplönturnar

vorertur og ilmbaunir.

LIFUM Í TAKT VIÐ

NÁTTÚRUNA

www.salkaforlag.is

15x15_mix.indd 1 5/15/09 2:49:20 PM

26 | GAR‹URINN 2009

Veljum íslenskt!

Um langa hríð höfum við Íslendingar

verið haldnir einhvers konar

minnimáttarkennd þegar kemur að

vali á íslenskum trjátegundum í

garðana okkar. Birkið hefur komið

og farið úr tísku en er sem betur fer

inni núna enda er það sérþróað

fyrir íslenskar aðstæður og lætur

hvorki veðurfar né efnahagsástand

blekkja sig til vaxtar á óheppilegum

tíma. Ilmreynirinn var lengi vel

ekki þóknanlegur af tískulöggum

garðanna því hann hafði á sér

ímynd ömmutrés, það er tré sem

ömmur myndu velja í garða sína en

engir aðrir. Ekki það að ömmur

hafi lélegan smekk, þær eru margar

hverjar tískulöggur sjálfar en fyrir

nokkrum augum lukust augu garðeigenda

aftur upp fyrir fegurð reynisins

og nú er hann yfirleitt uppseldur

í gróðrarstöðvum. Blæöspin

er líka flokkuð sem íslensk tegund

en hefur ekki náð mikilli útbreiðslu

í görðum enda er hún örlítið erfiðari

viðureignar vegna þess að hún

dreifir sér um garðana með rótarskotum,

kannski nær hún útbreiðslunni

þannig?

Af runnategundum hafa gulvíðir,

brekkuvíðir og loðvíðir verið

mikið notaðir í gegnum tíðina enda

eru þetta blaðfallegar tegundir sem

koma með ákaflega skrautlega og

litfagra rekla, snemma vors þegar

aðrar plöntur eru enn í svefnrofunum.

Víðirinn er auðræktanlegur og

þrífst um land allt sem skýrir vinsældir

hans. Að vísu hafa ryðsvepp-

Nærmynd af reklum á karlplöntu grasvíðis á Vestfjörðum.

Guðríður Helgadóttir skrifar

Jarðlægur íslenskur einir - Juniperus communis.

ur og fiðrildalirfur aðeins dregið úr

vinsældum hans enda landinn

pödduhræddur með afbrigðum en

gróska plantnanna hefur enn sem

komið er haft vinninginn þegar

kemur að plöntuvalinu.

Við eigum hins vegar fleiri tegundir

trjáplantna sem mætti rækta

í mun meira mæli. Þetta eru tegundir

sem eiga það sammerkt að

vera frekar lágvaxnar og kannski

lítt áberandi á löngu færi en þegar

komið er í návígi við þessar plöntur

blasir við fegurð hins smáa. Það

gildir um allar þessar tegundir að

best er að nálgast þessar plöntur í

garðplöntustöðvum. Ef maður tek-

ur plöntur úr náttúrunni og flytur í

garða verða þær fyrir miklu áfalli,

jarðvegur í görðum er mun næringarríkari

en úti í móanum og

plönturnar ná yfirleitt ekki að laga

sig að þessu nýja ástandi. Auk þess

er það nú ekkert sérlega náttúruvænt

að ganga með stunguskóflur

um íslenska móa og moka upp

gróðurtorfum til að flytja í garða.

Íslenski einirinn, Juniperus

communis, er jarðlægur sígrænn

runni sem nýtur þess heiðurs að

vera eini berfrævingurinn sem telst

Meðvitund gagnvart umhverfisvernd

eykst í sífellu. Nýlega gaf

Salka út bókina Konur geta breytt

heiminum með nýjum lífsstíl eftir

Guðrúnu G. Bergmann og fjallar

hún um það hvernig megi lifa bæði

heilbrigðara og umhverfisvænna lífi

á auðveldan hátt og samtímis að

spara í rekstri heimilisins. Guðrún

segir bókinni beint til kvenna, þar

sem konur hafi á sinni könnu um

80% af smásöluinnkaupunum og

hafi því mikið vald til að gera

breytingar.

Mikil samlegðaráhrif

„Mér fannst þetta tilvalið framlag í

þær breyttu, samfélagslegu aðstæð-

Hér má sjá fræhýði á kvenplöntu grasvíðis (smjörlaufs) - Salix herbacea.

til íslensku flórunnar. Ættingjar

hans, greni, fura, lerki og þöll eru

innfluttar tegundir sem hafa komið

til landsins á síðustu öld og teljast

því ekki til flórunnar. Einirinn hefur

verið fluttur í garða um áratugaskeið

og þrífst mjög vel í frekar

rýrum jarðvegi. Hann þarf bjartan

vaxtarstað til að hann þrífist sem

best. Þetta er sérbýlisplanta þannig

að ýmist eru plönturnar karlkyns

eða kvenkyns og eru það kvenplönturnar

sem bera einiberin en

þau eru til margra hluta nytsamleg.

Fyrsta veturinn eftir gróðursetningu

er gott að setja yfir hann vetrarskýli

úr grenigreinum, svona á

meðan hann er að ná rótfestu á

nýjum stað.

Fjalldrapi, Betula nana, er litli

bróðir ilmbjarkarinnar og finnst í

kjarrlendi víða um land. Fjalldrap-

ur sem við stöndum frammi fyrir í

dag. Við verðum að breyta um

hegðun og temja okkur grænan lífstíl,

bæði fyrir okkur sjálf og náttúruna,“

segir Guðrún. „Mig langaði

til að setja fram einfaldar leiðbeiningar

sem allir geta farið eftir og

kosta lítið en geta á hinn bóginn

sparað fullt af peningum! Bókin

sýnir hvernig hægt er að spara í

heimilisrekstri og hafa um leið jákvæð

áhrif á náttúruna, þannig að

þarna sameinast tveir mikilvægir

hagsmunir. Ég legg áherslu á að

þetta eigi að vera auðvelt og að við

getum haft gaman af þessum breytingum.

Ef hver og ein kona gerir

örlitlar breytingar hjá sér verða

samlegðaráhrifin ótrúlega mikil.“

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni

ferðaþjónustu á Íslandi,

en hún rekur Hótel Hellnar

á Snæfellsnesi sem var fyrsta umhverfisvottaðaferðaþjónustufyrirtækið

á Íslandi. Hún hefur skrifað

ýmsar greinar um umhverfismál og

eftir hana liggja fjölmargar bækur

um sjálfsrækt og heilsutengt efni.

Þess má geta að 10% höfundarlauna

Guðrúnar fyrir þessa bók

renna til Umhverfissjóðs Snæfellsness.

Guðrún G. Bergmann og Blær Guðmundsdóttir fagna bókinni.

inn er með smærri blöð en birkið,

verður allt að því metershár og

greinabygging hans er frekar fínleg.

Haustlitur fjalldrapa er rauðbrúnn

og er þetta ákaflega fallegur runni.

Hann þrífst ágætlega í venjulegum

garðajarðvegi og er sólelskur eins

og birkið þannig að skuggsælir

staðir henta engan veginn.

Grasvíðir eða smjörlauf, Salix

herbacea, er jarðlægur blaðfallegur

íslenskur runni sem er ekki algengur

í görðum en mætti nota mun

meira. Eins og einirinn þá er grasvíðirinn

sérbýlisplanta og er karlplantan

ákaflega falleg á vorin með

litla fínlega rekla en kvenplantan er

skrautlegri þegar líður á sumarið

því fræhýði hennar eru fallega rauð.

Blöðin eru fagurgræn og glansandi

og þetta er planta sem ætti tvímælalaust

heima í fallegri steinhæð.

Konur geta breytt heiminum

Umhverfisvæn bók á ýmsa vegu

Blær Guðmundsdóttir hannaði útlit

bókarinnar, sem er um margt sérstakt.

„Svo er þetta í fyrsta skipti

sem bók á Íslandi er pakkað í filmu

sem unnin er úr maíssterkju. Plastprent

framleiddi filmuna sem

brotnar niður í náttúrunni á fjörutíu

dögum. Með þessum nýju umbúðum

er brotið blað í bókaútgáfu,“

segir Guðrún og bætir við að

í framhaldi af útgáfu bókarinnar

hafi Hildur Hermóðsdóttir hjá

Sölku tekið þá ákvörðun að hafa

sama hátt á varðandi innpökkun

bóka frá forlaginu í framtíðinni.

„Íslenskar konur eru svo fljótar

að aðlagast og tileinka sér nýjar

stefnur og strauma. Ég sé fyrir mér

að velji þær ein af annarri grænan

lífsstíll geti það orðið að eins konar

tískubylgju, sem eftir verður tekið

á alþjóðavettvangi og við getum

orðið að fyrirmynd annarra kvenna

um hvernig má vinna sig úr þeirri

niðursveiflu sem er í efnahagslífinu,“

segir Guðrún sem er bjartsýn

á framtíðina þar sem áhugi á umhverfismálum

er að stóraukast.

www.graennlifsstill.is

Fögur flöt í bæ

Falleg grasflöt er hverjum garði

mikil prýði og leggja margir mikið

á sig til að halda henni við. Grasrækt

er þó ekki eins auðveld og

margir mundu ætla, og eru þónokkur

atriði sem ber að hafa í

huga þegar kemur að heilbrigðum

bletti. Garðurinn ræddi því við

Láru Jónsdóttur, garðyrkjufræðing

hjá Blómavali í Skútuvogi og leitaði

ráða varðandi grasflötina og sumarblómin.

„Aðalatriðið er að næra grasflötina

vel, en um leið og hún fær

áburð vex grasið betur og mosi og

annað verður minna áberandi,“

segir Lára. Mosi vex gjarnan í grasflöt,

en hann þrífst best í eldri

görðum þar sem skuggi af trjám er

mikill. Rætur trjánna eiga það líka

til að vaxa undir flötinni og taka

næringu frá henni.

„Í gömlum görðum getur því

þurft að fækka trjágreinum eða

fella eitt tré til að hleypa birtu að.“

Lára segir einnig að ekki megi

slá grasið of snöggt, heldur að

halda sig við um 3-5 cm hæð. Með

því móti verður nóg af blöðum á

grasinu og það nær að byggja upp

sterkt rótarkerfi. Ef slegið er niður

að rót veikist hún og mosinn nær

frekar yfirhöndinni.

Auður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Lifa.

Allur gróður þarf næringu

Það er nauðsynlegt að gefa kalk á

nokkurra ára fresti og næra grasið

reglulega með alhliða garðáburði,

hvort sem það er blákorn eða grasáburður.

Næring er góð fyrir allan

gróður, en ekki einungis gras. „Ef

um blönduð beð er að ræða, til að

mynda eitthvað af fjölæringum,

runnum og trjám, þá hentar blákornið

mjög vel sem áburður. Það

má svo einnig fara á grasblettinn,

en það er algjör óþarfi að eyrnamerkja

einhvern einn áburð fyrir

grasið – það er allt gott fyrir það!“

Lára bendir fólki einnig á að bera

áburðinn á tvisvar til þrisvar yfir

sumarið, svo ársskammturinn sé

ekki gefinn í einu lagi. Eigi fólk í

erfiðleikum geti það einnig haft

samband við garðyrkjusérfræðinga

Blómavals sem veita góð ráð.

Sumarblóm í pottum og kerjum

Það er alltaf gaman að fá lit í garðinn

og sumarblómin dafna vel þar

sem sér til sólar.

„Ef fólk hefur ræktað sömu

sumarblómin á sama stað í mörg ár

getur verið sniðugt að taka sig til

og rækta þar aðra tegund og bæta

við nýrri mold til að auka

gróskuna.“

Lítið lífríki í eldhúsinu

Ræktun matjurta og blóma er mjög

gefandi, en þó ekki á allra færi. „Ég

er ekki með mjög græna fingur, og

hafði gert margar tilraunir til að

rækta kryddjurtir hjá mér sem

náðu fæstar árangri,“ viðurkennir

Auður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri

hjá Lifa. Hún segir

mikla breytingu hafa orðið þar á

þegar hún uppgötvaði Aerogarden,

vatnsgarðinn, fyrir tveimur árum.

„Garðurinn byggir á vatnsræktun

og þarf enga mold. Tækið veitir

plöntunum alla þá birtu og yl sem

þær þurfa og lætur vita þegar næringar

eða vatns er þörf. Í tankinum

myndast rakamettað hitabeltisoftslag

svo að plönturnar komast í

beina snertingu við súrefni og vaxa

hraðar heldur en í moldinni.“ Tækið

sér í raun alfarið um ræktunina,

en eigendur garðanna njóta afrakstursins.

Hægt er að rækta ýmsar plöntur

í garðinum. „Hægt að vera með til

dæmis kryddjurtir, kirsuberjatómata

og chili. Svo er líka hægt að fá

pakka þar sem maður setur sín eig-

in fræ og getur verið með tilraunir.

Þá er hægt að kaupa forsáningarpakka,

sem gerir þér kleift að forrækta

áður en þú setur plöntur út,“

segir Auður og bætir við að óværa

sæki síður að plöntunum því þær

séu ekki í mold.

Garðurinn hefur vaki mikla

lukku á heimili Auðar, og hefur

verið fjölskyldunni innblástur til að

hefja matjurtarræktun í sumar.

„Aerogarden garðurinn hefur alveg

fullnægt eftirspurninni á heimilinu,

plönturnar spretta svo hratt að

maður hefur varla við! Stelpurnar

mínar hafa einnig mjög gaman af

þessu. Sú yngri, sem er fimm ára

nælir sér í basilblöð og borðar

kryddið beint eins og kál! Þær hafa

gaman af að fylgjast með plöntunum

og stússast í þessu með okkur.

Þetta hefur verið svona fjölskylduáhugamál!“

Nánari upplýsingar um Aerogarden

garðinn er hægt að finna á

heimasíðu Lifa.

www.grodurhus.is

„Þá er um að gera að nota sumarblóm

í ker og potta, bæði á stéttir,

palla og svalir. Það eina sem þarf

að passa með pottana er að það

þarf að vökva þá reglulega, gjarnan

með áburðablöndu og gott er að

vökva að kvöldlagi,“ segir Lára og

minnir fólk á að þegar það kaupir

sumarblómin séu þau í litlum

ræktunarpottum og því sé nauðsynlegt

að stækka pottana, en

kröftug sumarblóm þurfa bæði

rými og raka til að dafna vel. „Annað

gott ráð er að kaupa sérstaka

vatnskristalla, sem er blandað saman

við moldina í pottunum. Þegar

vökvað er draga þeir í sig vatn eins

og moldin, en þegar moldin þornar

þá gefa kristallarnir aftur frá sér

vatnið. Þetta heldur rakanum lengur

og er hentugt þegar fólk þarf að

skreppa frá blómunum í nokkra

daga.“

www.blomaval.is

GAR‹URINN 2009 | 27

Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur hjá Blómavali, segir góða næringu lykil að

fallegri flöt.

28 | GAR‹URINN 2009

Frækveðja frá Noregi

Ég hef verið félagi í Garðyrkjufélagi

Íslands í þó nokkuð mörg ár. Eiginlega

svo mörg ár að ég vil ekki

reyna að muna hversu mörg þau

eru í raun og veru. Ég varð fyrst og

fremst félagi af því að ég vildi geta

nýtt mér frælista félagsins. Ekkert

finnst mér jafn skemmtilegt og að

sá fræjum af fjölæringum. Það er

svo spennandi að sjá hvort einhverjar

spírur koma upp eða ekki,

og svo hvort það er rétta plantan

yfir höfuð!

Ég verð að viðurkenna að fyrstu

árin var frævalið verulega tilviljanakennt.

Eiginlega valdi ég bara eftir

hvort nöfnin hljómuðu vel eða

ekki. Ég hafði ekki grænan grun

um hvað það var sem ég pantaði.

Ekki heldur hvor rétt planta kom

upp eða einhver allt önnur.

Nú er reynslan meiri og vonandi

vitið líka. Ég hef haldið sáðbók síðustu

árin, sem er góð hjálp. Af og

til týnist merkimiðinn og ég man

ekki hvaða planta þetta er. Þá get

ég flett upp í sáðbókinni og fundið

út hvaða plöntum ég sáði það árið,

og vonandi fundið út hvaða plöntu

er um að ræða.

Fyrir nokkrum árum flutti ég á

vesturströnd Noregs. Þá er gaman

að geta nýtt sér frælistann og pantað

fræ af þeim plöntum sem ég

man eftir úr görðum að heiman.

Iðulega eru þetta plöntur sem eru

ekki algengar hérna og vekja mikla

athygli annarra garðáhugamanna.

Það er líka gaman að því að

fylgjast með því hvað sumar plöntur

þrífast betur hérna og svo eru

aðrar sem þrífast betur á Íslandi.

Til dæmis er riddaraspori mun fallegri

á Íslandi en hér.

Það er líka virkilega gaman að

geta pantað fræ af íslensku villtu

plöntunum. Það er yndislegt að

ganga um í garðinum og rekast allt

í einu á geldingahnapp, lambagras

eða rjúpnalauf! Það er eins og að

vera komin upp á fjall heima á Íslandi!

Það vantar bara íslensku

sauðkindina á vappi í nágrenninu.

Hérna er auðveldara að vera

garðáhugamaður en á Akureyri, þar

sem ég bjó áður. Hér er ekki þessi

eilífi barningur við vindinn. Sumrin

eru líka lengri og hlýrri. En samt

er eins og maður verði að reyna við

þessar plöntur sem eru tæplega

nógu harðgerðar til að lifa af. Ætli

það sé ekki eins allsstaðar?

Garðurinn okkar hérna er stór.

Framan við húsið er hefðbundinn

garður með beðum, runnagróðri og

gróðurhúsi sem við byggðum. Að

húsabaki vorum við svo heppin að

fá lítið skógarholt. Við ákváðum að

reyna að halda í töfra skógarins en

Þórunn Vigfúsdóttir skrifar

Paeonia lactiflora ´Fairy`s Petticoat´

Útlagi við skóginn okkar.

Þagar huga á að kaupum á hellum

og garðvörum kemur BM Vallá

fljótt í hugann. Fyrirtækið hefur

verið leiðandi í sölu og framleiðslu

á hellum, steinum og garðeiningum

í áratugi. „Á hverju ári bætum við

nýjum vörum í vörulista okkar,“

segir Gunnar Þór Ólafsson, forstöðumaður

sölu- og dreifingar hjá

fyrirtækinu.

Hleðslusteinar og stéttir njóta

vaxandi vinsælda í görðum landsmanna.

Framleiðsla á slíkum vörum

hefur í áranna rás verið snar

þáttur í starfsemi BM-Vallár enda

leggur fyrirtækið mikla áherslu á

að þjóna garðeigendum og fjölbreyttum

kröfum þeirra sem best.

Gunnar Þór Ólafsson, forstöðumaður

sölu og dreifingar BM-Vallár.

Til halds og trausts

„Síðustu árin hafa garðlausnir í funkisstílnum notið vaxandi vinsælda.

Steinar með bogadregnum

línum í herragarðsstíl njóta þó enn

mikilla vinsælda. Möguleikarnir

sem garðlausnir frá okkar bjóða

uppá eru margir,“ segir Gunnar

Þór.

BM-Vallá hefur um langt skeið

boðið viðskiptavinum sínum upp á

endurgjaldslausa ráðgjöf landslandslagsarkitekta.

„Algengt er að

viðskiptavinir komi hingað og biðji

um ráðgjöf. Ráðgjöf og vel útfærðar

teikningar, byggðar á hugmyndum

garðeigendanna sjálfra, koma sér

vel, og bæði á færi leikra sem lærða

að vinna eftir þeim,“ segir Gunnar

Þór.

Landslagsarkitektarnir Áslaug

Katrín Aðalsteinsdóttir og Inga Rut

Gylfadóttir eru viðskiptavinum

BM-Vallár til halds og trausts og

hafa þær raunar starfað á vegum

Bergsóley - Clematis.

líka að finna góðar plöntur sem

passa inn ì umhverfið. Við byrjuðum

á að grisja og notuðum trjábolina

til uppkveikju á veturna en

greinarnar kurluðum við og notuðum

í stíg. Stígurinn hlykkjast svo í

gegnum skóginn og myndar

óreglulegan hring. Við höfum

plantað ýmsum tegundum af blágresi

og nokkrum mismunandi

vatnsberum, garðamaríustakki,

brúskum, geitaskeggi og villijarðarberjum

sem þrífast mjög vel þarna

uppi í skóginum. Ì sumar ætla ég

að reyna við nokkrar tegundir af

bláklukkum: dröfnuklukku

(Campanula punctata), fagurklukku

(C. persicifolia) og mjólkurklukku

(C. lactiflora) svo dæmi séu

tekin. Um daginn náði ég mér í

bronslauf og nokkrar tegundir af

brjóstagrösum sem ég ætla að reyna

við.

Við erum alltaf að bæta við fjöl-

fyrirtækisins um alllangt skeið.

„Með teikningum þeirra hefjast

garðeigendur handa, gjarnan með

því að kaupa hjá okkur það sem

þarf. Þar getur verið um að ræða

stíga, verandir, innkeyrslur, bílastæði

og hlaðna veggi. Fyrir allt

þetta framleiðum við steina í ýmsum

útfærslum, mynstrum, litum,

styrkleika og svo framvegis,“ segir

Gunnar Þór.

Gaman að kynna nýjar vörur

Fyrir verandir og stíga framleiðir

BM-Vallá steina og hleðsla í ýmsum

gerðum og miðaldastein, fornastein,

rómarstein, grasstein og ýmsar

fleiri tegundir fyrir innkeyrslur

og bílastæði. „Bílastæðasteinana

framleiðum við í miklu úrvali og

þá má einnig nota í sólpalla og við

sambærilegar aðstæður,“ segir

Gunnar.

æringum og runnum, prófum hitt

og þetta. Sumt tekst vel en annað

miður eins og gengur. Af mistökunum

lærum við.

Það er virkilega gott tækifæri

fyrir Íslendinga og aðra að geta

notfært sér ýmis tilboð Garðyrkjufélagsins.

Námskeið, fræðsla, spjall

á heimasíðunni til að bera saman

bækur sínar og þessi einstaki

frælisti. Fjöldinn allur af velþekktum

og minna þekktum plöntum.

Auðveldum að koma til og svo

þeim sem eru erfiðari viðureignar.

Eitthvað fyrir alla að spreyta sig á.

Það gerir ferilinn enn meira

spennandi að það er ekki hægt að

ábyrgjast að fræin spíri því þeim er

safnað af áhugafólki. Ekkert gefur

garðáhugamanni meira en að sjá

litlar spírur koma í ljós í potti,

nema ef væri stóra og stæðilega

blómplöntu sem einu sinni var sáðplanta

í eldhúsglugganum.

BM-Vallá með fjölbreyttar lausnir fyrir garðeigendur:

Steinar og stílhreinar línur

Fallegt í Fornalundi hjá BM-Vallá þar sem má sjá margar af þeim skemmtilegu

garðlausnum sem fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum.

„Funkisstefnan verið mjög að

ryðja sér til rúms í nýjum hverfum

á undanförnum árum. Meginþróunin

þar er að nota stein í görðunum

en gróður og tré eru á undanhaldi.

Vissulega getur slíkt virkað

svolítið kalt en komi gróður inn á

milli, til dæmis í blómakerjum

eins og við framleiðum, getur útkoman

verið skemmtileg. Það er

alltaf gaman að kynna nýjar vörur,

sérstaklega ef vel tekst til og viðskiptavinir

eru ánægðir. Og það

þarf ekki alltaf ýkja mikið til þess

að lífga upp á garðinn. Falleg

blómaker geta gert ótrúlega mikið,

en þar sem og í bekkjum, stoðveggjum,

flísum og fleiru slíku hefur

vöruúrval okkar verið aukið

mikið síðustu misserin,“ segir

Gunnar.

www.bmvalla.is

Nýjungar hjá Sölufélagi garðyrkjumanna:

Spínat og sveppagratín

Ylræktaðar gulrætur frá bóndanum

að Sólbyrgi í Reykholtsdal eru

væntanlegar í verslanir innan

skamms. „Við eigum von á fyrstu

sendingu frá Sólbyrgi alveg á næstunni

og nokkrum vikum síðar

koma afurðir annarra bænda á

markað. Raunar hefur verið einstaklega

sólríkt og hlýtt að undanförnu

og það gefur okkur vonir um

góða uppskeru í sumar,“ segir

Kristín Linda Sveinsdóttur, markaðsstjóri

Sölufélags garðyrkjumanna.

Vorið er tími garðverkanna og

Heyrt í

gróðrar-

stöðinni

Kona nokkur kom í sinn árlega

leiðangur í gróðrarstöðina.

Hún hafði um árabil komið og

keypt sumarblóm í garðinn.

Afgreiðslukonan spyr hana

hvaða sumarblóm eigi nú að

setja í beðin í ár. Konan fer aðeins

hjá sér og segir að það hafi

orðið breytingar á. Það hafi

nefnilega flutt frönsk kona í

húsið hjá henni og nú hafði

hún sáð matjurtum í öll blómabeðin.

Svo að það sumarið

voru engin sumarblóm á þeim

bæ. Fer ekki sögum af hvernig

uppskeran varð, en á þessu sést

vel hve ólíkt viðhorf er á tilgangi

garðræktar milli landa.

síðustu dagana hafa garðyrkjubændur,

sem einbeita sér að útræktun,

verið í óðaönn að sá og

planta út í görðum sínum. Útiræktunin,

þar sem Flúðabændur

eru umsvifamiklir, er raunar mjög

fjölbreytt og má þar meðal annars

nefna framleiðslu á spergilkáli,

blómkáli, hvítkáli, kínakáli, gulrófum

og rófum. Reikna má með að

fyrsta sendingin af þessari ræktun

komi á markaðinn viku af júlí.

Framboðið eykst svo þegar líður

lengra fram á sumarið. Með raflýsingu

í gróðurhúsum er svo hægt að

Hlífa

Soft shell jakki úr mjög teygjanlegu

efni. Er vatns- og vindfráhrindandi.

Hentar vel sem innra lag sem og

ytra lag í hlýrri veðrum.

Herrastærðir: S-3XL

Kvennastærðir: 36-46

Verð 19.990 kr.

framleiða tómata, agúrkur og papriku

árið um kring og kunna neytendur

vel að meta slíkt.

„Áhugi fólks á grænmeti fer sífellt

vaxandi. Markaðurinn stækkar

með hverju árinu sem aftur helst í

hendur við vitund fólks um hollustu

og heilbrigðan lífsstíl. Við

höfum starfað samkvæmt því og

bryddum því upp á nýjungum á

hverju ári. Komum á allra næstu

dögum á markaðinn með íslenskt

spínat í þægilegum 50 gr. neytendaumbúðum.

Við hlökkum

mikið til þess að bjóða viðskipta-

vinum okkar upp á þessa nýju afurð.“

Kristín segir að hjá Sölufélagi

garðyrkjumanna sé unnið að margvíslegri

vöruþróun. Þannig var hjá

fyrirtækinu á síðasta ári byrjað að

framleiða gratín sem er unnið úr

blóm- og spergilkáli og gulrófum.

Viðtökur við því hafa verið frábærar

og var því ákveðið að halda

áfram á sömu braut og síðla sumars

má þess vænta að íslenskt

sveppagratín komi í búðir.

www.sfg.is – www.islenskt.is

Lagarfljótsormurinn, íslensk fljó›saga.

Kringlunni - sjá nánar um útsölustaði á www.zo-on.is

GAR‹URINN 2009 | 29

Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri

Sölufélags garðyrkjumanna.

30 | GAR‹URINN 2009

Rósirnar hans

Jóhanns vekja athygli

Það vakti athygli norrænna rósaunnenda

sem komu til Íslands á

fund stjórnar norrænu rósafélaganna

í september sl. að líta augum

íslensk ræktuð rósayrki sem þeir

hrifust mjög af. Það er Jóhann Pálsson

fyrrum garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar

sem hefur laðað fram

þessi blendingsyrki með því að

víxlfrjóvga harðgerar tegundir rósa

og velja úr afkvæmunum plöntur

með álitlega eiginleika. Það eru

gjarnan rósayrki með ,,blóð“ fjallarósa,

ígulrósa og þyrnirósa sem

Jóhann hefur notað í víxlanir sínar.

Einnig hafa orðið til í einkagarði

Jóhanns náttúruleg blendingsafkvæmi

sem hann hefur haldið til

haga og notað til víxlfrjóvgunar.

Einn af norsku gestunum skrifaði

grein um þetta í marsútgáfu Rosebladet,

málgagns norska rósafélagsins.

Þar er lýst mikilli hrifningu yfir

þessum rósum sem gestirnir fengu

að sjá og báru sumar ennþá falleg,

nýútsprungin og ilmandi blóm þótt

Vilhjálmur Lúðvíksson skrifar

komið væri fram í september. Eftir

birtingu greinarinnar eru norskir

rósaunnendur farnir að spyrja um

möguleika á að fá þessar rósir til

sín. Hér eru kannski að verða til

tækifæri fyrir íslenska garðplöntuframleiðendur!

Jóhann telur rósir búa yfir kvenlegum

eiginleikum. Blómin eru

mjúk og undur falleg en rósir geta

stungið illþyrmilega ef illa er farið

að þeim. Vegna þessa hefur hann

gefið öllum sínum rósum kvenkyns

nöfn. ´Logafold´ heitir ein ættmóðirin

en nöfnin Hadda, Hilda, Drífa,

Fönn og Guðfinna koma fyrir og

hér eru sýnd á myndum nokkur

dæmi um þessar rósir hans. Rósir

Jóhanns hafa fengið veglegan sess í

tilraunagarði Rósaklúbbsins í landi

Skógræktarfélags Hafnarfjaðar og

var sá garður vígður fyrir tveimur

árum af Guðna Ágústssyni, þáverandi

landbúnaðarráðherra um leið

og rósir frá Jóhanni voru settar niður.

Vonandi verða einhverjar þeirra

Harðgerar rósir blómstra jafnvel á vindblásinni Valhúsahæðinni.

fáanlegar á íslenskum markaði innan

fárra ára því þær eru bæði mjög

harðgerar, fagurblómstrandi og

ilmandi og bera því öll einkenni vel

heppnaðrar ræktunar. Íslensk rósarækt

er að hefja göngu sína. Mikið

og áhugavert verkefni er framundan

bæði fyrir ræktendur, framleiðendur

og unnendur fagurra jurta.

Guðni Ágústsson gróðursetur ‘Fönn’. ‘Guðfinna’ verður stæðileg rós.

‘Drífa’. ‘Guðfinna’. ‘Brynhildur’ með næstum sjálflýsandi

blóm.

Guðbjörg Kristjánsdóttir er hafsjór

af fróðleik þegar kemur að ræktun,

en hún hefur starfað við garðyrkju

alla sína ævi. Hún segir mikla

aukningu hafa orðið í ræktun

kryddjurta og grænmetis að undanförnu.

„Við keyptum töluvert

meira af matjurtafræjum nú í haust

en áður. Þegar leið að áramótum

ákváðum við svo að panta enn

meira, og nú eigum við von á

fjórðu sendingunni fyrir utan aðalsendinguna

sem átti að duga!“

Af litlu fræi...

Guðbjörg bendir fólki á að sá fræjum

í sáðmold, sem inniheldur færri

næringarefni en hefðbundin mold.

Of mikil næring eða áburður geti

drepið ungar plöntur. „Yfirleitt

setur maður sáðmold í bakka,

vökvar svo og sáir. Síðan setur

maður mold yfir fræið, um það bil

2-3 sinnum þykkt fræsins. Á því er

þó undantekning, en það eru þessi

pínulitlu fræ eins og timían og oreganó

sem verða að fá að vera ofaná.

Þá er einnig gott að sá bara því

sem maður þarf og geyma afganginn

af fræjunum, en þau geymast

mjög vel og lengi.“

Guðbjörg segir spírun ganga

mjög mishratt fyrir sig, og það

komi fyrir að fólk gefist upp á sáningunni

og haldi að spíruninin hafi

misheppnast. Gulrótar- og rósmarínfræ

séu til að mynda mjög lengi

að spíra, en rósmarínið getur tekið

rúman mánuð. Það skipti því máli

að sýna þolinmæði og halda áfram

að vökva, en fræ þurfa ekki að

þorna nema einu sinni til að þau

deyji. „Að láta fræ spíra er þó

venjulega mjög auðvelt,“ bætir

Guðbjörg við brosandi.

Vökvun mikilvæg

Guðbjörg leggur áherslu á mikilvægi

þess að fólk haldi moldinni

rakri, vilji það ná árangri í ræktun.

„Þótt að fólki finnist alltaf vera

rigning, þá er það ekki svo og það

verður að vökva vel. Ef fræin ná að

Hollráð frá Guðbjörgu í Garðheimum:

Krydd í tilveruna

Guðbjörg Kristjánsdóttir garðyrkjumaður: „Það er nauðsynlegt að hafa stöðugan

raka á meðan fræið er að koma upp.“

þorna þá deyja þau, og það er

nauðsynlegt að hafa stöðugan raka

á meðan fræið er að koma upp og

mynda rætur. Það getur flýtt fyrir

spírun að vökva fræin með volgu

vatni, sérstaklega fyrst í stað.“

Margir fara að huga að garði og

ræktun í maímánuði, en það getur

þó reyst varasamt þar sem oft er

næturfrost. „Ef það gerist í grænmetisræktun

er mikil hætta á að

grænmetið njóli, þ.e.a.s. að það

blómstri og myndi ekki neina

hausa. Því er öruggast að setja

grænmetið ekki út fyrr en í byrjun

júní. Ef fólk vill ekki missa af

plöntum sem eru til sölu, þá getur

það einfaldlega keypt þær og geymt

inni þar til tími er kominn til að

setja þær út.“ Guðbjörg bendir þó

á að ýmsar harðgerar blómaplöntur

geti farið fyrr út, til að mynda

stjúpur, ljónsmunni og bellis.

Guðbjörg segir kryddjurtir vaxa

vel í glugga sem og garði, en að

reynslan sýni að kryddplöntur séu

meira nýttar, séu þær í ræktaðar í

eldhúsinu. Plöntur eru viðkvæmar

fyrir miklum hitabreytingum og

því er gott að venja þær örlítið við

áður en þær eru fluttar frá íbúðarhúsi

út í garð. „Fólk getur reynt að

setja þær út á daginn og svo á eins

kaldan stað og hægt er á næturnar

til að venja þær smátt og smátt við

kuldann. Þá getur verið gott að

setja akríldúk yfir plönturnar, sem

veitir gott skjól, en slíkir dúkar

hleypa rigningu og vatni í gegnum

sig svo það er hægt að vökva í

gegnum dúkinn.“

www.gardheimar.is

GAR‹URINN 2009 | 31

Grænmetisbylting í sumar!

til að ná árangri þurfi að undirbúa

garðinn vel. Þurrkaður hænsnaskítur

eða fiskimjöl er mjög góð undirstaða

og sumir komast ef til vill í

annan húsdýraáburð. Kalki þarf oft

einnig að bæta í jarðveginn. Illgresishreinsun

er mjög mikilvæg og

skiptir máli að gefast ekki upp þó

eitthvað fari úrskeiðis í fyrstu!

„Í Gróðrarstöðinni Storð eru framleiddar

og selda flestar þær garðplöntur

sem garðeigendur þurfa í

garðana sína; tré, skrautrunnar,

sumarblóm, rósir, matjurtir o.fl.,“

segir Vernharður Gunnarsson, eigandi

gróðrarstöðvarinnar Storðar í

Kópavogi. „Núna í vetur og vor

höfum við fundið að ræktunaráhugi

fólks er að aukast mjög mikið,

sérstaklega á alls kyns nytjaplöntum.

Það hefur orðið einhver hugarfarsbreyting.

Síðastliðin 2-3 ár

hefur fólk sótt í að rækta sitt eigið

salat, krydd og fleira en núna virðist

þessi áhugi hafa magnast upp og

margir tilbúnir til að takast á við

fleiri tegundir.“

Vernharður brýnir fyrir þeim

sem eru að hefja matjurtarækt, að

Ný heimasíða

fyrir áhugafólk

og ræktendur:

www.gardplontur.is

Félag garðplöntuframleiðenda opnaði

í gær nýja heimasíðu www.

gardplontur.is við mikinn fögnuð í

Landbúnaðarháskólanum Reykjum,

Ölfusi. Heimasíðan er sannkallaður

þekkingarbrunnur þegar

kemur að íslenskri garðyrkju og er

ætlað að miðla þekkingu á auðveldan

og þægilegan hátt til almennings

rétt sem ræktenda auk

þess að bjóða upp á tengingar við

framleiðendur um allt land.

Á síðunni er leitarvefur, þar sem

hægt er að leita að plöntum eftir

hæð, lit og ræktarskilyrðum, sem

auðveldar fólki að velja sér plöntur

í garðinn. Þá er á síðunni einnig að

finna mikinn fróðleik, því með

hverri plöntu er að finna bæði góða

lýsingu og ljósmynd sem tekin er á

Íslandi.

Það liggur mikil reynsla og

þekking hjá garðplöntuframleiðendum

sem þeir miðla á þessum

nýja vef. „Þeir taka oft plöntur erlendis

frá og prufa þær svo áður en

þær verða markaðsvara hér, en íslensk

veðrátta hentar ekki öllum

plöntum. Það er því afar gagnlegt

að hafa aðgang að sameiginlegum

upplýsingabrunni um garðyrkju,

hvort sem þú ert áhuga- eða atvinnumaður,“

segir Sigríður Helga

Sigurðardóttir, sem er garðplöntuframleiðandi.

www.gardplontur.is

Baráttan við kálfluguna.

Kálflugan getur gert grænmetisræktendum

lífið leitt. Hún sækir

eingöngu í kálættina, til að mynda

blómkál, hvítkál og rófur. Grænmeti

af öðrum ættum eins og rauðrófur,

salat, krydd og gulrætur lætur

hún alveg í friði.

Margir kjósa að nota ekki eitur í

matjurtagarðana sína til að verjast

kálflugunni. Mjög gott ráð er að

setja léttan akryldúk yfir beðin

strax eftir útplöntun, og láta hann

vera í 5-6 vikur. Það er sá tími sem

kálflugan er á sveimi í leit að

heppilegum varpstað þar sem hún

getur alið börnin sín. Það eru einmitt

þau, lirfur kálflugunnar, sem

éta rætur plantnanna. Dúkurinn

veitir að auki gott skjól og flýtir

uppskerunni.

Vernharður nefnir einnig nokkur

gömul ráð í baráttunni við kálfluguna.

Ýmsar lyktsterkar plöntur

trufla leit hennar að fórnarlömbum.

Ef fólk kemst í kúamykju, fer í

gang athyglisvert ferli. Fyrir utan

• jarðvegsskipti

• pípulagnir

• raflagnir

• snjóbræðsla

• hellulagning

að vera góður áburður, dregur hún

að sér mykjufluguna sem allir

þekkja. Mykjuflugan er rándýr og

ræðst á kálfluguna og drepur. Hún

• þökulagning

• grjóthleðsla

• hleðsluveggir

• steyptir

veggir

er þannig eins konar varnarlið

grænmetisgarðsins. Þetta miðast

við að ekki sé notaður yfirbreiðsludúkur.

• kantsteypa

• stígagerð

• gosbrunnar

• girðingar

• pallar

• sláttur

• klipping

• hreinsun

Svo er bara að óska öllum góðs

gengis í sinni ræktun í sumar.

www.stord.is

AlhliðA þjónustA

fyrir gArðinn!

S.Á. Verklausnir býður fram alhliða þjónustu á sviði lóðafrágangs og hefur á að skipa

reyndum sérfræðingum á því sviði.

Fyrirtækið var stofnað á vormánuðum árið 2007. Fyrirtækið hefur vaxið hægt en örugglega, þrátt fyrir

erfiðar aðstæður já markaðnum. Við erum stórhuga og bjóðum nú upp á allan þann lóðafrágang sem

hægt er að ímynda sér. Ekkert verk er okkur ofviða:

S.Á. Verklausnir ehf. - Frostafold 181 - 112 Reykjavík - Sími 5880920 - GSM 8973057 - save@save.is - www.save.is

32 | GAR‹URINN 2009

BREIÐAMÖRK

HVERA

SVÆÐI

KIRKJA

HÓTEL

ÖRK

Garðyrkju- og blómasýningin 2009

„Blóm í bæ“

HVERAMÖRK

REYKJAVÍK

Hveragerði 26. – 28. júní

Sýning af þessu tagi er nú haldin í fyrsta sinn á Íslandi, en rík hefð er fyrir slíkum garðyrkjusýningum

víða erlendis. Fjöldi viðburða á sviði garðyrkju, umhverfismála, íslenskrar framleiðslu og handverks

verður á sýningunni þar sem fagfélög, framleiðendur og fyrirtæki taka höndum saman.

Sýningarsvæði og uppákomur

I

K

BREIÐAMÖRK

L

REYKJAMÖRK

A

E B

F G D

H C

Sýningin er opin:

LANDBÚNAÐAR-

HÁSKÓLI ÍSLANDS

LISTIGARÐUR

J

HEIÐMÖRK

ÞELAMÖRK

SUNNUMÖRK

SELFOSS

Föstudaginn 26. júní kl. 15.00 – 20.00

Laugardaginn 27. júní kl. 12.00 – 18.00

Sunnudaginn 28. júní kl. 12.00 – 17.00

REYKJAMÖRK

LAUGASKARÐ

SUNDLAUG

M

AUSTURMÖRK

LISTASAFN

ÁRNESINGA

Aðgangur ókeypis alla dagana!

Allar nánari upplýsingar er að finna hjá verkefnisstjóra

í síma 483-4000 og á www.hveragerdi.is.

A

B

C

D

E

F

G

H

I

J

K

L

M

Listigarður

Á útisvæði eru sýnendur með stærri garðvörur

og skraut. Þar verður gerð lengsta blóma-

skreyting Íslands.

Markaðurinn

Tjaldborgir verða reistar á markassvæðinu

þar sem markaðsstemning verður ráðandi

og íslensk framleiðsla áberandi. Tjöldunum

verður skipt í Garðyrkju-, Handverks-, Umhverfis-

og Matvælatjald.

Blómagerði

Upphitað innisvæði með sýningarkerfum.

Þar verður jafnframt haldin blómasýning og

víkingabrúðkaup og keppt í blómaskreytingum

og sólblómarækt.

Gúrkugerði

Sýning á íslensku grænmeti.

Sögusýning garðyrkjunnar

Safn Garðyrkjuskólans af gömlum verkfærum

verður dregið fram í dagsljósið.

Gleym-mér-ey

Blómaskreytar búa til skreytingar úr húsgögnum

og öðrum áhöldum.

Frævan

Garðplöntuframleiðendur sýna sumarblóm,

trjáplöntur og aðra framleiðslu. Sýning á samsetningu

blóma í kerjum.

Blómabörnin

Á barnasvæðinu verður boðið upp á ýmsa

skemmtun fyrir börnin sem tengist sól og

sumri.

Eldhúsgarðurinn

Náttúran.is og Hildur Hákonardóttir kynna

nýjung í skipulagi matjurtagarðs fyrir heimilið.

Frumlegar skreytingar frá félagi blómaskreyta.

Garðshorn

Sýning á smágörðum úr smágarðasamkeppni

Félags íslenskra landslagsarkitekta og Hveragerðisbæjar.

Íslensk garðlist

Sýningin „Blóm í bæ“ hefst á skemmtilegri

ráðstefnu um íslenska garðlist.

Tjaldsvæði

Á tjaldsvæði verður boðið upp á rúnaristur,

opið grill og skátaleiki. Laukaball fyrir yngstu

kynslóðina.

... og margt, margt fleira!

ARGH! 0509

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!