Ísland og íslenska lýðveldið

Krakkarnir í 4.bekk hafa verið að læra um Ísland og íslenska lýðveldið. Þar sem forsetakosningar eru framundan var ákveðið að hafa einnig forsetaframboð í bekkjunum. Börnin rituðu hvert og eitt um sinn draumaforseta og fluttu sína framboðsræðu með sóma. Að lokum voru lýðræðislegar kosningar þar sem forseti var kjörinn.